Heilbrigðismál - 01.10.2005, Side 4

Heilbrigðismál - 01.10.2005, Side 4
FYLGT ÚR HLAÐI Kæri lesandi! Tímaritið Heilbrigðismál, sem nú kemur út eftir nokkurt hlé, á sér langa sögu. Það kom fyrst út í desember 1949, þá undir nafninu Fréttabréf um heilbrigðismál. Tilgangurinn var að fjalla um krabbamein en einnig „að fræða fólkið um ýmsa hluti sem varðað geta heilsu og heilbrigði þjóðarinnar". Tímaritið hefur komið út reglulega síðan, með nokkrum hléum. Fyrsta tölublaðið í nýjum búningi kemur út í október 2005 undir heitinu Heilbrigðismál - tímarit Krabbameinsfélagsins. Stefnt er að útgáfu þess að minnsta kosti tvisvar á ári. Tilgangurinn með útgáfu tímaritsins er eins og áður að veita fræðslu um krabbamein og krabbameinsvarnir, heilbrígða lífshætti og ekki síst að kynna starf Krabbameinsfélagsins. Tímaritinu verður dreift til félagsmanna í aðildarfélögum Krabbameinsfélags íslands og annarra stuðningsmanna félagsins og velunnara. Áhersla verður lögð á fjölbreytni í efnisvali. í þessu blaði er meðal annars fjallað um brjósta- krabbamein í tilefni af árlegu árveknis- og fjáröflunarátaki undir merkjum Bleiku slaufunnar. Eitt af meginmarkmíðum Krabbameinsfélagsins er að miðla fræðslu og upplýsingum með virkum hætti um krabbamein og fjölþætt starf félagsins. Við viljum einnig gera okkar besta til að eiga virk og góð samskipti við almenning og velunnara félagsins. Þetta vonum við að takist með því að hefja á ný útgáfu Heilbrigðismála og með endurbótum á vefsíðu félagsins, krabbameinsfelagid.is. Með vinsemd, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags íslands. FJÖLÞÆTT STARFSEMI SAMKVÆMT LÖGUM Krabbameinsfélags Islands er tilgangur félags- ins að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini svo sem með því að auka þekkingu á sjúkdómnum, efla rannsóknir á honum, leita að krabbameini á byrjunarstigi og styðja framfarir f meðferð krabbameins og umönnun krabbameinssjúklinga. Krabbameinsfélag íslands er byggt upp af um þrjátiu aðildarfélögum (svæðafélögum og stuðningshópum sjúklinga). Aðalfundur, sem haldinn er árlega, kýs sjö manna stjórn sem kemur saman að jafnaði mánaðarlega til funda. Leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum er umfangsmesta verkefni Krabbameinsfélagsins. Hjá Krabbameinsskránni er safnað upplýsingum um alla sem greindir eru með krabbamein. Rannsóknastofa í sameinda- og frumulíffræði fæst við grunnrannsóknir á krabbameini. Athyglinni hefur einkum verið beint að brjóstakrabbameíni. Fræðsla og útgáfa eru stór þáttur f forvarnastarfi krabbameinssamtakanna. Félagið gefur út tímarit og heldur úti vefsíðunni krabbameinsfelagid.is. Hjá Krabba- meinsráðgjöfinni er svarað í síma 800 4040 kl. 15-17 virka daga og veittar upplýsingar og gefin góð ráð. Félagsráðgjafi hefur nýlega tekið til starfa. Stuðningur við sjúklinga er eitt af forgangsverkefnum Krabbameins- félagsins. Innan vébanda félagsins starfa margir stuðningshópar krabba- meinssjúklinga. Heimahlynning gerir sjúklingum með ólæknandi sjúk- dóm mögulegt að dveljast heima eins lengi og þeir óska og aðstæður leyfa. Skrifstofa félagsins sinnir stjórnun, þjónar áðurnefndum starfsdeild- um og annast almenna afgreiðslu. Velta Krabbameinsfélags Islands er rúmlega 400 milljónir króna á ári. Starfsmenn eru um 100 f um 70 stöðum. Helstu tekjustofnar eru gjöld fyrir veitta þjónustu, tekjur af happdrætti og sölu minningarkorta svo og ýmsar gjafir. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur tekið að sér fræðslu um krabba- mein, í nafni heildarsamtakanna. Þá gefur félagið út röð fræðslurita og annast rekstur Happdrættis Krabbameinsfélagsins. Nokkur önnur svæðafélög hafa ráðið starfsmenn og opnað þjónustumiðstöðvar. JR. Stjórn Krabbameinsfélags Islands 2005-2006: Jóhannes Tómasson blaðamaður, Guðrún Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, Sigurður Björnsson læknir, formaður, Vilhelmína Haraldsdóttir læknir, Þorvaldur Árnason lyfsali, Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri og Birna Flygenring hjúkrunarfræðingur.

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.