Samtíðin - 01.09.1942, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.09.1942, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 Meredith Johnson: Læknavísindin gegn sjúkdómum ellinnar [Nýjustu vísindalegar athuganir i Bandaríkjunum hafa leitt i ljós, að dauðsföllum meðal eldri kynslóðarinnar þar i landi fer mjög ört fækkandi og það til þeirra muna, að búizt er við, að innan (>0 ára muni helmingur allra Bandaríkjamanna verða 45 ára eða eldri. í eftirfarandi grein er skýrt frá hinum merku at- höfnum Bandaríkjamanna í baráttu þeirra gegn sjúkdómum eldri kynslóðarinnar.] NÝLEGA tók til starfa sjúkra- hús í New York. Er talið lík- legt, að starfsemi þess eigi eftir að reynast stórlega mikilvæg. Hór er um að ræða hvorki meira né minna en miðstöð í haráttunni gegn hvers kvns ellisjúkdómum í Bandaríkj- unum. Þessu nýja sjúkraliúsi hefur ver- ið valið glæsilegt nafn: Velferðar- sjjítalinn. Þar er ekki sinnt öðrum sjúklingum en rosknu fólki. Til þessa sjúkrahúss streymir, svo að hundruðum skiptir, fólk, sem þjá- ist af nýrnaveiki, sykursýki, gigt, æðakölkun og öðrum sjúkdómum, sem einkum ásækja eldri kynslóð- ina. Sjúklingunum er veitt þarna fullkomnasta lækning og hezta að- hlynning, sem völ er á. Lækninga- tækin eru vitanlega öll af nýjustu gerð. Meðal annars fá sjúklingarnir alls konar heilsusamleg höð og Ijós- lækningar, og þeir eru látnir gera hollar æfingar. í einni álmu sjúkra- hússins starfar rannsóknardeild að því að komast fyrir orsakir elli- sjúkdómanna og reyna til að finna ráð gegn þeim. Stofnun þessa mikla sjúkrahúss er í fullu samræmi við þá skoðun þjóðfélagsfræðinga, sem þeir hafa haldið fram árum saman, að gömlu fólki sé sí og æ að fjölga vestra, ekki sízt hlutfallslega, miðað við tölu æsluilýðsins. Fyrir réttum 100 árum voru 50% af íhúum Banda- ríkjanna yngra fólk en tvítugt, en tæj) 3% eldra en 65 ára. I dag eru aðeins 33% yngri en 20 ára, en tala gamla fólksins hefur hækkað um rúman helming eða upp í 6%. Æsku- mönnum hefur þar af leiðandi fækk- að, en slikt niun eiga fvrir sér að hafa allmikil áhrif á ýmsuin svið- um þjóðlífsins. Þetta á ekki hvað sízt við um störf læknanna. Til þeirra streymir nú roskið fólk í miklu ríkara mæli en fyrr. I stað yfirgnæfandi fjölda æskulýðs-sjúkdómstilfella, verða læknarnir nú að horfast í augu við aðrar tegundir sjúkdóma, sem taka að gera vart við sig hjá fólki, þeg- ar aldurinn færist yfir það. Þetta hefur leitt til þess, að fjöhji lækna hefur snúið sér að visindalegum rannsóknum ellisjúkdóma á rann- sóknarstofnunum ríkjanna. Elli- sjúkdómarannsóknir eru að verða geysi fyrirferðarmikil starfsgrein vestan hafs á þessari öld. Hvaða eiginleika þarf ellisjúk- dómalæknirinn að ciga sér í ríkum

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.