Heilbrigðismál - 01.10.2005, Page 33
UMFERÐARSLYS
VEGNA REYKINGA
Nú er farið að ræða um það í alvöru
vestanhafs að banna reykingar við
akstur, eins og tíðkast sums staðar
varðandi notkun farsíma, til að draga
úr slysahættu.
Reykingar ökumanna geta truflað
einbeitingu þeirra og skapað mikla
hættu á slysum, til dæmis ef þeir
missa logandi sígarettu. Einnig eru
vaxandi áhyggjur af áhrifum óbeinna
reykinga á farþega, ekki síst börn.
Þess má geta að íslenskum atvinnu-
bifreiðastjórum hefur lengi verið
bannað að reykja við akstur og
fyrir nokkrum árum voru reykingar
bannaðar í leigubifreiðum og
hópbifreiðum.
STÓRTÓNLEIKAR TIL
STYRKTAR SIGURVON
Margir af helstu tónlistarmönnum
þjóðarinnar komu fram á tónleikum
sem haldnir voru í íþróttahúsinu á
Torfnesi á ísafirði 25. ágúst, til styrktar
Krabbameinsfélaginu Sigurvon.
Þetta voru Á móti sól, Birgitta
Haukdal, Nylon, Sign, Davíð Smári,
Nine-Elevens, Apollo og Húsið á
sléttunni. Kynnir var Steinn Ármann
Magnússon leikari.
Að sögn Bæjarins besta, bb.is, var
mikið lagt í tónleikana og meðal
annars settur upp Ijósabúnaður sem
vegur 1200 kg, en það er stærsta
Ijósakerfi sem notað hefur verið á
Vestfjörðum.
Sá sem skipulagði tónleikana var
Gunnar Atli Gunnarsson, tæplega
sautján ára ísfirðingur.
LJÓSABEKKJUM
VÍÐA ÚTHÝST
Nú hafa sveitarstjórnir í Álftanesi,
Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi,
Mosfellsbæ, Reykjavík og Skagafirði
ákveðið að hætta að bjóða Ijósböð í
Ijósabekkjum í íþróttamannvirkjum á
vegum sveitarfélaganna. Þetta hefur
meðal annars verið gert að frumkvæði
krabbameinsfélaga á viðkomandi
svæðum.
Tíðni húðkrabbameins hér á landi
hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum
og er það meðal annars rakið til
aukinnar Ijósabekkjanotkunar. Því
hafa opinberir aðilar verið hvattir til
að grípa til ráðstafana sem í þeirra
valdi standa til að sýna gott fordæmi
og bregðast við ábendingum frá
húðlæknum og öðrum.
ALDREI FLEIRI
HÁALDRAÐIR
Um síðustu áramót voru á lífi
38 íslendingar 100 ára og eldri,
og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Á þessu ári hafa tvær konur
náð 108 ára aldri, Guðfinna
Einarsdóttir í Reykjavík og
Sólveig Pálsdóttir í Austur-
Skaftafellssýslu.
Áður hafði aðeins ein kona
náð svo háum aldri hér á
landi, Halldóra Bjarnadóttir á
Blönduósi, sem lifði í 108 ár og
45 daga. Metið á hins vegar
Guðrún Björnsdóttir, sem fædd
var í Vopnafirði og flutti fimm
ára til Kanada. Þegar hún lést
þar, fyrir sjö árum, var hún 109
ára og 310 daga.
TIL BÓTA?
Meðallegutími á bandarískum
sjúkrahúsum styttist úr 20 dögum
í 12 daga frá 1994 til 2001. Á sama
árabili jókst hlutfall þeirra sem
létust þremur til sex mánuðum eftir
útskrift úr 0,9% í 4,7%.
HEILSUMOLAR