Skutull - 16.09.1946, Blaðsíða 3
SKUTULL
3
VERKALÝÐSMÁL. f
Kosningar til Alþýthisambands-
þings.
Fyrir nokkru eru byrjaðar í
verkalýðsfélögunum kosningar á
fulltrúum til alþýðusambandsþings-
ins, sem lialda á í nóvembermánuði
næstkomandi, Fulltrúakosningum
á að vera lokið fyrir 8. október.
Kommúnistar hafa þegar allmik-
inn auglýsingabrag á kosningunum
og stefna bersýnilega að því með
öllum ráðum að halda alræði sínu
yfir Alþýðusambandi Islands.
Við þessu væri heldur ekkert að
segja, ef kommúnisminn ætti
meirihlutafylgi að fagna meSal hins
félagsbundna verkalýSs. E N S V O
E Ii EKKI. Þetta vita kommún-
istar líka vel sjálfih. Þess vegna ó-
nýttu þeir á seinasta alþýðusam-
bandsþingi kosningu margra full-
trúa, sem vitað var að voru al-
])ýðuflokksmenn. Að átyllu voru
hafðir ýmislegir smávægilegir
formgallar á framkvæmd kosning-
anna. — Ellefu stúlkur, sem heima
áttu samkvæmt lögum og sam-
þykktum sambandsins, í einu
þeirra félaga, sem fyrir voru í
sambandinu — voru veitt félags-
og fulltrúaréttindi í byrjun þings-
ins, af því að þær lögðu til komm-
únistafulltrúa o. s. frv.
Þá vitum við það vel, Vestfirð-
iugar, að kommúnistar fengu undir
ísmeygilegum einingar- og sam-
starfsslagorðuin kjörna fulltrúa í
Sjóinannafélagi Isfirðinga, Vél-
stjórafélagi Isafjarðar, í Bolungavík
og á Patreksfirði, þótt allir viti, að
í þessum félöguin eigi þeir sársT-
lítið fylgi.
Með þessu móti tókst kommún-
istum að merja meirihluta á Al-
þýðusainbandsþinginu, með aðeins
fjögurra atlcvæða mun. Þó nutu
þeir í það sinn öflugs stuðnings í-
lialdsmanna við fulltrúakjör og á
þinginu.
Þetta sýnir a. m. k. okkur Vest-
firðiugum vel, að kommúnistar áttu
ekki að réttu meirihluta á seinasta
Alþýdusambandsþingi. Héfian að
vestan áttu þeir t. d. engan full-
trúa að fá.
Og þcir eiga nú livergi að fá full-
trúa á AlþýSusambandsþingiS i
haust, nema þar sem þeir eiga
meirihluta að baki sér í félögunum.
En hvar er það hér á Vestfjörðum?
Það rétta er, að fulltrúarnir á
Alþýðusambandsþinginu séu flokks-
lega séð sem og að öðru leyti í
samræmi ^ið meirililuta síns fé-
lags. — Þá fyrst er það tryggt, að
Alþýðusambandi Islands verði
ekki misbeitt á pólitíska sviðinu,
öndvert og öfugt við meirihluta-
vilja hins félagsbundna verkalýðs.
Og þetta verður að tryggja. Hinn
rétti meirihlutavilji verður að koma
fram með almennri fundarsókn í
félögunum, þegar fulltrúakjör fer
fram.
Koinmúnistisk yfirráð yfir Al-
þýðusambandinu í tvö ár, er dýrt
spaug, sem ekki styðst við nokkurn
lýðræðislegan rétt.
■
s Svo segja
TlMINN birti 6. þ. m. forustu-
grein um hinn myndarlega aðal-
fund stéttarsambands bænda á
Hvanneyri, og lieitir greinin:
Einhuga stétt.
„Aðalfundi stéttarsambands
bænda er lokið. Þar voru fulllrú-
ar bænda úr öllmn héruðum lands-
ins saman komnir, - - menn með
mismunandi skoðanir og viðliorf,
ungir menn og gamlir, sem búa við
liin ólíkustu skilyrði íslenzks land-
Við Vestfirðingar eigum heldur
ekki koinmúnistunum, sem stjórna
Alþýðusambandi Islands, neitt gott
upp að inna. Þeir liafa beitt Sjó-
mannafélag Isafjarðar ranglæti. -—■
Þeir hafa gert tilraunir til að skatt-
leggja félögin á Vestfjörðum um-
fram það, sem lög Alþýðusam-
bands Islands mæla fyrir um, og
þeir hafa meinað Alþýðusambandi
Vestfjarða að gefa út sitt eigið blað.
Ástæðan var sú ein, að þetta blað
túlkaði þá pólitísku stefnu, jafnað-
arstefnuna, stefnu Alþýðuflolcksins,
sem mikill meirililuti verkafólks á
Vestfjörðum aðhyllist.
Á sama tíma leyfa hinir komm-
únistisku forsprakkar Alþýðusam-
bands Islands sér að gefa út komm-
únistiskt áróðurstímarit fyrir of
'fjár, gegn meirihlutavilja meölima
sambandsins.
Svona „réttlæti“ eigum við erf-
itt með að sætta okkur við. Svona
lýðræðishættir eiga ekki við ís-
lenzkt alþýðufólk. Þeir eiga miklu
heldur skylt við kúgun og einræð-
ishneigð.
Verkalýðsstéttin þarf að standa
saman. Tímarnir framundan eru
þannig, að þess hefir aldrei verið
meiri þörf. En bezt verður aðstaðan
á Alþýðusambandsþinginu til ein-
íngar, ef hver pólitískur flokkur
innan samtakanna hefir sem rétt-
ast fylgi á þinginu við fylgi sitt í
samtakalieildinni og ekkert um-
fram það.
Að síðustu vil ég minna á það,
að kominúnistar liafa rekið Verka-
kvennafélagið Framsókn úr Alþýðu-
sambaudi Islands. Þetta er algert
ranglætismál og réttlaust ofbeldi.
Það kemur til kasta þessa Alþýðu-
sambandsþings að koma í veg fyrir
þennan brottrekstur, eða staðfesla
hann.
Þetta hafa kommúnistar gert til
að útrýma nokkrum alþýðuflokks-
fulltrúum af þinginu. En þannig
fara hei&arlegir menn ekki aö því
aö skapa sér mcirihlutaaöstööu.
Ef kommúnistar fá meirihluta
á Alþýðusambandsþingi, verður
brottrekstur Verkamannafélagsins
Framsókn vafalaust staðfestur, þótt
hanu styðjist hvorki við lög eða
rétt.
Þessu verður að afstýra. Allir
réttsýnir verkalýðsmenn og þá sér-
staklega kvenfólkið í verkalýðsfé-
lögunum verður að gera sitt til
þess, að þessu ofbeldisverki komm-
únista verði afstýrt.
Kommúnistar mega að þessu
sinni hvergi fá fulltrúa kosna í
verkalýðsfélögunum, neiiaa þar sem
þeir hafa meirihluta.
Verum árvökur, áhugasöm og
vakandi. Sækjum vel fundi verka-
lýðsfélaganna, og alveg sérstaklega
þegar hinar örlagaríku fulltrúa-
kosningar fara fram. Og gætum
þess, að kosningunni sé í einu og
öllu hagað eftir fyrirmælum al-
þýðusambandslaga, svo að engir
fulltrúar verði sviptir rétti sínum
þess vegna.
hin blöðin. ■
búnaðar.
' Ýmsir gerðu sér vonir um það,
að fundur bændanna yrði rifrild-
issamkoma, þar sein menn körpuðu
um ýms atriði, siná og stór, og
skildu ósáttir. Það eru svo margir,
sem telja sig liafa hag af því, að
bændastéttin sé sundruð.
Stofnfundur Stéttarsambandsins
á Laugarvatni i fyrra gaf óvinum
bændanna nokkrar vonir í þessum
efnum. Þar var ágreiningur um
Timbur er nú komið bæði til
Kaupfélags Isfirðinga og Ragnars
Bárðarsonar. Er næsta bagalegt, að
byggingarvörur skuli ár eftir ár
vera liér ófáanlegar á vorin er
menn vilja hefjast handa um bygg-
ingar. Mundi margur fagna því, ef
unnt væri að fá á því lagfæringu,
og fá timburbirgðir ársins undir
sumar en ekki vetur.
Á vegum mæörastyrksnefndar
fóru 28 konur í skemmtiför vestur
að Núpi' í Dýrafirði fyrra sunnud.
Konur úr kvenfélögunum í bænum
stóðu fyrir förinni.
Á Núpi höfðu konurnar alllanga
viðdvöl, og skoðuðu þar skólann
og staðarprýðina „Skrúð“. Þar
lilýddu þær einnig messu hjá séra
Eiríki J. Eiríkssyni. Á heimleið var
komið við að Mýrum og síðan að
Holti, fæðingarstað Brynjólfs bisk-
ups Sveinssonar. Þar skoðuðu þær
kirkjuna og kirkjugarðinn, en síð-
an var haldið til Flat^yrar. Þar
stóðu nokkrar konur úr Kvenfélag-
inu fyrir móttöku. Var konunum
sýnd liin snotra Flateyrarkirkja.
Heim komu konurnar um kl. 11 um
kvöldið. Veður var ágætt og
skemmtu konufuar sér prýðilega.
Fundur um tryggingamál. Þann
11. þ. m. mættu hér í bænum til
fundar allar hreppsnefndir i Norð-
ur-lsafjarðarsýslu. Verkefnið var,
samkvæmt ákvæðum laganna um
almannatryggingar, að kjósa fimm
manna trygginganefnd. Fór nefnd-
arkosningin fram á fundinum, og
hlutu kosningu:
Páll Pálsson bóndi, Þúfum, Ingi-
mar Bjarnason oddviti, Hnífsdal,
Kristján Ólafsson bóndi, Geirastöð-
um, Hallgrímur Jónsson bóndi,
Dynjanda og séra Óli Ketilsson,
Hvítanesi.
Nefndin kaus Pál Pálsson sem
formann sinn.
Áki Jakobsson ráöherra hefir
verið staddur hér í bænura nokkra
undanfarna daga. Um erindi hans
er blaðinu ókunniigt.
formsatriði, enda ekki til sparað af
sumum, sem utan við stóðu, að ala
á allri misklíð og reyna að vekja
tortryggni.
En fundurinn á Hvanneyri nú
var mótaður af einhug sameinaðrar
stéttar. Þar voru menn, scm fundu
til þess, að þeir urðu fyrst og
fremst að standa saman um málefni
landbúnaðarins. Þeim var það ljóst,
að samheldni og styrkur bænda-
stéttarinnar var aðalatriðið . . .
En þetta er þó ekki sérmál bænd-
anna, sem ekki komi öðrum við.
Allir þeir, sem unna islenzlíum
Jandbúnaði og jafnvægi í þjóðlíf- ■
inu, liljóta að taka einingu bænd-
anna mefe fögnuði, því að það er
bændastéttin ein, sem hefir að-
stöðu til þess að verja hlut sinn
og rétt. Því munu • allir þeir, sem
hafa samúð með íslenzkum land-
búnaði og telja liann þjóðarnauð-
syn, fagna einingu bændanna.
Hvanneyrarfundur Stéttarsam-
bands bænda sýnir skilning bænd-
anna á aðalatriðunum, félagsþroska
þeirra og einliug á þann hátt, að
það gleður alla hófsama og góð-
gjarna menn, sem unna jafnvægi og
heilbrigðum alliliða vexti í þjóð-
lífinu“.
Knattspyrnufélagiö Vestri átti 20
ára afmæli þann 20. ágúst síðast-
liðinn.
Eldur kom upp i botnvörpungn-
um Þór frá Flateyri, er hann lá á
Reykjavíkurhöfn í fyrri viku. Tókst
fljótlega að slökkva eldinn, en samt
urðu nokkrar skemmdir á skipinu
af völdum elds og vatns. Þrír menn
brenndust nokkuð við slökkvi-
starfið, en enginn þó alvarlega.
Knattspyrnumót Vestfjarða i
fyrsta flokki var háð hér á lsafirði
1. þessa mánaðar.
Hörður og Vestri kepptu. Varð
Hörður sigurvegari með tveimur
mörkum gegn engu.
Vestfjaröamót í frjálsum íþrótt-
um var háð á Isafirði dagana 7. og
8. september. Keppendur voru 22
frá þremur félögum: Herði, Vestra
og Ungmennasambandi Vestur-
Barðastrandarsýslu.
Á móti þessu setti Guðmundur J.
Sigurðsson vestfjarðamet í 400 m.
hlaupi á 54,9 sek. Einnig settu þeir
Guðmundur Hermannsson og Mágn-
ús Guðjónsson ný vestfjarðamet í
kúluvarpi og þrístökki, og er þess
getið á öðrum stað^ í blaðinu.
Hörður varð sigurvegari mótsins
með 90 stigum, Vestri fékk 41 stig,
Ungmennasamband Vestur-Barða-
strandarsýslu 15 stig.
Flugbrautin í Suðurlanga er nú
fullgerð. Komu flugmálastjóri og
flugmálaráðherra hingað fyrir
nokkrum dögum og litu á verkið.
Nokkur bót er að því að fá flug-
brautina, en mikils er þó vant,
meðan ekki er byrjað á flugskýlinu
sjálfu. Verður að vænta þess, að
ekki verði mikill dráttur á bygg-
ingu þess.
Þá er það og sýnt, að bíl þurfa
flugfélögin að hafa liér eins og í
Reykjavík til farþegaflutnings, ef
ekki eiga að verða verulegar tafir
af því, að fólk verði að ganga alla
leið ofan í Suðurtanga.
Mulningsvél bæjarins hefir verið
sett niður uppi á Seljalandsmúla.
Reknetáveiöi. Dágóður síldar-
afli hefir nú verið að undanförnu
á Húnaflóa í reknet. Eru Hugins-
bátarnir allir, svo og Richard og
Grótta og tveir af bátum Samvinnu-
félagsins farnir á reknetaveiðar og
leggja upp afla sinn á Hólmavík.
Skólimefndin hefir nú mælt með
þvi, að þessir menn verði, auk þess
sem áður hafði verið ákveðið, sett-
ir kennarar við Gagnfræðaskólann
til eins árs:
Ólafur Björnsson,
Albert Sigurðsson,
Ólafur Guðmundsson,
Guðinundur Árnason,
Steinþór Kristjánsson.
Samkvæmt lögum ber skólanefnd
að mæla með tveimur í hverja
stöðu, og hefir það verið gert.
Kaupgjaldssamningum Verka-
lýðsfélagsins Baldur var sagt upp
um seinustu mánaðamót með eins
mánaðar fyrirvara.
Nokkur skip lialda ennþá áfram
síldveiðum með herpinót. Hafa þau
fengið nokkurn afla á Skagafirði
seinustu dagana.