Heilbrigðismál - 01.10.2005, Side 6
Ómar Óskarsson
Ásgeir Theódórs yfirlæknir telur að reynsla Krabbameinsfélagsins af leitarstarfi
komi að miklum notum við væntanlega leit að ristilkrabbameini.
EKKI EFTIR
NEINU AÐ BÍÐA
segir Ásgeir Theódórs yfirlæknir um leit að ristilkrabbameini
„SKIPULEG LEIT ÁÐ ristilkrabbameini er haf-
in í Finnlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Italíu,
Póllandi og Tékklandi, auk þess sem Danir og
Bretar eru að hugsa um að hefja leit á næsta
ári. Mikil umræða fer einnig fram í öðrum
Evrópulöndum og í Bandaríkjunum. Það er ekki
eftir neinu að bíða fyrir Islendinga," segir Ásgeir
Theódórs sérfræðingur í meltingarsjúkdómum,
sem hefur ásamt öðrum unnið að undirbúningi
slíkrar leitar hér á landi. Á síðasta vetri lögðu
Drífa Fljartardóttir og fimm aðrir þingmenn
fram tillögu til þingsályktunar um að hefja ristil-
krabbameinsleit um mitt ár 2006. Tillagan hlaut
ekki afgreiðslu á Alþingi og er búist við að hún
verði endurflutt í haust.
Ár hvert greinast um 115 ný tilfelli af ristil-
krabbameini (krabbameini í ristli og endaþarmi)
og eru karlar í meirihluta. Þetta er annað
algengasta krabbameinið hjá körlum og hið
þriðja hjá konum. Dauðsföll eru um 50 á ári.
„Ein helsta ástæða þess að dauðsföllin eru
svona mörg er sú að hjá meira en helmingi
þeirra sem greinast nú með ristilkrabbamein
hefur sjúkdómurinn dreift sér í eitla, aðliggjandi
líffæri eða jafnvel önnur líffæri," segir Ásgeir.
„Allt sem við gerum til að greina sjúkdóminn
á byrjunarstigum, þegar hann er staðbundinn,
gjörbreytir batahorfunum."
Nefnd á vegum landlæknis lagði til fyrir
rúmu ári að hafin yrði skimun þar sem leitað
væri að blóði í hægðum á tveggja ára fresti
í aldurshópnum 55-70 ára, en rannsóknin er
talin einföld, ódýr og hættulaus. Mælt er með
ristilspeglun hjá þeim sem greinast með blóð
í hægðum. Þá er hægt að fjarlægja góðkynja
sepa og byrjandi illkynja mein. „Þeir sem fara
í slíka speglun eiga ekki að þurfa að fara í
skimun næstu sjö til tíu árin," segir Ásgeir. I
áliti landlæknisnefndarinnar kemur fram að
niðurstöður ítarlegra og vandaðra rannsókna
bendi eindregið til þess að „með slíkri leit megi
fækka dauðsföllum vegna sjúkdómsins um allt
að fjórðung". Áhersla er lögð á að leitin verði
miðstýrð þannig að boðun, skráning og eftirlit
verði á einum stað. Jafnframt hafa komið fram
tillögur um samræmda skráningu þeirra sem
eru í aukinni áhættu af einhverjum ástæðum
svo sem vegna ættgengi eða bólgusjúkdóma
í ristli. Hagfræðistofnun Háskóla Islands hefur
gert skýrslu um kostnað við ristilkrabbameinsleit
og metið ávinning af henni. Landlæknir hefur
birt á vefsíðu sinni leiðbeiningar um leit að
þessu krabbameini og eftirlit með þeim sem eru
í aukinni áhættu.
Þangað til leit að ristilkrabbameini hefst
geta þeir sem áhuga hafa og komnir eru yfir
fimmtugt snúið sér til heilsugæslustöðva eða
lyfjabúða til að fá spjöld sem notuð eru til að
leita að blóði í hægðum. Einnig getur fólk
snúið sér til sérfræðinga f meltingarsjúkdómum
varðandi frekari ráðgjöf og skoðun. Mikilvægt
er að þeir sem hafa þekkta áhættuþætti séu í
reglulegu eftirliti.
„Spurningin er ekki hvort heldur hvenær
skipulögð ristilkrabbameinsleit hefst," segir
Ásgeir Theódórs. „Við Islendingar getum tekið
forystu á þessum vettvangi vegna mikillar kunn-
áttu og reynslu Krabbameinsfélagsins af leit að
krabbameini í leghálsi og brjóstum, sem fram-
kvæmd hefur verið hér á landi í áratugi með
einstökum árangri."
JR.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
Á LANDSBYGGÐINNI
Sjö þjónustumiðstöðvar Krabbameinsfélagsins
eru á landsbyggðinni. Þær eru reknar af
krabbameinsfélögum á viðkomandi svæðum,
með stuðningi frá Krabbameinsfélagi íslands.
Akranes: Krabbameinsfélag Akraness og
nágrennis, Kirkjubraut 40, 300 Akranesi,
sími 431 5115. Starfsmaður er Sigurlína
Guðmundsdóttir. Skrifstofan er opin á
mánudögum kl. 16-18 og
fimmtudögum kl. 12-16.
Netfang: akranes@krabbameinsfelagid.is
Vefsíða: www.krabb.is/akranes
ísafjörður: Krabbameinsfélagið Sigurvon,
Sindragötu 11,400 Isafirði, sími 456 5650.
Starfsmaður er Ingibjörg Snorradóttir Hagalín.
Skrifstofan er opin á þriðjudögum og
miðvikudögum kl. 10-12 og á fimmtudögum
kl. 11-13. Netfang: sigurvon@snerpa.is
Vefsíða: www.krabb.is/sigurvon
Sauðárkrókur: Krabbameinsfélag
Skagafjarðar, Aðalgötu 10 b, 550 Sauðárkróki,
sími 453 6030. Starfsmaður er María Reykdal.
Skrifstofan eropin á þriðjudögum kl. 11-13 og
á fimmtudögum kl. 17-19.
Netfang: skagafjordur@krabbameinsfelagid.is
Vefsíða: www.krabb.is/skagafjordur
Akureyri: Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis, Glerárgötu 24, 600 Akureyri,
sími 461 1470. Starfsmenn eru Þorbjörg
Ingvadóttir framkvæmdastjóri og Jóhanna
Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur. Skrifstofan er
opin frá mánudegi til miðvikudags
kl. 16-18. Hjúkrunarfræðingur er til viðtals
eftir samkomulagi. Netfang: kaon@est.is
Vefsíða: www.krabb.is/akureyri
Reyðarfjörður: Krabbameinsfélag
Austfjarða og Krabbameinsfélag Austurlands,
Brekkugötu 7, 730 Reyðarfirði, sími 474 1530.
Starfsmaður er Kristbjörg Sunna Reynisdóttir.
Skrifstofan er opin á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 16-18.
Netfang: austurland@krabbameinsfelagid.is
Vefsíða: www.krabb.is/austur
Selfoss: Krabbameinsfélag Árnessýslu,
Eyrarvegi 23, 800 Selfossi, sími 482 3301.
Starfsmaður er Rannveig Árnadóttir.
Skrifstofan er opin frá mánudegi til föstudags
kl. 10-12 og á fimmtudögum kl. 13-16.
Netfang: sudurland@krabbameinsfelagid.is
Vefsíða: www.krabb.is/arnes
Keflavík: Krabbameinsfélag Suðurnesja,
Smiðjuvöllum 8, 230 Reykjanesbæ, sími
421 6363. Starfsmaður er Erna Björnsdóttir.
Skrifstofan er opin á miðvikudögum
kl. 13-17 og á fimmtudögum kl. 9-13.
Netfang: sudurnes@krabbameinsfelagid.is
Vefsíða: www.krabb.is/sudurnes
6