Heilbrigðismál - 01.09.1987, Blaðsíða 26
HEILBRIGÐISMÁL / Ljösmyndahnn (Jóhannes Long)
Æfingar fyrir alla, 3. hluti:
Axlateygjur og hálsæfingar
Leiðbeiningar eftir Valdimar Örnólfsson
Tvær fyrstu myndirnar sýna ein-
faldar axlateygjur sem báðar eru í
sama dúr, önnur með hendur fyrir
ofan og aftan hnakka (17. mynd),
hin með hendur í hökuhæð (18.
mynd).
í báðum æfingunum notum við
handafl til þess að teygja á axla-
vöðvum og togum til skiptis með
hægri og vinstri hendi.
Frá og með 19. mynd eru sýndar
allar helstu hálsæfingar að undan-
17. Vinstri hendi smeygt aftur fyrir
hnakka (efliðleiki leyfir, annars yfir höf-
uð). Gripið er með hægri hendi um oln-
boga vinstri handar, togað í og prýst að-
eins niður um leið með hægu jöfnu
átaki. Notið tækifærið oggerið litla hlið-
beygju um leið eins og sýnt er á mynd-
inni. Skiptið svo um hendur oggerið æf-
inguna á hina hliðina. Ef menn eru
mjög stífir i öxlum er ágætt ráð að grípa
saman höndum yfir höfði í stað olnboga-
gripsins. Endurtekið fjórum til sex
sinnum.
skildum höfuðveltum í hringi sem
bíða næsta blaðs. Þessar æfingar
verður að gera hægt og gætilega.
Þær eru bæði liðkunar- og teygju-
æfingar. Gott er að temja sér að telja
rólega upp að tíu í hverri æfingu
(hverri teygju). Endurtakið hverja
teygju fjórum til sex sinnum og auk-
ið álagið smám saman með aðstoð
handaflsins eins og þið sjáið að gert
er á myndunum. Slakið vel á milli
æfinga.
Valdimar Örnólfsson er fimleika-
stjóri Háskóla íslands.
Fyrri greinar íþessum flokki birtust í
4. tbl. 1986(axlaæfingar)ogl. tbl. 1987
(fleiri axlaæfingar).
18. Sams konar æfing, en hendi haldið
fyrirframan höfuð í hökuhæð. Setjið lóf-
ann undir olnbogann, eins og sýnt er,
og ýtið áhann suo að höndin nái niður á
bak. Skiptið um hendur og endurtakið
æfinguna fjórum til sex sinnum.
19. Hálsvinda. Horft eins langt og
hægt er yfir hægri og vinstri öxl til
skiptis. Munið að telja hægt upp að tíu í
hverri teygju.
20. Sama æfing, en álagið aukið og
vindan gerð til hins ýtrasta án þess að
valda sársauka, með því að ýta með
hendi á höku og halda svo mátulega fast
á móti höfuðhreyfingunni fram.
26 HEILBRIGÐISMAL 3/1987