Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Nov 1995, Page 1
ES FRÉTTABRÉF
SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS í REYKJAVÍKOG NÁGRENNI
NÚMER16 -1. TBL. - APRÍL 1995 T (h^íf 7
í RÚGBRAUÐSGERÐINNI 4. NÓV. NK.
Loksins - loksins - loksins
n
koma Fílapenslarnir frægu frá Sigló til okkar, hér
fyrir sunnan, ásamt Miðaldamönnum og ætla þeir
að skemmta okkur laugardaginn 4. nóvember
nk. í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6.
Frá því fyrir fjórum árum, þegar Fílapenslarnir
komu fyrst fram hér í Reykjavík, hafa þeir gert sig
ódauðlega á Siglufirði og víðar. Allir sem í þeim
hafa heyrt eru agndofa, því ekki bera þeir það
með sér að vera skemmtilegir! En það verður að
viðurkennast að þeir, þ.e.a.s. Finni FFauks, FFöddi
Júll, Steini Sveins og bræðurnir Oli og Tommi
Kárasynir, sem skipa Fílapenslana eru betri en Enginn!
eins og Bjarni Fel. myndi segja! FFver hefur ekki heyrt
þá taka lagið hans Bjössa Birgis, „Anna Lára Bryndís
Bára, frænka mín og Lalli Blöndal
nú eða þá Lindin tær?
Þeirra aðalsmerki er söngur, háð
og grín, sérstaklega eru þeir
leiknir í að koma Stjána Möller
og félögum á Siglufirði á óvart!
Kannski taka þeir alþingisatriðið
hans Jóns Sæm. eða stæla frá Óla
Bald en líklega taka þeir formann
Síldarballsnefndar fyrir, Matta
Kristjáns.
Hver er þetta?
Kannski Jónas
Valtýsí
, felubúninqi? .
Húsið opnar kl. 21:00.
Fílapenslarnir skemmta kl. 23:00
Hljómsveitin Miðaldamenn, með
Stúlla Kristjáns í fararbroddi
skemmtir fram eftir nóttu.