Heilbrigðismál - 01.09.1987, Blaðsíða 28
Kapphlaupið við klukkuna
Hefur þú taumhald á tímanum
eða hefur tíminn tök á þér?
Grein eftir Eirik Örn Arnarson
Spenna og streita stafa oft af illa
skipulögðum tíma og ómarkvissum
vinnubrögðum. Streita nærist á
stöðugri óvissu um það hvað maður
eigi að taka sér fyrir hendur næst. Ef
við vitum ekki hvert við erum að
fara, endum við venjulega á allt öðr-
um stað en við hefðum kosið. Ferð-
in er án fyrirheits, farin í erindis-
leysu. Allt of margir íslendingar
„æða um í kapphlaupi við klukkuna
og sjálfa sig", eins og segir í dægur-
lagatexta.
Lærðu skipulagningu!
Hvernig getur þú náð tökum á
tímanum? Grundvallaratriði er að
skipuleggja. Annars verður erfitt að
búa sig undir framtíðina og mæta
henni. Mikilvægt er að gera sér
grein fyrir því hvað maður vill og
hvernig maður ætlar að ná því
marki. Tíminn líður án tillits til þess
hvort við erum undir það búin eða
ekki. Hvernig færi ef engin stunda-
skrá væri í skólum, ekki liði á löngu
þar til allt færi í handaskolum.
Ef þú getur gert þér grein fyrir
þeim kröfum sem gerðar verða til
þín áttu auðveldara með að mæta
þeim og daglegt álag veldur síður
streitu. P>ví er mikilsvert að . . .
. . . setja sér markmið eða skil-
greina þau markmið sem þú hefur
nú þegar sett þér,
. . . skipta markmiðum í áfanga,
. . . ákveða hvað gera skuli í hverj-
um áfanga.
Fylgstu með framganginum
Fyrst verður þú að gera þér grein
fyrir því hvaða markmiðum þú vilt
ná í lífinu. Gerðu lista yfir markmið.
Skrifaðu allt niður sem þér dettur í
hug, jafnvel þó það sé hvorki raun-
hæft né skynsamlegt.
Leitaðu fyrst að markmiðum sem
líklegt er að þú getir náð. Gerðu þér
ljóst hvaða merkingu þú leggur í
hvert markmið. Því einfaldari sem
lýsing á markmiðunum er, þeim
mun betra. Því næst skaltu athuga
hvort markmiðin rekast á. Dæmi
um slík markmið:
o Vinna sig upp í starfi án þess að
þurfa að leggja nótt við dag, t.d.
með kvöld- og helgarvinnu.
o Verða fjárhagslega vel stæður og
gera aðeins það sem manni finnst
skemmtilegt.
o Hafa nægan tíma til að sinna
áhugamálum, heimili og bömum.
o Afla sér almennra vinsælda en
láta samt allt flakka sem manni dett-
ur í hug.
Lifðu lífinu!
• Nýttu tímann vel.
• Skipuleggðu tímann.
• Raðaðu verkefnum eftir
mikilvægi.
• Frestaðu þýðingarlitlum
verkefnum og taktu hin þýð-
ingarmeiri fram fyrir.
• Vísaðu frá verkefnum sem
þú ræður ekki við.
• Lokaðu þig frá óþarfa
truflunum og ónæði.
• Farðu að sofa hálfri stund
fyrr en venjulega og vaknaðu
þeim mun fyrr. Láttu sjón-
varpið ekki taka of mikinn
tíma frá þér.
• Afgreiddu strax skrifleg
erindi. Ekki láta ósvömð bréf
hrannast upp.
EÖA.
Skipaðu í forgangsröð þeim mark-
miðum sem ekki stangast á. Varð-
aðu leiðina að hverju markmiði og
skiptu henni í áfanga sem auðvelt er
að ná. Áfangar verða að vera vel
skilgreindir til að hægt sé að fylgjast
með hvemig miðar.
Skipuleggðu hvað þú ætlar að gera
og fylgstu með framgangi mála. Þú
skalt byrja á að halda dagbók þar sem
fá má heildarsýn yfir hverja viku í
einni opnu. Hver dagur þarf helst
að skiptast í einingar sem hver er
hálf klukkustund. Gott er að hafa
rúm fyrir ofan hvern dálk þar sem
skrá má helstu verk dagsins. í sér-
stakan dálk má svo skrifa áætlun
vikunnar, hverja þarf að hringja í og
hverja þarf að ná fundum af og
hvaða verkefnum þarf að koma í
framkvæmd. í lok vinnudags er gott
að fara yfir dagbókina og flytja þau
verk sem óunnin era yfir á næsta
dag og bæta nýjum við. Nauðsyn-
legt er að meta mikilvægi verkanna
og skipa þeim í forgangsröð.
Næst er að ákvarða markmið vik-
unnar. Skiptu síðan leiðinni að
markmiðinu í áfanga. Ætlaðu þér
ákveðinn tíma til að vinna að því að
ná áföngunum. Á hverju kvöldi
skaltu fara yfir það hve vel þér mið-
ar. Reyndu auk þess að gera þér
grein fyrir hve mikið þú átt ógert til
þess að ná settu marki. Þannig ber
að endurskoða daglega þá áætlun
sem gerð var upphaflega.
Komdu hlutunum í verk!
Hægt er að draga úr óðagoti dag-
legs lífs með því að fara snemma í
rúmið og snemma á fætur, taka góð-
an tí'ma til að borða morgunmat og
leggja snemma af stað í vinnu og
skipuleggja verkefni dagsins.
28 HEILBRIGÐISMAL 3/1987