Melkorka - 01.10.1950, Side 19
Fyrsti íslendingurinn sem tekur próf
í fornleifafræði
Viðtal við Ólafíu Einarsdóttur
í augum uútfnia konunnar hlýtur það að líta út eins
og saga altan úr grárri forneskju, að mannúðarkonunni
og rithöfundiniun, Ólafítt Jóhannsdóttur, hafi vcrið
neitað, einungis á þeim forsendum að hún var kona, að
taka I. bekkjar próf í Menntaskóla Reykjavíkur þegar
hún laust fyrir aldamótin bjó sig undir að ganga
menntabrautina.
En eins og kunnugt er var með stofnun Kvenréttinda-
félags íslands hafin skipulögð barátta fyrir jafnrétti
kvenna i þjóðíélaginu og má meðal annars þakka áhrif-
unr þeirrar baráttu að 1911 fengu islenzkar konur sama
rétt og karlar til allra skóla í landinu og allra embætta
með sömu launum og um leið má geta Jress að árinu
áður, 1910, útskrifaðist fyrsti kvenstúdenlinn úr
Menntaskólanuin og var það Laufey Valdimarsdóttir.
Síðan eru liðin 40 ár, cn á þessum tíma hafa konur
meira og minna hópast inn í menntaskólana, tekið stú-
dentspróf og með hverju árinu sem líður halda fleiri
og fleiri áfram löngu háskólanámi annað hvort hér
heima eða erlendis og leggja stund á nýjar og nýjar
fræðigreinar.
Nýlcga hefur ein af „dætrum" Reykjavíkur, Ólafía
Einarsdóttir, 26 ára gömul stúlka lokið prófi í fornlcifa-
fræði og er hún ekki einungis fyrsta konan á íslandi,
heldur fyrsti íslendingurinn, sem tekur slíkt próf. Og í
tilefni þessa viðburðar átti Melkorka stutt viðtal við
ungfrú Ólafíu.
Hvernig stóð d þvi að þér fóruð út í þetta
nám?
Þótt ótrúlegt sé þá var ég ekki helcl ég
eldri en 9 ára þegar mér var það ijóst að ég
vildi vita eitthvað um það, sem verið hafði
áður. Tilefnið var það að í barnaskólanum
áttum við að læra íslandssögu Jónasar Jóns-
sonar og okkur var sett fyrir um fund ís-
lands og það var mynd af víkingaskipi sem
Iieillaði mig. Það opnaðist nýr lieimur fyrir
mér og ég Iiéli áfram að lesa í bókinni
minni þegar ég kom heim og þetta var gam-
Olafía Einarsdóttir
an að læra um. Seinna þegar ég kom í
Menntaskólann braut ég oft heilann um
það t. d. hvernig stæði á því að þjóð eins og
Grikkir komu fram á sjónarsviðið með full-
þroska menningu, og smám saman þroskað-
ist svo hjá mér sú ákvörðun að leggja stund
á fornleifafræði. En eins og við vitum grein-
ir fornsagan frá menningartímabilum áður
en ritaðar heimildir koma til greina — en
eftir það tekur sagnfræðin við og má því
segja að fornsagan sé móðir sagnritunarinn-
ar.
Hvað er þett.a langt nám?
Ég lauk því á 3l4 ári og tók prófið frá
Lundúnarháskóla, en auk þess lerðaðist ég
nokkuð í sambandi við námið, fór til Hol-
lands, Frakklands og Svíþjóðar og um tíma
var ég við uppgröft á fornminjum í Noregi.
Mér féll ágætlega enska háskólalífið og við
sjálfa kennsluna var lögð sérstök alúð við að
við lærðum að vinna. Prófessorarnir sögðu
melkorka
69