Vesturland - 24.12.1956, Page 8
8
VESTURLAND
Eyjólfur Bjarnason:
Rafmagnsiðnin er skemmtileg iðngrein
Eitt nýjasta fyrirtækið í þessum
bæ er Raftækjaverkstæðið og
verzlunin Straumur, sem tók til
starfa nú í haust. Það er því ekki
úr vegi að ræða andartak við eig-
andann, Eyjólf Bjarnason, og skul-
um við þá fyrst spyrja hann, hvað
hann vilji segja okkur um iðngrein
sína.
—Rafmagnsiðnin er að sjálf-
sögðu mjög fjölbreytt og skemmti-
leg iðngrein, þó að hún hafi sínar
takmarkanir. Og hugðarefni hvers
rafvirkja er að sjálfsögðu að nema
sem mest í sínu fagi. Annars er
orðið rafvirkjun mjög víðtækt, þar
sem rafvirkjunin grípur inn á svið
margra annara iðngreina. Sem
góður rafvirki þarf maður helzt
að vera liðtækur sem járnsmiður,
trésmiður og rennismiður, þó að
maður geti að sjálfsögðu leitað sér
menntaðra fagmanna, ef í harð-
bakkann slær.
— Annars hefi ég starfað lítið
hér í bænum, því að ég hefi sótt
mína atvinnu að mestu til Súg-
andafjarðar síðan ég byrjaði að
vinna sjálfstætt. Hefir mér verið
mikil ánægja að samstarfinu við
Súgfirðinga og vona, að báðir hafi
notið nokkurs góðs af. Ég veit, að
Súgfirðingum er brýn nauðsyn á
að fá rafvirkja, sem þar sé stað-
settur allt árið og vona ég, að
þeim takizt að fá slíkan mann.
Lögheimili mitt er að sjálfsögðu
hér á ísafirði og ég geri ráð fyrir,
að þar verði athafnasvæði mitt
fyrst og fremst. Ég mun þó alltaf
'hugsa með hlýjum huga til Súg-
firðinga og reyna að gera þeim
svo gott, sem geta mín leyfir.
— Hver eru mestu áhugamál
þín, Eyjólfur?
— Að sjálfsögðu er það áhuga-
mál hvers og eins manns, sem að
sjálfstæðum atvinnurekstri stend-
ur, að afkoma almennings sé sem
ákjósanlegust, því að sjálfsögðu
eigum við afkomu okkar undir vel-
gengni samborgaranna.
— En þegar afkomu fyrirtækis-
ins sleppir, hvað kýstu þá helzt
að gera við tómstundirnar?
— Ja, áhugamálin eru að sjálf-
sögðu mörg, en tíminn takmark-
aður. Ég hefi t. d. alltaf haft
áhuga fyrir íþróttum og þær eru
alltaf ofarlega í huga mínum og
þó maður hafi takmarkaðan tíma,
til að sinna hugðarefnum sínum,
reynir maður alltaf að gefa sér
tíma, þó að ekki sé nema til að
slá bolta í badminton, sem er ein
skemmtilegasta íþróttagrein, sem
ég hef stundað, að öðrum íþrótt-
um ólöstuðum. Vona ég, að hún
eigi mikla framtíð fyrir sér hér í
bæ.
Hvað er skemmtilegasta bók,
sem þú hefur lesið?
Það er nú erfitt að svara því
alveg ákveðið, en ég hefi miklar
mætur á öllum kvæðabókum og ég
held, að ég hafi lesið ,,Þyma“ Þor-
steins Erlingssonar bóka bezt.
Lengst af hefi ég líka getað lesið
bókina „I djörfum leik“ með
óblandinni ánægju.
— Segðu mér þá, Eyjólfur,
finnst þér gaman að ferðalögum?
— 1 eðli mínu er ég ekki túr-
isti og hefi ekki þá löngun til
ferðalaga, sem margir virðast hafa
nú til dags, þó ég hafni að vísu
aldrei skemmtilegri ferð. Ég kýs
hins vegar að nota frístundir mín-
ar í margt annað.
Að síðustu vildi ég fá að nota
tækifærið, til að óska samborgur-
um mínum gleðilegra jóla og alls
hins bezta á nýja árinu, segir Eyj-
ólfur Bjarnason að lokum.
Jón Páll.
Cr fiskmóttöku Hraðfrystihússins Norðurtangi hf.
c iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiatiaiiiifii!iiiiiiiiiiiiiiii:iiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiii.n
| Óskum öllum viðskiptavinum §
gleðilegra jóla og gæfuríks nýárs. |
Þökkum samstarfið á líðandi ári. |
\ Solumiðstðð hraðfrjrstiMsanna (
Reykjavík. =
iiui !«utiiaii4iiiiiiiiii.iiiiiiiiii:ia!iiiiiiiiiiiiii4iiiiiniiiiiiiiiii
luiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiaiiiiiiiiaiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
li:i|llllllilli'lillllliill'llllllllll:llllllllllllllllllllllllll'l|i||l|||||||||||||||||||llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllhl|||||||||||||illlllllllll
Samlag Skreiðarframleiðenda
Reykjavík.
Óskar öllum viðskiptamönnum sínum
gleðilegra jóla og farsæls nýárs.
illltlllllllMlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllHllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
— Þú hefir þá ekki í hyggju að
yfirgefa „fýrplássið" í bráð?
—Nei, ekki meðan heilsan og
lífsgleðin endast mér. Ég get ekki
verið í landi. Ég hefi verið meiri-
hlutann af lífi mínu á sjónum og
kann ekik við mig í landi. Ég hefi
farið á handfæri nokkur sumur,
en strax og hausta tekur stefnir
hugurinn út á Halann. Ég kann vel
við mig hér á Sólinni, líkar vel við
skipstjórann og skipshöfnina og þá
er mikið fengið, því að skipshöfn-
in er okkar önnur fjölskylda.
^lllllllllllllllllllllllllllllllll II111111111111111111111111IIIIII1111111111IIIIIIIIIIIIIIIII1111111111II111111111III ■lll,lllll|llllllllllllllllllllll|lllllllllllli|||l||||||||||||ll,llllllllllll|illlllllllliilllllll||l||||||| 111111111111111II
Solusamband íslenzkra fiskframleiðenda
= þakkar framleiðendum á Vestfjörðum ágætt |
| samstarf á líðandi ári og óskar þeim |
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. |
lllltllMlllllllliailllllliauilllillHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllliillliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiigiiiiigiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiliiliiiiiiiiiiigiigiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiigniiiini/