Melkorka - 01.10.1950, Qupperneq 12
fjárhagslega auðveldara að velja um
heimilisstörf og utanheimilisstörf.
2. Peningalegt mat á barnauppeldi og hús-
móðurstörfum, sem reiknast heima-
vinnandi konu til tekna, en kemur til
frádráttar, ef aðrir en konan vinna þau,
auka einnig mjög á fjárhagslega mögu-
leika um val á heimilisstörfum og öðrum
störfum.
3. Jafn yfirráðaréttur og skipting á sameig-
inlegum tekjum og eignum lijóna til
skatts, ásamt mati á húsmóðurstörfun-
um, er stórt spor í áttina til efnahagslegs
jafnréttis, að svo miklu leyti sem það er
á valdi laganna.
Almenningsálitið fylgir í kjölfar réttlátra
laga, sé það ekki orðið á undan.
4. Einstæðum mæðrum, sem sæmilegar
tekjur liafa, verður ekki lengur beinlínis
refsað í framkvæmdum skattalaganna.
Takmark kvenna í skattamálum, sem öðr-
um efnahagsmálum, á að vera skilyrðislaust
fullt jafnrétti við karla að lögum og í fram-
kvæmd laganna.
Að ákveðin sókn er Jsegar hafin á aljjjóða-
vettvangi fyrir réttindum kvenna í skatta-
málum, má m. a. sjá af fundargerð síðasta
fundar Alþjóðakvenréttindasambandsins
(International Alliance of Women) í Am-
sterdam 1949. Segir þar í tillögum og kröf-
um um efnaliagslegt jafnrétti: „Sambandið
krefst réttar giftra kvenna til tekjumats og
sérsköttunar.“#
Fullt efnaliagslegt jafnrétti á sennilega
enn nokkuð langt í land, en því færri króka-
leiðir, sem farnar eru, því fyrr er takmark-
inu náð.
* The Alliance claims the right for married women
to separate assessment and taxation of incorne.
/ x
KONUR, eflið ykkar eigið rit,
útbreiðið MELKORKU.
v_______________________________________/
Spurningar
Eftirfarandi spurningar hefur kona úti á landi sent
Melkorku. Óskar hún að þær séu birtar með það fyrir
augum að lesendur svari þeim að nokkrum hluta eða
öllum. Er ritstjórn Melkorku ánægja að verða við þcss-
ari beiðni, og vonar að þú, lesandi góður, inigsir um
málin og sendir svör, og verða þau svo birt í næsta hcfti.
1. Hver voru viðhorf Jnn til kvenréttinda-
mála áður en þú fórst að fá sérstakan
áhuga fyrir þeim?
2. Hvers vegna eru ungar stúlkur tregar
til Jress að vinna að kvenréttindamálum?
Vantar Jrær skilning, eða eru aðrar á-
stæður til Jtess?
3. Hvernig verður áhugi ungra stúlkna á
réttindamálunum bezt vakinn?
4. Hver er ástæðan til þess, að stjórnmála-
menn og 'karlmenn yfirleitt eru skiln-
ingslitlir á réttindamál kvenna og vilja
lítt leggja konum lið í jafnréttisbaráttu
Joeirra?
5. Hvers vegna ertu kvenréttindakona?
6. Hvers vegna heldur þú, að kunningja-
konur Jjínar og nágrannatkonur hjafi
ekki áhuga á kvenréttindamálum, eða
vilji ekki láta áhuga sinn í ljósi með
þátttöku í félagsstarfinu?
7. Hvernig viltu láta meta húsmóðurstörf
þín og störf húsmæðra yfirleitt?
8. Hvaða konur fá, lífs eða liðnar, mest
dugnaðar- og myndarskaparorð?
9. Á livern hátt telur þú, að stjórnarskráin
geti tryggt konum fullt jafnrétti í liví-
vetna?
10. Telur [fú konur ábyrgðarlausari en
karla um stjórnarfarið í landinu?
(Gerðu stutta grein fyrir svari þínu.)
11. Hvers vegna eru svo fáar íslenzkar kon-
ur í opinberum stöðum?
62
MELKORKA