Melkorka - 01.10.1950, Side 20

Melkorka - 01.10.1950, Side 20
að það væri ekki nauðsynlegast að kunna svo og svo mikið, heldur notfæra sér þá þekkingu sem maður hefði. Bíða ekki mörg og mikil viðfangsefni hér heima? Jú, auðvitað bíða hér mörg verkefni framundan, en á íslandi eru til ritaðar heimildir um land og þjóð frá því landið byggðist, svo fornleifarannsóknir hér heima fást aðallega við það að gefa fyllri skýringu á sagnfræðinni og gefa fyllri hugmynd af lífi forfeðra okkar. Eru vinnuskilyrðin ekki ágœt i nýja Þjóð- minjasafninu? Við erum ekki búin að koma okkur fvrir ennþá, og verðum ekki búin að flytja fyrr en unr mánaðamót sept.-okt., en satt að segja þegar maður er nýkominn að svona safni fer tíminn í ýmislegt „stúss“ og vill verða í fyrstu lítið um vísindalega starfsemi. Ætlið þér ekki að láta okkur lieyra einhver erincli i útvarpinu í vetur um þessi efni? Þótt ég hefði fegin viljað þá gefst mér áreiðanlega ekki tími til þess. Ég hef hugsað mér að taka fil. lic. í Svíþjóð, það er stig á milli magister og doktors gráðu og vinn ég nú að ritgerð í þeim tilgangi, sem mun taka mig nokkur ár, því ég lief einnig nokkuð mikla aukavinnu fyrir utan starf mitt, en að svona firnrn árum liðnum ætti ég ef til vill að geta farið að koma ,,opinherlega“ fram, segir Ólafía brosandi. Nei, þér sleþþið ekki við sþurninguna al- kunnu i öllum viðtölurn, segi ég, þegar ung- frúin sýnir á sér fararsnið. Er ekki. gaman að vera komin heim? Jú, ætli við hugsum ekki flest eins og Einar Benediktsson: „Til þess flaut minn knör, til þess er ég kominn af hafi.“ Þ. V. Jóhanna Knudsen Eftir AÖalbjörgu Sigurðardóttur ísalands óhamingju verður allt að vopni. „Hefurðu lieyrt að liún Jóhanna Knud- sen er dáin?“ var sagt við mig sumarkvöld eitt, er ég kom heim úr nokkurra daga skemmtiferð. Fregnin hneit mér við lijarta með slíkum sársauka, sem persónuleg eftir- sjá ein liefði ekki getað valdið. Hér var um annað og meira að ræða, ein liin sannasta og lieilsteyptasta dóttir íslands horfin, kona, sem engar fórnir vildi spara, til þess að verja sæmd fósturjarðarinnar. Horlin, á ör- lagatímum, þegar engan góðan dreng mátti missa af verðinum. Ljóðlínurnar frægu, sem ég hef skrifað fyrir ofan þetta greinarkorn, sungu mér í eyrum og hafa gert það síðan, jafnan er ég minnist Jóhönnu Knudsen. Hér verður ekki rakinn æviferill Jó- Jóhanna Knudsen hönnu Knudsen, aðeins minnst þess, sem fastast hefur grópazt í mína vitund í við- kynningunni við hana. Ég minnist hennar 70 MELKORKA

x

Melkorka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.