Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1996, Blaðsíða 17
Siglfirðingar halda
lj ósmyndasýningar
í Reykjavík
Tveir Siglfirðingar halda Ijósmyndasýningar í
Ijósmyndaþjónustunni Myndás, Laugarásvegi
1 (gamla „konuríkinu) nú í haust
Björn Valdimarsson opnaði sýningu sína þann 28. sept-
ember og stendur hún til 18. október. Sama dag og Siglfirð-
ingafélagið heldur upp á 35 ára afmæli sitt þann 19. október
mun Sveinn Hjartarson svo opna sýningu og verður hún
opin til 6. nóvember. Eftir það munu þeir Björn og Sveinn
sýna saman heima á Siglufirði.
Stór hluti mynda þeirra Björns og Sveins er tekinn á
Siglufirði. Um er að ræða bæjarlífsmyndir og myndir sem
Siglfirðingar sitja fyrir á. Björn sýnir litmyndir, en Sveinn
svarthvítar myndir.
Sýningarnar eru opnar virka daga kl. 10-18 og laugardaga
kl. 10-16. Félagar í Siglfirðingafélaginu eru sérstaklega
boðnir velkomnir á þær og rétt er að benda á að tilvalið er
að hefja afmælisfagnaðinn þann 19. október með því að
mæta kl. 14:00 við opnun ljósmyndasýningar Sveins
Hjartarsonar.
fc'" .V
■
Ljósmyndir: Litmynd af torginu: Björn Valdimarsson og
svarthvít af Asa Björns og Gesti Frímanns; Sveinn
Hjartarson.
Sérsmíðum i
Smíðastofan BEYKI ehf. er þekkt fyrir hágæða sérsmíði
og vandaðan frágang. Hjá smíðastofunni vinnur
úrvals fagfólk sem lætur sér annt um óskir viðskiptavinarinv-
Sala og sérsmíði
NORDIA kerfisveggja fyrír
stofnanir og fyrírtæki.
SHiflASTOFAN
e
h
f
Tangarhöfða 11, 112 Reykjavík, sími 587 9322, fax 587 2805
17