Heilbrigðismál - 01.03.1996, Qupperneq 16
reykbindindi. Af þessu má ef til vill
draga þann lærdóm að unglingar
sem byrja að reykja í því augnamiði
að halda þyngdinni í skefjum eru
að gera mikil mistök, því þegar
þeir síðan hætta (og hver segir ekki
að hann ætli að hætta þessu fyrr
eða síðar), eru þeir komnir í sér-
stakan áhættuhóp fyrir offitu.
Það er því full ástæða til að end-
urskoða mataræðið þegar hætt er að
reykja. Rauði þráðurinn í þeirri
endurskoðun er lystugur og hollur
matur með miklu af grænmeti og
ávöxtum en minni fitu og sykri.
Þessi atriði skipta þá mestu máli:
• Borðið reglulega, morgunverð,
hádegisverð og kvöldverð. Athugið
að það er yfirleitt betra að borða
fleiri litlar máltíðir, jafnvel fjórar
eða fimm, heldur en fáar stórar.
• Reynið nýjar, girnilegar upp-
skriftir með minni fitu og færri
hitaeiningum, t.d. úr bókinni „Af
bestu lyst".
• Borðið mikið af grænmeti og
ávöxtum, bæði með máltíðum og á
milli mála þegar nartlöngunin segir
til sín. Gott er að hafa með sér
ávexti og/eða hrátt grænmeti í
vinnuna til að grípa til um miðjan
morgun og síðdegis. Grænmeti er
góð byrjun á máltíð, ávextir eru vel
til þess fallnir að ljúka máltíð.
• Veljið fituskertar mjólkurvörur,
td. léttmjólk á morgunkorn eða
sýrða léttmjólk með múslí. Þeir sem
drekka mjólk ættu tvímælalaust að
velja undanrennu eða fjörmjólk en
alls ekki nýmjólk.
• Smyrjið brauðið lítið eða ekkert
og veljið fituskert viðbit.
• Drekkið vatn eða ósæta drykki
með mat og á milli mála. (Athugið
að hreinn ávaxtasafi er jafnsætur og
gosdrykkur og veitir jafnmargar
hitaeiningar.)
• Sykurlausar töflur geta komið sér
vel, en annars er um að gera að
borða ekki sætindi milli mála.
• Njótið þess að borða góðan mat!
Bragðskynið eykst og maturinn
verður gómsætari þegar reyking-
arnar verða ekki til að slæva skynj-
unina. Munið þó að gæði eiga að
skipta meira máli en magn.
Laufey Steingrímsdóttir næringar-
fræðingur, Ph. D., er forstöðumaður
Manneldisráðs íslands. Hún hefur áð-
ur skrifað í Heilbrigðismál, meðal ann-
ars um hollustu grænmetis og ávaxta
(1/1995) og um pasta (3/1995).
ofy cuwocii
unnwc ueqna
Einn skammtur getur verið einn meðalstór ávöxtur, 50 g af
grænmeti, 2-3 kartöflur eða glas af hreinum ávaxtasafa.
Hjartavernd,
Krabbameinsfélagið og
Manneldisráð hvetja fólk
á öllum aldri til að borða að
minnsta kosti fimm skammta
af grænmeti, ávöxtum eða
kartöflum á dag.
Það er auðveldara en þú heldur að ná 5 skömmtum á dag. Þú
getur til dæmis fengið þér einn ávöxt eða ávaxtasafa að morgni
og grænmetissalat með hádegismatnum, annan ávöxt síðdegis
og soðnar kartöflur og grænmeti með kvöldmatnum.
Skammtarnir eru orðnir fimm - og þar sem engin ástæða er til
að hætta að svo komnu máli geturðu fengið þér ferska ávexti í
eftirrétt.
16 heilbrigðismál 1/1996