Vesturland - 24.12.1956, Page 9
VESTURLAND
9
Mfrystmgin hefur skapað þáttaskil
í fiskiðnaðinum.
Fiskiðnaðurinn er ein þýðingar-
mesta grein íslenzkrar iðnaðar-
framleiðslu, enda er þar um þá iðn-
grein að ræða, sem Islendingar
hafa mesta möguleika til að stunda
í samkeppni við aðrar þjóðir. Það
er þó ekki fyrr en eftir 1930 að um
verulegan fiskiðnað er að ræða hér
á landi. Allt fram til þess tíma var
fiskiðnaður okkar Islendinga held-
ur fábrotinn og fiskurinn að veru-
legu leyti fluttur út óunninn úr
landi. Á síðari árum hefir verið
lögð aukin áherzla á að koma meiri
fjölbreytni inn í fiskiðnaðinn. Þær
greinar fiskiðnaðarins, sem mest
áherzla hefir verið lögð á að efla,
eru frystiiðnaðurinn og síldariðn-
aðurinn.
Hraðfrysting fisks hófst hér
fyrst um 1930 en undanfari hrað-
frystihúsanna voru klakahúsin —
íshúsin — eins og þau voru nefnd
í daglegu tali.
Snemma fór að bera á þörf fyr-
ir beitugeymslur og fyrstu íshús-
in voru fyrst og fremst byggð í
því skyni að geyma beitu. Fyrsta
íshúsið hér á landi tók til starfa
vorið 1895. Var það reist af „ís-
félaginu við Faxaflóa", sem var
hlutafélag, stofnað aðallega af út-
gerðarmönnum.
Strax árið eftir lét Ásgeirs-
verzlun byggja hér íshús. Var ísa-
fjörður þannig annar staðurinn á
landinu, sem eignaðist íshús. Var
það venjulegt klakahús, sem notað
var handa viðskiptamönnum verzl-
unarinnar og til beitugeymslu fyr-
ir færabátana. Er þetta íshúsið í
Neðstakaupstað, sem Hafnarsjóð-
ur Isafjarðar eignaðist með
Neðstakaupstaðareigninni, er eign-
ir hinna Sameinuðu íslenzku verzl-
ana voru seldar. Voru settar
frystivélar í húsið um svipað leyti
og hafnarsjóður eignaðist það, og
hefir það ávallt verið notað til
beitugeymslu fyrir bátaútveginn.
Árið 1908 stofnuðu svo margir
Ísfirðingar og Djúpmenn Ishúsfé-
lag ísfirðinga. Voru aðalhvata-
menn að stofnun þess þeir Árni
Gíslason, Jón Auðunn Jónsson og
Ólafur Davíðsson.
Félag þetta lét reisa frystihús
það, sem stendur við Fjarðar-
stræti. Þetta var venjulegt íshús
eða klakahús, en árið 1929 voru
settar frystivélar í húsið. Sjö ár-
um síðar eða 1936 voru svo sett
frystitæki í húsið og var það því
fyrsta hraðfrystihúsið og um skeið •
eina hraðfrystihúsið í þessum bæ.
Síðan hafa miklar endurbætur og
breytingar verið gerðar á húsinu.
Bæjarsjóður Isafjarðar keypti
hlutafé félagsins 1952 og hefur átt
það og rekið síðan í hlutafélags-
formi. Hefur starfsemi Ishúsfélags
ísfirðinga h.f. mjög verið aukin
hin síðustu ár með nýbyggingum
og breytingum, sem mjög auka af-
kastagetu hraðfrystihússins.
Iiraðfrystihúsið Norðurtangi h.f
var stofnað árið 1942. Aðalfrum-
kvöðull að stofnun þess félags var
Hálfdán Hálfdánarson frá Búð.
Gerðist hann framkvæmdastjóri
félagsins og stjórnaði því af stór-
hug og dugnaði til dauðadags. Lét
félagið þegar reisa frystihús í
Norðurtanganum, og tók það til
starfa árið eftir.
Eftir fráfall Hálfdáns Hálfdáns-
sonar gerðist Ingólfur Árnason
framkvæmdastjóri Norðurtangans
h.f. og hefir fyrirtækið vaxið mjög
undir hans stjórn.
Á árunum 1951 og 1954 voru
gerðar miklar breytingar á húsinu
og frystitækjum fjölgað, en frá
árinu 1950 hefir árlega verið unn-
ið meira og minna að breytingum
og endurbótum á vinnusölum húss-
ins og vinnuskilyrði bætt stórlega.
Hefur framleiðslugeta hússins því
Úr flökunarsal Norðurtangans h.f. Fremstur á myndinni til
vinstri er Júlíus Geirmundsson, en til hægri er hinn kunni
trilluformaður, Bæring Þorbjörnsson, að vinna við roð-
flottingarvélina.
Hér eru þeir Lúðvík Kjartansson og Jón Eggertsson að taka
fiskblokkirnar úr frystitækinu. Síðan eru fiskblokkirnar sett-
ar í pappaöskjur og geymdar í frystigeymslum hússins, þar til
þær fara í skip, sem flytur þær á erlendan markað.
aukizt verulega á þessum árum.
Á árunum 1953—1954 lét Norð-
urtanginn h.f. reisa myndarlegt
fiskmóttökuhús fyrir neðan Sund-
strætið Á efri hæð þess húss var
síðan komið fyrir ísframleiðslu
með tveim ísvélum, sem hvor um
sig átti að geta framleitt 5 tonn
af ís á sólarhring. Nú er fyrirtækið
enn að auka ísframleiðsluna. Er
nú verið að setja upp nýja ísvél,
sem á að geta afkastað 20 tonnum.
í Norðurtanganum eru nú 6
frystitæki, og hefir fyrirtækið
fiskgeymslur fyrir 12 þús. kassa
af fiskflökum.
Allt frá því að Hálfdán í Búð
hóf starfsemi sína í Norðurtang-
anum árið 1943 hefir fyrirtækið
verið stór þáttur í atvinnulífi þessa
bæjar, og hefir hlutur þess í heild-
ai’framleiðlu landsmanna farið
vaxandi með hverju árinu sem líð-
ur. Á árinu 1955 framleiddi Norð-
urtanginn h.f. 1.018 tonn af fisk-
flökum eða 2,32% af heildarfram-
leiðslu þeirra frystihúsa, sem nú
eru í samtökum S. H. Það ár var
heildarframleiðsla frystihúsanna á
Vestfjörðum, þeirra sem eru innan
S. H., 7.861 tonn eða 18,9% af
heildarframleiðslunni.
Úr pökkunarsal frystihússins. Hér eru flökin gegnumlýst,
snyrt og sett í öskjur af ýmsum gerðum og stærðum, en
síðan fara þau inn í frystitækin. (Ljósm.: Jón Páll.