Heilbrigðismál - 01.09.1987, Blaðsíða 11
sjúkdómum á áttunda áratugnum,
og er talið að helsta ástæða þess sé
bætt greining og meðferð háþrýst-
ings.3 Allra síðustu ár hefur enn
dregið úr þessum sjúkdómi hjá
konum, en hjá körlum stendur
hann í stað sem dánarorsök.
Lungnabólga. Hér áður fyrr var
lungnabólga algeng dánarorsök
ungbarna en mjög hefur dregið úr
því síðustu ár og áratugi. Ekkert
barn á fyrsta ári hefur dáið úr
lungnabólgu síðan 1978. Fólk sem
deyr nú úr lungnabólgu er flest
mjög fullorðið, meira en helmingur
er 85 ára eða eldri. Virðist tíðnin
hafa minnkað nema í allra elstu ald-
ursflokkunum. Þó að lungnabólga
Efslysatíöni áranna 1971-75 hefði hald-
ist óbreytt næstu tíu ár þar á eftir hefðu
banaslys orðið 400fleiri en raun varð á.
Á einum áratug hefur þannig tekist,
með slysavörnum, að bjarga álíka mörg-
um og búa í þrem stórum sambýlishús-
um eða í litlu sjávarþorpi.
sé aðeins orsök 7% allra dauðsfalla
veldur hún 16% dauðsfalla meðal 85
ára og eldri.
Ungbamasjúkdómar tákna hér
„meðfæddan vanskapnað og tiltek-
ið ástand sem á upptök á burðar-
máli", eins og segir í sjúkdóma-
skránni.2 í þessum sjúkdómaflokki
eru nær eingöngu dauðsföll á fyrsta
ári og tekur hann til þriggja af hverj-
um fjórum dauðsföllum á þeim
aldri. Dánartíðnin fer lækkandi og
endurspeglar þann mikla árangur
sem náðst hefur við að hindra ung-
barnadauða á síðustu áratugum og
byggir ekki síst á bættri mæðra-
vernd og nýburaþjónustu.4
Krabbamein. Greind eru um 730
ný tilfelli af krabbameini á ári og um
390 íslendingar deyja ár hvert úr
DÁNARTÍÐNI ÚR
HEILABLÆÐINGU 0. FL.
Dánir á ðri af 100.000
DÁNARTÍÐNI 0R
LUNGNAB0LGU
Dánir á ári af 100.000
19
71
Karlar
Konur
19
73
19
75
19
77
19
79
19
81
19
83
19
85
HEILBRIGÐISMAL 3/1987 11