Samtíðin - 01.06.1950, Qupperneq 12
8
SAMTÍÐIN
Fagurhólsmýrar, Kirkjubæjarklaust-
urs og Vestmaunaeyja. Einnig hefur
verið lent á fjölmörgum öðrum stöð-
um vegna sjúkraflutninga og af
öðrum ástæðum. En millilandaflug-
vélar félagsins hafa haldið uppi á-
ætlunarferðum til Prestwick og
Kaupmannahafnar, London, Oslóar,
Stokkhólms og New York. Þá hafa
verið farnar leiguferðir til Parísar,
Rómar, Ainsterdam, New York,
Grænlands, Mið- og Suður-Ameríku.
Farþegaíiutningar félagsins liafa
numið sem hér segir:
Árið 1944 268
— 1945 4,327
— 1946 5,693
— 1947 ,13,607
— 1948 17,765
— 1949 18,735
Jan.—marz 1950 1,111
Samtals 61,506 farþegar
Flugferðir liafa á þessum árum
numið þetta mörgmn km:
Árið 1944 21,920
— 1945 194,930
— 1946 265,365
— 1947 711,501
— 1948 1,294,386
— 1949 1,357,475
Jan.—marz 1950 48,549
Samtals 3,894,126 km
Iljá Loftleiðum störfuðu árið sem
leið samlals 85 manns.
Flug er oss
brýn nauðsyn.
£FTIR SKELEGGA baráttu þeirra
manna, er gerzt hafa forvígis-
menn á sviði íslenzkra flugmála, er
nú svo komið, að Islendingar eiga
nægan flugflota til þess að ann-
ast ferðalög þjóðarinnar loft-
leiðis, en þau eru orðin hlutfallslega
meiri en með nokkurri annarri þjóð.
Það er langt síðan íslenzku þjóðinni
var ljóst, að henni var það lífsnauð-
syn að taka siglingamál sín í eigin
liendur, enda auðsætt, þegar um
eyjarþjóð er að ræða. En áhugamenn
um íslenzk flugmál eiga skildar
þakkir alþjóðar fyrir að hafa sýnt
og sannað, að eigi tjáir annað en
að vér förum sjálfir með flugmál
vor og að flug er tímans krafa hér
á landi. Hins vegar slcortir mjög á,
að búið hafi verið þannig að ís-
lenzkum flugfélögum fjárhagslega
sem ýmsar öndvegisþjóðir á sviði
flugmálanna telja sér skylt og nauð-
synlegt, þegar flugfélög þeirra eiga
hlut að máli. Má í því sambandi
nefna aðrar Norðurlandaþjóðir,
Breta, Frakka, Hollendinga og
Bandaríkjamenn, þar sem flug er
ýmist rekið af ríkinu eða styrkt veru-
lega af því. I Bandaríkjunum hefur
t. d. þeirri reglu verið fylgt að veita
flugfélögum eftir á viðbótargreiðslur
fyrir póstflutninga, þegar komið hef-
ur á daginn, að rekstursafkoma
þeirra var þannig, að þeim var þörf
á fjárhagslegum stuðningi. Islenzk
ílugfélög hafa löngum stillt fargjökl-
um sínum mjög í hóf, en þess ber
að gæta, að á millilandaleiðum eru
þau háð alþjóðasamkomulagi, hvað
ákvörðun fargjalda snertir. Af hálfu
forráðamanna íslenzka ríkisins virð-
ast íslenzkar flugsamgöngur ekki enn
hafa notið skilnings á borð við þann,
sem komið hefur fram í stuðningi