Skutull - 13.04.1945, Qupperneq 7
S K U T U L U
61
Vestfirzkur alþýðufróðleikur.
Landnám Skutulsfjarðar.
Island var orðið albyggt að kalla.
— Þá var það, að maður að nafni
Helgi Hrólfsson tók sig upp að
frændaráði frá búi sinu í Noregi
og hélt til Islands. Móðurætt Helga
var af Upplöndum, en faðir hans
var Hróll'ur úr Gnúpufelli, sem víða
kemur við fornar sögur.
Helgi kom skipi sínu í Eyjafjörð
og var þar þá albyggt orðið. Ætl-
aði Helgi þá að lialda aftur til
Noregs, en lenti í sjóhrakningum
og lileypti að síðustu skipi sínu
inn á Súgandafjörð. Var hann þar
um veturinn með fylgdarliði sínu í
góðu yfirlæli hjá Hallvarði Súg-
anda landnámsmanni. En um vorið
fór Helgi að svipast um eftir
ónumdu landi, því að vetursetan á
Islandi hafði fallið honum vel i
geð og breytt þeirri ákvörðun hans
með öllu að halda aftur til Noregs.
Hélt hann skipi sinu norður á bóg-
inn og inn á Isafjarðardjúp. Þá
hafði Þuríður Sundafyllir numið
land í Bolungavík, en innar með
ströndinni fann Helgi óbyggðan
fjörð. Er hann tók þar land, fann
hann skutil, það er matborð, rekinn
í flæðarmáli, og varð sá atburður
til þess, að hann gaf firðinum nafn-
ið Skutilsfjörður.
Má telja nokkurnveginnn víst, að
Helgi Hrólfsson hafi reist bæ sinn
á Skutulsfjarðareyri.
Sonur Helga hét Þorsteinn, og
hlaut hann viðurnefnið „Ógæfa“.
Lenti hann í inargvíslegum hrakn-
ingum bæði hérlendis og erlendis,
sökum óeirða og mannvíga.
Ekki mun Helgi hafa numið allan
fjörðinn, heldur aðeins vesturhelm-
ing hans, og iná af því marka, að
þegar þetta gerðist voru menn
farnir að verða hóflegri í landtök-
unni, en á fyrstu áratugum land-
námsaldar, enda mjög farið að
þrengjast um landrými, er hér var
komið sögu.
Ekki verður um það vitað með
vissu, hvaða ár Helgi Hrólfsson hóf
hér byggð, en það mun hafa verið
nokkru eftir aldamótin 900 —
sennilega nálægt 920.
Uin landnúm liinumegin fjarðar-
ins segir Landnáma aðeins þetta:
„Þórólfur tírækir nam sunnan
Skutulsfjöró og Skálavík og bjó
þar“.
Finnst mér ástæða til þess að
staldra nokkuð við þessa frásögu.
Það er þá fyrst, að engin vík geng-
nr inn úr Skutulsfirði, og í annan
stað er nú enginn bær, og hefir
ekki verið um margar aldir, við
Skutulsfjörð, með nafninu Skálavík.
Fljótlegast væri því að afgreiða
þessa frásögn Landnámu sem mis-
sögn, en með því að Landnáma
hefir af öllum fræðimönnum verið
talin mjög áreiðanleg heimild, verð-
ur hér gengið út frá því, að frá-
sögnin sé rétt, og sný ég inér þá
að því verkefni að leiða getum að,
hvar þessi umgetua Skálavík við
Skutulsfjörð hafi verið.
Það virðist auðsætt, að landnám
Helga Hrólfssónar jnuni hafa náð
yfir meginhluta fjarðarins að vest-
anverðu. Þeim meginn þarf því
tæpast að leita að landnámsjörð
Þórólfs Brækis. Arnardalur kemur
varla til greina, því að hans er
snemma getið með því nafni, sam-
anber frásögnina í Fóstbræðrasögu
um Þormóð Bessason Kolbrúnar-
skáld og Kolbrúnu liina fögru i
Arnardal.
Er þá varla um annan möguleika
að ræða en Engidalinn, sem geng-
ur í suðvestur inn af botni fjarðar-
ins. Og einmitt þar finnst mér
ýniislegt benda til, að Skálavík sú,
sem Landnámabók nefnir, inuni
hafa verið.
Skal nú drepið á það lielzta, sem
mér finnst benda í þá átt.
Engidalur er grösugasti dalurinn
við Skutulsfjörð. Þar er þvi eðli-
legast að ætla, að landnámsmaður-
inn hafi kjörið sér land.
Sá liluti Skutulsfjarðar, sem
einna lielzt mætti kalla vík, er sú
álman af fjarðarbotninuin, sem
skerst inn á milli Hauganess og
Skipeyrar. Hefir þessi vík að sjálf-
sögðu verið dýpri og gengið lengra
inn í landið l'yrir 1000 árum, því
að framburður úr Engidalsá hefir
myndað þarna miklar leirur langt
út í fjarðarbotninn.
Svo er annað. — Við livaða skip
er nafnið Skipeyri tengt? Er það
ekki einmitt skip landnámsmanns-
ins, sem leitað hefir öruggrar liafn-
ar innan eyrarinnar. — Ekki er það
óhugsandi eða ósennilegt.
Þá kem ég að því, sem mér
finnst skera úr um niðurstöðuna í
leitinni að landnámsjörðinni Skála-
vík við Skutulsfjörð.
Sú jörðin, sem tvímælalaust hef-
ir bezta landkosti við þennan hluta
fjarðarins, er Kirkjuból. Það stend-
ur skammt frá sjó, rétt við fjarðar-
liornið. Einmitt þar er sennilegast,
að Þórólfur Brækir hafi kosið sér
land og reist skála sinn til bráða-
birgða, unz tóm gæfist til bygg-
ingar varanlegra bæjarhúsa.
Sennilegt er, að bæjarlieitið
Skálavík sé dregið af karlkynsorð-
inu „skáti“, og táknar þá víkina,
þar sem landnámsmaðurinn reisti
sltála sinn til fyrstu vetursetunnar
á lslandi.
önnur skýring væri þó hugsanleg
á nafninu Skálavík, og er hún sú,
að liér væri um að ræða eignarfall
fleirlölu af kvenkynsorðinu „skál“.
Ætli þá bæjarnafnið Skálavík að
þýða víkina við „skálarnar". Væri
þessi skýring á bæjarnafninu Skála-
vík rétt, gæti það einnig bent til
þess, að sú Skálavík, sem Land-
námabók getur uin sem landnáms-
jörð Þórólfs Brækis, sé einmitt
Kirkjuból.
Svo hagar nefnilega landslagi
austan Skutulsfjarðar, að inn í fjall-
ið skerast fjórar livilftar eða „skál-
ar“. Heita þær Naustahvilft, lvirkju-
bólshvilft, Rauðkollslivilít og Fossa-
livilft. Þessar livilftar setja lang-
samlega sérkennilegasta svipinn
ó landslagið á þessum slóðum. Má
og ó það benda, að dalur einn í
Aðalvík, sem mjög minnir að löfeun
á þessar hvilftar, lieitir einmitt
Skáladalur. Og í Islandslýsingu
sinni hinni miklu kallar Þorvaldur
Thóroddsen Naustahvilft einmitt
sérkennilega „skál“, sem gangi inn
í fjallið móti Isafjarðarkaupstað.
Sé svo að síðustu hugleitt, hvort
nokkurt þeirra bæjarnafna, sem nú
eru við Skutulsfjörð muni vera frá
síðari tímum, eða hljóti jafnvel að
vera það, þá hlýtur hugurinn að-
eins að staðnæmast við eitl þeirra:
Kirkjuból.
Auðsætt er, að slíkt bæjarnafn er
ekki fró landnámstíð, ekki arfur
heiðinna forfeðra. Það getur ekki
hafa verið gefið þessum bæ, fyrr
en eftir kristnitöku, eða með öðrum
orðum, í fyrsta lagi á elleftu öld.
En það finnst mér óhugsandi með
öllu, að Kirkjuból hafi byggst, síð-
ar en aðrir bæir við Skutulsfjörð.
Móti því inæla landkostir þessarar
jarðar.
En hvað liét þá þessi jörð í heiðn-
um sið? — Því liygg ég, að Land-
námabók svari til fulls. — Hún
hefir óefað lieitið Skálavík.
J\ ---------------0--------
Handan um höf.
Framh. af bls. 57.
is og hinsvegar liafa auðvaldslierr-
ar borgaranna með meira og minna
aíþjóðlegt fjármagn í hönúum, off
oft leppar þess, lialdið verkalýðn-
um í bæjum og borgum í skeíjum
með hervaldi og fasisma. Frá sjón-
armiði þeirra, sem af nokkurri ein-
lægni aðliyllast jafnaðarstefnu og
lýðræði ætti þvi ekki að vera ó-
stæða lil að harma það, þótt auð-
valdinu í þess andstyggilegustu
mynd, eins og það er í þessum
löndum, verði steypt af stóli, jafn-
vel þótt það sé gert í skjóli liinna
rússnesku herja, sem hafa með
óskaplegum fórnum hrifið þessi
lönd undan oki þýzku nazistanna.
Enginn skildi lieidur furða sig á
því, þótt alþýða þessara landa líti
til Rússa sem vina sinna og vernd-
ara og hafi nokkra tilhneigingu til
að taka sér aðferðir rússnesku bylt-
ingarinnar til fyrirmyndar. Sósi-
alistiskar byltingar í Suður- og
Austur-Evrópu, frá Pyrenneaskaga
til Svartahafs og Svartah. til Eystra-
salts ættu ekki aðeins að vera æski-
legar frá sjónarmiði hvers einasta
jafnaðarmanns, þær eru söguleg
nauðsyn, og ættu því að vera æski-
ar frá sjónarmiði hvers einasta
Evrópumanns. Það má vera, að
fleiri en 25 íhaldsþingmenn í
brezka þinginu hafi ástæðu til að
liafa samúð með pólskum og júgo-
slafneskum útlagastjórnum og því
þjóðfélagskerfi, sem þær eru full-
trúar fyrir, en íslenzkir alþýðu-
flokksmenn og blöð þeirra, (sem
ekki eiga jarðarparta eða hlutabréf
á Balkanskaga svo kunnugt sé) liafa
enga ástæðu til þess.
Stríöiö var liáö gegn fasismanum.
— Nýsköpun. — Nýskipun. —
Það er engin óstæða til að
gleyma því, heldur þvert á móti
áríðandi að muna það, jafnvel liér
úti á Islandi, að livað sem segja
iná frá fræðilegu sjónarmiði um
eðli og tilgang þeirrar lieims-
styrjaldar, sem nú hefir verið háð
í nær sex ár, þá hefir alþýðan í
löndum Bandamanna og herteknu
löndunum tekið á sig þær byrðar
og þolað þær fórnir, sem lienni
liafa verið samfara, eingöngu vegna
þess, að því hefir verið haldið að
lienni, að þessi styrjöld sé ekki
aðeins liáð til þess að uppræta
fasisma og ofbeldi á meginlandi
Evrópu, heldur hefir því einnig
verið heitið liátíðlega af æðstu
valdhöfum Bandamanna og öllum
málpípum þeirra, að með henni
skuli endir bundinn á allt ófrelsi
og skort, þ. e. það skipulag eða
skipulagsleysi, sem framleiða ó-
frelsi og skort þjóðunum til lianda,
en rökrétt afleiðing af því „skipu-
lagi“, þegar jiað nær liámarki sínu,
og fulltrúar þess örvænta um fram-
tíð þess, er fasisminn. M. ö. o.:
þjóöunum hefir veriö heiliö nýju
skipulagi, ekki aðeins ,,ný'Sköpun“,
uppbyggingu jiess, sem stríðið hefir
rifið niður, heldur einnig nýskip-
un, nýju þjóðfélagsskipulagi, sem
tryggir alþýðu landanna, að „fas-
ismi“, þ. e. ofbeldisstjórn auðvalds-
sinnaðrar yfirstéttar, geti aldrei
náð yfirráðum í löndum þeirra.
Nú þegar endalok stríðsins í
Evrópu nálgast, hvort sem það
stendur nokkrar vikur eða, eins og
líklegra er, nokkra mánuði enn,
reynir á það, live minnug alþýðan
í öllum löndum er á þessi gefnu
loforð. Hér úti á lslandi er full
ástæða til að fylgjast vel með því,
hvernig alþýðu annarra landa tekst
að innheimta þær bætur, sem
lienni var heitið, fyrir „blóð og
tár“ miljónanna í sex löng stríðsár.
Engin „nýsköpun“, ný liús, ný
skip, nýjar flugvélar, ný tækni,
hversu glæsilegt sem allt það kann
að verða, eru fullnægjandi bætur
fyrir öll þau líf, sem hafá verið
afmáð og allar þær kvalir, sem hafa
verið þolaðar, nema því aðeins að
sú nýsköpun fari fram á nýjum
þjóöfélagslegum grundvelli, að meö
svonefndri „nýsköpun“ fylgi ný-
skipun.
Pólitísk átök næstu óra, hvar-
vetna í heiminum, verða um það,
live víðtæk og róttæk sú nýskipun
verður. 1 þeim löndum, sem búið
hafa við viðunandi málfrelsi og
ritfrelsi á stríðsárunum, hefir nú
þegar verið unnið allmikið að því,
að undirbúa og undirbyggja kröfur
alþýðunnar um þá nýsköpun. Flest
af því hefir farið fram hjá íslenzk-
um blöðum, þeim sem helzt mætli
ætla að teldu það hlutverk sitt að
fylgjast með slíku. „Skutull“ mun
framvegis, eftir því sem hans litla
rúm og geta leyfir, reyna að gefa
lesendum sínum nokkra hugmynd
um ótökin um þessi mál með öðr-
um þjóðum.
Bíó Alþýðuhússins
sýnir:
Föstudag kl. 9
Blessuð fjölskyldan.
(„The Mad Martindales“)
Amerísk kvikmynd frá
20th Century Fox Pictures
Aðalhlutverk: -
Jane Withers
Marjorie Weaver
Alan Mowbrau.
Laugardag og
Sunnudag kl. 9
SÖLARLAG.
(Sundown)
Spennandi og dularfull
mynd frá Austur-Afríku.
1 aðalhlutverkunum:
Gene Tierney
Bruce Cabot
. George Sanders.
Sunnudag ld. 5,
Þjóðhátíð
með
NBLSON EDDY
í aðalhlutverkinu.
Próf í Gagnfræðaskólanum.
Föstudaginn fyrstan 1 sumri, þann 20. apríl hefjast
vorprófin í Gagnfræðaskóla ísafjarðar og verður lokið
annan eða þriðja maí. — Skólaslit fara sennilega fram
5. maí.
Skólastjóri.