Heilbrigðismál - 01.10.2005, Qupperneq 15
Tómas Jónasson
.. EKNI UM
BRJÓSTA-
KRABBAMEIN
SAMHJÁLP KVENNA
ESTÉE LAUDER
KRABBAMEINSFÉLAGID
FJÖLMIÐLAR. Sjónvarpsstöðvar, útvarpsstöðv-
ar og dagblöð hafa ætíð vakið athygli á átakinu
og birt myndir af mannvirkjum sem hafa verið
lýst upp.
Tímaritið Vikan hefur síðan 2002 helgað eitt
októberblað brjóstakrabbameini, birt upplýsing-
ar um sjúkdóminn og viðtöl við sjúklinga og
aðstandendur.
I október 2004 sýndu sjónvarpsstöðvar, án þess
að taka greiðslu fyrir, nýtt myndband þar sem
konur eru hvattar til að bera heilsu sína fyrir
brjósti.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar um brjósta-
krabbamein og árveknisátakið hafa verið bitar
á vefsíðum svo sem Doktor.is og Femin.is og
haustið 2004 var opnuð sérstök vefsíða um
átakið: bleikaslaufan.is.
HVATNING. Árveknisátakið felst ekki síst I því
að vekja athygli á þessum sjúkdómi, sem tíunda
hver kona á íslandi greinist með einhvern tíma
á lífsleiðinni, fræða um hann og hvetja konur til
að sýna árvekni um eigin brjóst og nýta sér boð
LeitarstöðvarKrabbameinsfélagsinsumröntgen-
myndatöku. Konurnar hafa brugðist vel við, þvi
að óvenju góð aðsókn er alltaf í október.
UNDIRBÚNINGSNEFND. ( nefnd sem undir-
býr átakið hverju sinni eru fulltrúar frá Artica,
Krabbameinsfélagi Islands (almannatengslasviði,
leitarsviði og fjáröflunarsviði), Krabbameins-
félagi Reykjavíkur (fræðslu) og Samhjálp
kvenna. JR.
BLEIKU
SLAUFUNNI
HEFUR VERIÐ
VEL TEKIÐ
HJÓNIN Guðlaugur Kristmanns og Eva Krist-
manns, sem reka heildverslunina Artica, eru
með umboð á Islandi fyrir snyrtivörur frá Estée
Lauder. Þau hafa haft mikil samskípti við
danska umboðsmenn þessara snyrtivara og
fylgdust með viðbrögðum Dana þegar bleika
slaufan var kynnt þar í október 1999 með sölu
á leðurhönskum til styrktar baráttunni gegn
brjóstakrabbameini.
Árið eftir ákváðu þau að leita samstarfs við
Krabbameinsfélagið um árveknisátak hér á
landi. „Okkur var strax tekið mjög vel," segir
Guðlaugur. I samvinnu við starfsmenn félagsins
og forsvarkonur Samhjálpar kvenna var farið að
fræða um sjúkdóminn og selja hluti til styrktar
baráttunni, einkum þar sem snyrtivörur voru
seldar. „Fyrsta árið var skilningur verslunar-
oigenda lítill en strax næsta ár var mun
auðveldara að fá þá til liðs við verkefnið," segir
Eva og Guðlaugur bætir við að nú sækist fólk
eftir þvi að leggja þessu átaki lið.
Eigendur Artica, Eva Kristmanns og Guðlaugur Kristmanns, ásamt Maríu Cristinu dóttur sinni.
Myndin var tekin þegar kveikt var á bleikri lýsingu á Hallgrímskirkju fyrir fjórum árum.
FHaustið 2000 birtust myndir I íslenskum
blöðum af Skakka turninum í Pisa, lýstum
upp í bleikum lit I tilefni af átaki Estée
Lauder. Ákveðið var að gera eitthvað svipað
hér og Krabbameinsfélagið fékk Orkuveitu
Reykjavíkur til samstarfs I október 2001 þegar
Hallgrímskirkja var lýst bleik I nokkra daga. Síðan
hafa önnur mannvirki orðið fyrir valinu, bæði á
höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. „Þetta
hefur ekki farið fram hjá neinum og nú vita allir
fyrir hvað átakið stendur," segir Guðlaugur
Kristmanns.
Þau hjónin vilja koma á framfæri þakklæti til
verslunarfólks og annarra sem hafa aðstoðað
við að safna peningum til margvíslegra verkefna
í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Ásíðustu
fimm árum hafa safnast samanlagt um fimm
milljónir króna. JR.
15