Melkorka - 01.10.1950, Page 24
35 cm að lengd eru felldar af, 5, 4, 3, 2 , 2
og 4 sinnum 1 lykkja. Þegar svo handvegur-
inn er 18 cm (mælt beint upp) eru felldar
af 19 lykkjur og í næstu 4 umferðum eru
síðustu lykkjurnar af bakinu felldar af.
Boðungur: Fitjaðar eru upp 124 lykkjur
og prjónaður 10 cm breiður snúningur, sem
skiptist í miðju og síðan byrjað á hægra boð-
ungi. Á fyrsta pr. er 6 lykkjum aukið út, 1
lykkja í senn með jöfnu millibili. Frá hlið
prjónast 50 lykkja kafli með munsturprjóni.
Jaðarlykkjan slétt á báðum prjónum. 18
lykkjur eru í slétta kaflanum að framan.
Hliðarmegin er aukið út um 1 lykkju á 2ja
cm millibili, alls 10 sinnum. Fellt af fyrir
handvegi eins og á baki og þegar handvegur-
inn er 12 cm (mælt beint upp) er fellt af fyr-
ir hálsmáli, 5, 4, 3, 2, 2 og 4 sinnum 1
lykkja. Þegar handvegurinn er 19 cm lang-
ur (beint upp) er fellt af öxlinni í tveim
næstu umferðum (byrjað handvegsmegin).
Vinstri boðungur: Prjónist eins og hægri
boðungur, nema 6 lykkjur fitjast upp að
framan (tölulisti), sem prjónast sléttar, á öll-
um prjónum. í hálsmáli fellast þessar 6
lykkjur fyrst af, en síðan er fellt af eins og
á liægra boðungi.
Ermar: Fitjaðar eru upp 70 lykkjur og
prjónaðir 6 pr. garðaprjón, síðan slétt prjón
(annar pr. sl. hinn sn.). í jöðrunum er aukið
út 1 lykkja á 2ja cm millibili, alls 20 sinn-
um. Þegar ermin er 45 cm löng eru felldar
niður beggja megin 3, 2 og 3 sinnum 1
lykkja. Síðan er tekið úr í 4. liverri umferð,
alls 8 sinnum, 10 sinnum í 2. hvorri urnferð
og svo 3var sinnurn felldar af 2 lykkjur, 3 1.
og 4 ]., afgangurinn felldur af í einu.
Hálslíning: Fitjaðar upp 149 lykkjur.
1. pr.: 1 sl. á öllum prjónum, 3 sl., síðan til
skiptis 3 sn. og 3 sl., endað með 1 sl. jaðar-
lykkju. 2. pr.: Sléttu lykkjurnar prjónaðar
sl. og snúnu 1. prjónaðar snúnar. 3. pr.: Jað-
arlykkjan sl., 3 lykkjum sn. slegið upp á
prjóninn, 1 lykkja tekin laus, 2 lykkjur
teknar saman, endurtakist frá byrjun, endað
með 3 lykkjum sn. og 1 sl. jaðarlykkju. Þess-
ir 4 prjónar endurtakist þangað til prjónað-
ir hafa verið 3i/c, cm. Fellt af í snúnings-
bekknum.
Ermalmingar: Prjónist á sama hátt og
hálslíning, nema að fitjaðar eru upp 83
lykkjur. Breiddin er einnig 31/, cm. Þegar
peysan er fullprjónuð er hún pressuð og
saumuð saman. í hálsmál og meðfram hægra
barmi eru heklaðar 3 raðir af föstum lykkj-
um. í 2. röðinni á barminum eru linappa-
götin mynduð þannig, að með jöfnu milli-
bili eru fitjaðar upp 2 lykkjur og tekið yfir
2 lykkjur. Háls- og ermah'ningar saumast á.
Gegnum gataröðina á líningunum er
dregið flauelisband í sanra lit og hnapparnir
á barminum.
Það þarf ekki annað en líta á vaxtarlag konunnar til
þess að sjá að henni er ekki ætlað mikið erfiði, hvorki
andlega né líkamlega. Schopenhauer.
74
MELKORKA