Samtíðin - 01.06.1950, Blaðsíða 8

Samtíðin - 01.06.1950, Blaðsíða 8
4 SaMTÍÐIN sem ekki var spáð vel fyrir þar til fyrir skemmstu, ætti ísland að geta hafið arð- vænlega móttöku erlendra gesta. Vér eig- um ágætar laxveiðiár og hverasvæði, svo að aðeins tvenns sé minnzt, sem hið mikla ferðamannaland Danmörku skortir alger- lega. Óskandi væri, að reynt yrði að forð- ast hættuleg víxlspor í baráttunni fyrir því að gera ísland að ferðamannalandi. Slíkt mundi geta orðið þeirri mikilvægu sjálfbjargarviðleitni vorri óheppilegur Þrándur í Götu. V ORLJÓÐ Er blánar um brúnir fjalla og birkið í hlíðum grær, þá yngist minn hugur óður, og örar hjartað slær. Því gróandans angandi ilmur og útsýnin himinvíð það yndi mér aftur vekja, sem æskunnar prýddi tíð. Og þó að það löngu sé liðið, og lokuð þess gullnu vé, þess endurskin alltaf vermir, þótt aðeins í draumum sé. Knútur Þorsteinsson frá Úlfsstöðum. Frúin: „Hefur yður nokkurn tíma verið boðin vinna?“ Betlarinn: „Aðeins einu sinni, frú mín góð, og að pví undanteknu hef ég hvarvetna mætt stökustu góð- vild.“ SIGURGEIR SIGURJÓNSSON hæstaréttarmálaflutningsmaður. Aðalstræti 8. — Sími 1043. Skrifstofutimi 10—12 og 1—6. Vitíð þér þetta ? Svörin eru á bls. 29. 1. Hver orti þetta: Hver er allt of uppgefinn eina nótt að kveða og vaka. 2. Hvað merkir fornyrðið bjaanak? 3. Hver er fyrsta ræktaða jurtin, sem heilög ritning getur með nafni? 4. Hvar er bærinn Hlemmiskeið? 5. Hver var Joseph Haydn? FORSTJÖRINN: „Mikið skrambi eruð þér utan við yður upp á síð- kastið, Runólfur minn. Eg fæ ekki betur séð en að allt bóldialdið hjá yður mori af reikningsskekkjum." Bókhaldarinn: „Svona fer ástin í taugarnar á manni, forstjóri góður. Ég elska dóttur yðar. Viljið þér leggja því máli liðsyrði yðar?“ Forstjórinn: „Nei, nú feilreiknuð- uð þér yður fyrst fyrir alvöru, Run- ólfur minn.“ GESTURINN: „Ég get ekki hugsað mér neitt öllu ógeðslegra en hár í súpunni." Þjónninn: „Og ég get ekki hugsað mér neitt öllu ógeðslegra en súpu í hárinu á gestunum.“ TVEIR SKOTAR fóru á fiskveiðar og komu sér saman um, að sá þeirra, sem fyrr yrði var, skyldi bjóða liin- um í miðdegisveizlu. Þeir voru búnir að dorga í fjóra klukkutíma, þegar þeir urðu þess varir, að hvorugur hafði nokkurn öngul á færinu.“

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.