Samtíðin - 01.06.1950, Síða 7

Samtíðin - 01.06.1950, Síða 7
SAMTÍÐIN Júní 1950 Nr. 163 17. árg., 5. hefti SAMTÍÐIN kemur mánaðarlega, nema í janúar og ágúst. Árgjaldið er 25 kr. og greið- ist fyrirfram. Áskrift getur byrjað hven.er sem er. Úrsögn er bundin við áramót. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason magister, simi 2526, póstliólf 75. Áskriftar- gjöldum veitt móttaka í verzluninni Bækur ■& ritföng hf., Austurstræti 1 og Bókabúð Austurbæjar, Laugaveg 34. — Prentuð í Félagsprentsmiðjunni hf. VANRÆKTUR ATVINNUVEGUR VMSA VÍÐSÝNA íslendinga, sem vita, að grannþjóðirnar á Norðurlöndum, hvað þá stærri þjóðir, afla sér árlega dýrmæts erlends gjaldeyris, svo að hundruðum milljóna króna skiptir, vegna aðstreymis útlendra ferðamanna, dreymir um, að land vort verði innan skamms fjölsótt ferðamannaland. En hér skortir enn flest. til þess að unnt sé að laða slíka gesti til landsins. Flugvélar eigum vér ágætar til mannflutninga milli landa, og er það í sjálfu sér mikilvægt atriði í þessu sam- bandi. Þetta er því að þakka, að bjartsýn- ir og duglegir menn hafa valizt til þess að starfa að íslenzkum flugmálum. Enn vanhagar oss um átök til þess að bæta úr gistihúsaskortinum hér á landi, og fjöl- margt annað þarf að gera, ef vér ætlum að fara að dæmi annarra menningarþjóða og skapa oss tekjustofn með því að taka á móti útlendingum. Á því leikur enginn vafi, að vér þurfum árlega að afla mikils erlends gjaldeyris, til þess að oss sé unnt að lifa því menningarlífi, sem þjóð vor gerir orðið kröfur til. En það er eins og margir íslendingar haldi enn dauðahaidi í þá rótgrónu skoðun, að þessa gjaldeyris eigum vér og megum aðeins afla oss með sölu sjávarafurða. Meðan sú skoðun hel- tekur forvígismenn þjóðarinnar, er þess vart að vænta, að verulegur skriður kom- ist á það framtíðarmál að gera ísland að ferðamannalandi, í stað þess að hingað komi einungis fólk, er nefnir sig „íslands- vini“, alls konar boðsgestir á vorn kostn- að, erlent fólk í atvinnuleit o. s. frv. Eins og sakir standa, er höfuðstaður fslands ákaflega snauður að þægindum, miðað við það, sem títt er um erlendar borgir. Mér flýgur í því sambandi í hug gömul stofnun: aðaljárnbrautarstöð Kaup- mannahafnar, sem opnuð var árið 1911. Þótt ekki sé þar umferð á borð við allt það mannhaf, sem sjá má á höfuðjárn- brautarstöðvum t. d. í London og New York, er umferðin þó geysimikil, og marg- ar eru þær milljónir manna, sem fyrst hafa kynnzt þjóðlífi Dana, er þær stigu inn um þetta merkilega hlið í hjarta Kaupmannahafnar. Einu sinni sem oftar, er mér varð reik- að um aðaljárnbrautarstöð Khafnar, fór ég að gefa því gætur, hversu margs konar þægindi væru þar handa ferðafólki því, sem sfellt kemur og fer. Við lauslega at- hugun gat að líta eftirtalin 12 fyrirtæki, er buðu fram þjónustu sína: 1. Skrifstofu, þar sem gestir gátu annazt bréfaskriftir sínar; 2. póststofu og símastöð; 3. sölubúð með ritföngum og ýmsum smámunum til endurminningar frá Danmörku; 4. skrif- stofu, þar sem vélritarar og hraðritarar voru reiðubúnir til að skrifa bréf á helztu erlendum málum; 5. blaða- og bókasölu; 6. veitingastofur 7. sælgætissölur; 8. banka; 9. ávaxtabúð og blómasölu; 10. rakara- og hárgreiðslustofu; 11. skóburstun og 12. lögreglustöð. Þá hafa verið taldar 12 tegundir þæg- inda í einni járnbrautarstöð norrænnar höfuðborgar. Enn er að vísu alllangt skref frá þægindaskortinum, sem mætir augum erlendra gesta í Reykjavík, til slíkrar stofnunar. En ef hér verður að unnið af jafnmikilli einbeitni og bjartsýni og unn- ið hefur verið á sviði íslenzkra flugmála,

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.