Samtíðin - 01.09.1942, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN
7
])að skyldi fá ókeypis 1 eintak af
öllum þeim bókum, sem prentaðar
eru hér á landi. Þar með á safnið
að geta af sjálfu sér tekið þar við,
sem Benedikt Þórarinsson hætti.
Auk þess veitir Sáttmálasjóður Há-
skóla í'slands safninu árlega nokkra
fjárhæð til hókakaupa og hókhands.
Fyrir það fé eru einkum kevpt er-
lend vísindarit í þeim greinum, sem
kenndar eru við Háskólann. Enn
fremur hafa safninu horizt ýmsar
hókagjafir, m. a. ein mjög myndar-
leg (enskar hækur) frá British
Gouncil.
— Hvað um bókavörzluna?
— Auk mín hafa 2 stúdentar unn-
ið hér á safninu tvær stundir á dag
hvor. Þegar stúdentar liafa fengið
leyfi til að sitja í lestrarsal að
morgni dags (kl. 9—12 árd.), hafa
þeir lagt sér til sérstaka gæzlumenn.
— Telur þú, að safnið sé nú vel
hirgt að hókum?
— Því fer fjarri. Ég er þó eng-
an veginn að gera lítið úr þvi, sem
við eigum, því að það er bæði mik-
ið og merkilegt. Bækur Finns Jóns-
sonar og Benedikts Þórarinssonar
eru með öllu ómetanlegar. En nú
þarf við að hæta. Fyrst og fremst
þarf að fvlla í eyðurnar að því, er
snertir hækur frá fvrri árum. í
norrænum fræðum þarf t. d. að gera
kerfisbundna athugun á því, hvað
helzt vantar, og reyna eftir föngum
að hæta úr því. Þá eru aðrar aðal-
fræðigreinirnar, sem kenndar eru
við Háskólann. í þeim væri nauð-
synlegt, að gerð væru stórfelld bóka-
kaup, til þess að létta undir rann-
sóknir í þeim vísindum hér á landi.
Það þarf ekki að taka fram, að til
slíks þarf mikið fé og meira en
nú er fvrir hendi. Háskólabóka-
safnið á að verða lyftistöng ís-
lenzkra visindaiðkana. Slíkt getur
það að vísu ekki orðið í skjótri
svipan, en að því her að vinna sem
ölullegast, og á því marki má aldr-
ei missa sjónar.
FJÖLMARGAR vísindalegar rannsóknir
hafa sannað mönnum, hversu mikil
áhrif fæðan hefur á líkamann og þar með
heilsu fólks, en auk þess á andlegan þroska
barna og unglinga. Samanburður á tveim
hópum skólabarna, sem höfðu sama fæði,
að því undanteknu, að annar fékk % litra
af nýmjólk á dag, en hinn enga, leiddi í
ljós, að börnin, er mjólkina fengu, þyngd-
ust meira og hækkuðu, fengu miklu síður
næma sjúkdóma og tóku meiri framför-
um við námið en hin, sem enga fengu.
Pað er enginn efi á því, að rétt notk-
un mjólkur og mjólkurafurða i daglegu
fæði er eitthvert hið mikilvægasta ráð til
])ess að efla hreysti og heilbrigði þjóð-
arin nar.
Dr. A. Tanberg.
Amerískur lögfræðingur varði ný-
lega kommúnista fgrir, rétti. Úti fijr-
ir réttarsalnum sagði kunningi lians
við liann:
- Ekki hélt ég, að þú værir
kommúnisti?
Lögfræðingurinn: — Margan
morðingjann hef ég nú varið fyrir
rétti, en aldrei lief ég verið kallað-
■ur morðingi.
Á legsteini frægs hljómsveitar-
stjóra gat að lesa þessi orð: — Loks
sló timans tönn taktsláttumanninn.