Heilbrigðismál - 01.03.1996, Page 5

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Page 5
Tómas Jónasson - Auk hf. Innlent Pjóðin þyngist Á einum áratug, frá 1983 til 1993, þyngdust ís- lenskir karlar um 3,7 kg og konur um 4,2 kg, samkvæmt niðurstöðum svonefndrar Monica- rannsóknar Rannsókna- stöðvar Hjartaverndar, en hún nær til fólks á aldr- inum frá 25 ára til 74 ára. Þeir sem voru 25-34 ára þyngdust minnst en í hinum aldurshópunum var breytingin meiri. Karlarnir eru nú að með- altali 84,4 kg en konurn- ar 71,7 kg, að sögn Ugga Agnarssonar læknis. Hæð karla og kvenna jókst um rúman senti- metra á þessu tímabili og eru karlar nú að meðal- Karlar eru hærri en kon- ur og einnig þreknari, sem sést á því að hver sentimetri í hæð sam- svarar 473 grömmum hjá körlum en 434 grömm- um hjá konum. tali 178,4 sentimetrar en konur 165,3 sentimetrar. Yngra fólkið er heldur hærra en það eldra. Nú eru um 150 þúsund manns á þeim aldri sem rannsóknin náði til. Mið- að við þær tölur sem hér hafa verið nefndar má áætla að þessi hluti þjóð- arinnar sé um 590 tonn- um þyngri en jafnaldrar þeirra fyrir áratug. Það samsvarar því að þjóðin hafi þyngst um 5 tonn á mánuði! Doktorum fjölgar Á síðasta ári vörðu tveir læknar doktorsrit- gerðir sínar við lækna- deild Háskóla Islands. Þar með voru doktors- varnir frá deildinni orðn- ar 30, þar af 13 á síðustu tíu árum. Það kemur fram í Fréttabréfi Há- skóla íslands að frá því skólinn tók til starfa fyrir 85 árum hafa 77 dokt- orsvarnir farið þar fram, svo að hlutur lækna- deildar er mjög stór, þó enn séu margir íslenskir læknar sem verja ritgerð- ir sínar við erlenda há- skóla. Reyklausum veitinga- stöðum fer fjölgandi. Snætt í hreinu lofti Ellefu af þrettán hótel- um í Reykjavík bjóða reyklaus herbergi. Þetta kom fram í könnun sem gerð var í vor á vegum Sambands veitinga- og gistihúsa. Utan Reykja- víkur reyndust 18 af 28 hótelum gefa kost á reyk- Hæð íslenskra karla og kvenna Monica-rannsókn Hjartaverndar 1993 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára 65-74 ára lausum herbergjum. Flest þessara hótela veittu morgunverð í reyklausu umhverfi. Vitað er um fimmtán reyklausa veitingastaði, samkvæmt upplýsingum frá Tóbaksvarnanefnd, bæði matsölustaði og kaffihús. Auðmenn framtíðar? Maður sem reykir pakka af sígarettum á dag eyðir í það um átta þúsund krónum á mán- uði. Ef hjón sem bæði reykja pakka á dag hætta að reykja og leggja fyrir sextán þúsund krónur á mánuði á 6% vöxtum eiga þau 15,6 milljónir króna eftir 30 ár! Á þetta er bent í Fréttabréfi Heimilislínu Búnaðar- bankans. Sá sem reykir ekki fær verulega viðbót- arvexti: Betri heilsu og lengra líf. Einnig í körlum Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna en þessi sjúk- dómur getur einnig greinst í körlum. í vor birtist í International Journal of Cancer grein eftir Jón Gunnlaug Jónas- son lækni o. fl. þar sem fjallað er um 29 krabba- mein í brjóstum karla sem skráð voru á árun- um frá 1955 til 1994. Síð- ari hluta tímabilsins var tíðnin hærri en í upphafi þess eða að jafnaði eitt tilfelli á ári. Meðalaldur sjúklinga var 66 ár og um 40% þeirra lifðu fimm ár eða lengur eftir greiningu. Tvö af hverj- um þremur meinum voru í vinstra brjósti en þau sem voru hægra megin reyndust stærri og erfiðari viðureignar. 4 HEILBRIGÐISMÁL 1/1996 Tómas Jónasson - Gott fólk (Ólöf Garðarsdóttir) í anda samvinnu „Sjúkrahús, sem jafnframt væri sóttvarnarstiftun, þykir mér æskilegt í Reykjavíkurbæ, yrði því komið upp með hæfilegum sparnaði og það væri ekki of stórt," sagði Bjarni Thorarensen skáld og amtmaður fyrir eimii og hálfri öld. Þá var ekkert sjúkrahús í höfuðstaðnum en nú er öldin önnur og sjúkrahúsin talin of mörg og of stór. Orð Bjarna um hæfilegan sparnað eru því enn í fullu gildi. Svo er að skilja á stjórnvöld- um að lausnarorðin séu samstarf og sameining, að ekki sé talað um verkaskiptingu. Einn liður í lausn mála er sameining Borgar- spítalans og Landakotsspítala í „Sjúkrahús Reykjavíkur". í til- efni sameiningarinnar um síð- ustu áramót gerði auglýsinga- stofan Gott fólk merki fyrir nýju stofnunina. Ólöf Garðarsdóttir grafískur hönnuður segir S j Ú KRAH Ú S REYKjAVÍKUR að merkið eigi að túlka starf- semina á einfaldan hátt. Fjögur form mynda hvítan kross, tákn heilbrigðisþjónustu, blái liturinn er litur borgarinnar og sá rauði er litur lífsins, segir Ólöf. Efri hluti krossins getur einnig vísað til turnanna á Borgarspítalanum og Landakotsspítala. Bjarni Thorarensen hafði á sínum tíma tillögu um tekju- stofn fyrir væntanlegt sjúkrahús í höfuðstaðnum: „Af utanbæjar- mönnum mundi mega taka sanngjarna borgun þegar þeir kæmu sjúklingum inn á sjúkra- hús þetta." Er þetta ekki í anda tillagna sem heilbrigðisráðherra kynnti á síðasta ári? Fimm á dag Hve mikið borða Is- lendingar af grænmeti og ávöxtum? Ekki nóg, að mati Manneldisráðs. Reynsla annarra þjóða er svipuð. Fyrir nokkrum árum hófst i Bandaríkj- unum átak til að auka neysluna undir kjörorð- inu „5 A Day for Better Health". Hvatt er til þess að fólk fái sér fimm eða fleiri skammta á dag af Margir tóku þátt í ösku- bakkasöfnun Tóbaks- varnanefndar á reyk- lausa deginum í vor. Einhvern tímann var sagt að öskubakkar ættu eftir að verða safngripir á minjasöfnum, líkt og hrákadallar. Skyldu þessir fara þangað? grænmeti og ávöxtum, enda hefur verið sýnt fram á að með því móti megi draga úr hættu á mörgum tegundum af krabbameini, ekki síst í meltingarvegi. í sumar hóf Manneld- isráð hliðstætt átak hér á landi, í samvinnu við framleiðendur og inn- flytjendur grænmetis og ávaxta, Hjartavernd, Krabbameinsfélagið, Hagkaup og fleiri versl- anir. Laufey Steingríms- dóttir forstöðumaður ráðsins segir að ekki þurfi að vera erfitt að uppfylla þessi skilyrði um fimm skammta á dag. Til dæmis megi fá sér ávaxtasafa áður en lagt er af stað í vinnu eða skóla, hafa með sér epli eða banana til að gæða sér á með létta há- degisverðinum sem nú tíðkast, fá sér ávöxt síð- degis og borða kartöflur og grænmetissalat með kvöldmatnum. Þá eru skammtarnir orðnir fimm, og ekki sakar að bæta aðeins við eftir kvöldmat, til dæmis að fá sér vínber eða rúsín- ur. Laufey segir að átakið hafi mælst vel fyrir og vonast sé til að með þessum einfalda boðskap megi bæta heilsu þjóðar- innar og draga úr ótíma- bærum sjúkdómum af völdum óheppilegra neysluvenja. Menntunin kostar sitt Rekstur Háskóla ís- lands kostaði á síðasta ári um 2,6 milljarða króna, þar af er kostnað- ur við kennsludeildir rúmur einn milljarður. Heilbrigðisgreinarnar taka drjúgan hluta af þessu eða tæpan þriðj- ung. Læknadeild er fjár- frekust, kostar 140 millj- ónir króna, hjúkrunar- fræði kostar 64 milljónir, tannlæknadeild 47 millj- ónir, lyfjafræði lyfsala 28 milljónir og sjúkraþjálfun 20 milljónir. Á þriðj'a hundrað stómaþegar Miðað við þann fjölda sem er á skrá hjá Hjálp- artækjabankanum má gera ráð fyrir að um 250 stómaþegar séu hér á landi, segir í Fréttabréfi Stómasamtakanna, en það eru samtök fólks sem hefur gengist undir stómaaðgerðir þar sem op fyrir saur eða þvag er sett á kvið. Á árinu 1995 var 61 aðgerð gerð, sem er nokkru meira en árið áður. Þetta voru 38 ristil- stómaaðgerðir (kóló- stómía), 15 garnastóma- aðgerðir (íleóstómía) og 8 þvagstómaaðgerðir (úró- stómía). -jr. HEILBRIGÐISMÁL 1/1996 5

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.