Heilbrigðismál - 01.12.1995, Qupperneq 30

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Qupperneq 30
um. Hann ákvað því að binda enda á líf sitt og dætra sinna og gaf öll- um eitur. Dætur hans dóu en hon- um varð ekkert meint af vegna þess að með gæsablóðinu hafði hann fengið mótefni gegn eitrinu. Margir velta því fyrir sér hvort bólusetning geti haft áhrif á fóstur, en sú staða getur komið upp að verðandi móðir þurfi að láta bólu- setja sig, til dæmis vegna ferðalaga til fjarlægra landa. Almennt er ekki ráðlegt að bólusetja þungaðar kon- ur, en ef ekki verður hjá því komist verður að vega það og meta í hvert skipti hvenær konan megi fá þessi bóluefni. Hætta af bólusetningu verður þá að vera miklu minni en hættan á því að smitast, og þar af leiðandi afleiðingar þess smits. Ef nauðsynlegt er að bólusetja þung- aða konu skal það ekki gert fyrr en hún er gengin með í þrjá mánuði eða lengur. Konur sem komnar eru á frjósemisskeið ættu að hafa mót- efni gegn eftirfarandi sjúkdómum: Mænusótt, mislingum, hettusótt, rauðum hundum, stífkrampa og barnaveiki. Bóluefni má flokka niður í þrjá áhættuflokka með tilliti til þess hve örugg þau eru gagnvart fóstrinu: í fyrsta lagi eru bóluefni sem hafa engin áhrif á fóstur; í öðru lagi bóluefni sem má einungis gefa í undantekningartilvikum og í þriðja lagi bóluefni sem má aldrei gefa. Bóluefni sem lmfa engin áhrif á fóst- ur: Gegn inflúensu, lifrarbólgu af B- stofni, mænusótt og stífkrampa. Þessi bóluefni skal þó eingöngu gefa konum sem eru í sérstökum áhættuhópum eða þeim sem gætu verið í smithættu. Bóluefni sem má einungis gefa í undantekningartilvikum: Gegn barna- veiki, gulusótt, heilahimnubólgu, hundaæði, kíghósta, kóleru, lungnabólgu og taugaveiki. Gegn þessum sjúkdómum má einungis bólusetja konur ef þær eru á hættu- svæðum, ef þær eru í bráðri smit- hættu og í sérstökum undantekn- ingartilfellum vegna þess umhverf- is sem þær búa við. Nokkur bóluefni má aldrei gefa þunguðum konum, en þau hafa ann- að hvort valdið misþroska í börn- um eða að rannsóknir hafa sýnt að miklar líkur séu á vanþroska þegar móðir er bólusett meðan hún geng- ur með barn. Þetta eru bóluefni gegn berklum, hettusótt, kúabólu, mislingum, mænusótt (lifandi efni til inntöku) og rauðum hundum. Auk þess ætti ekki að gefa konum með börn á brjósti bóluefni gegn rauðum hundum og lifandi mænu- sóttarbóluefni. Eins og hér hefur komið fram treystir ónæmiskerfi nýbura mjög mikið á þau mótefni sem það fær frá móðurinni, bæði fyrir fæðingu og einnig með brjóstamjólk. Það er því afar mikilvægt fyrir barnið að fá þessi mótefni frá móðurinni, til þess að verjast þeim sýklum sem eru í umhverfinu. Lifandi bóluefni má aldrei gefa þunguðum konum, þar sem þessi bóluefni geta valdið sömu áhrifum á fóstur og sýking myndi framkalla. Þó flestar bólu- setningar séu hættulausar fóstri og nýbura, er ástæða til að fresta öll- um aðgerðum, þangað til nokkrum mánuðum eftir fæðingu barnsins. Sveinbjörn Gizurarson er lektor við lyfjafræði lyfsala í Háskóla íslands og verkefnisstjóri Lyfjaþróunar hf Áður hefur birst grein eftir hann í Heilbrigð- ismálum, 4. tbl. 1993: Reykingar draga úr áhrifum lyfja. Vantar þig upplýsingar um Nýttu þér aukna þjóm Krabbameinsfélagsins S KRABBAM EINS Sraðgjöfin 30 HEILBRIGÐISMÁL 4/1995

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.