Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 1997, Blaðsíða 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 1997, Blaðsíða 8
Bátíðin hófst nieð ljúffengum fordrykk á Hótel Sögu kl. sjö. Meðan fólk dreypti á, var í gangi myndasýning, þar sem gaf að líta myndir frá Siglufirði og vöktu þær mikla lukku. Voru þessar myndir fengnar að úr ýmsum áttum, m.a. frá Júlla Jóns og Kristjáni Möller. Meðal dagskráratriða á hátíðinni var að heiðraðir voru þrír Siglfirðingar, þau Ólafur Ragnarsson, Asta Einarsdótt- ir og Heiðar Ástvaldsson, sem starfað hafa ötullega í félag- inu. Hlutu þau gullmerki félagsins og að auki mynd eftir Ragnar Pál. Þegar fólk hafði lokið við dýrindis mat voru ýmis skemmtiatriði á dagskrá, m.a. komu dansarar frá Dans- skóla Heiðars Ástvaldssonar og dönsuðu snilldarlega, Val- geir Guðjónsson kom og skemmti, Hallvarður Óskars söng frumsamið lag og texta eftir þá bræður Þorstein og Björn Birgissyni, Karl Guðlaugs (Gulla Kalla), Siggi Hlöðvers (skólastjóra) og Helgi Pálsson (Palla Helga) þeyttu lúðra sína af mikilli snilld. Og síðast en ekki síst tróð Kvennakór Siglufjarðar upp og söng frábærlega, enda var þeim sérstak- lega fagnað. Á milli atriða gerðu þeir Steini Birgis og Óli Bald, skemmtinefndarmenn, góða lukku. Mikið fjölmenni var á þessari hátíð og kom fjöldi manns frá Siglufirði. Tókst hún í alla staði vel og hefur þegar verið ákveðið að halda aðra hátíð, þó ekki afmælishátíð, heldur árshátíð á hausti komanda, þ.e. laugardaginn 20. sept- ember á Hótel Sögu (sjá baksíðu). Er von þeirra sem áhuga hafa að halda lífi í félaginu, að næg þátttaka fáist svo grundvöllur verði fyrir áframhaldandi skemmtunum einu sinni á ári. 8

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.