Samtíðin - 01.06.1950, Page 14

Samtíðin - 01.06.1950, Page 14
10 SAMTÍÐIN verið spurnameistari og stúdentafé- lagið hóað saman litlum hópi manna hverju sinni til að láta þá, einn eða fleiri, svara hverri spurningu, sem honum sýndist að bera upp fyrir þá. Þessar spurningar voru sumar komnar frá viðstöddum fundarmönn- um og ókunnar Einari, fyrr en svara skyldi. Aðrar kom hann með á fundinn. En enginn, sem hann spurði, fékk að vita neitt um efni spurninganna, fyrr en þær voru bornar upp hver um sig. Sú regla hefur bezt gefizt erlendis, nema um sé að ræða fyrirspurnir, sem gagns- laust væri að reyna að svara án þess að viða að sér þekkingaratriðum til svarsins. Þá yrði að hafa sömu að- ferð, sem kunnug er í útvarpi t.d. í spurningum og svörum um íslenzkt mál. Þótt það megi vel, mundi ég vara við að taka fleiri en 1—2 slík- ar spurningar á livern fund, og nú í byrjun var án efa rétt að útiloka þær og þar með allan þungann — með þótta okkar, hróðugra fræðimanna. Spurningaþættir stúdentafélags- ixis hafa fengið gott orð hjá hlust- endum, svo að þeir verða sýnilega mjór mikils vísir hér á landi, hvað sem á kann að hafa vantað, að þeir fullnægðu vonum mínum og ann- arra. Ég tel reynsluna þegar sýna, að vandfenginn yrði heppilegri mað- ur en Einar Magnússon til að stýra spurningum, sem menn af öllum tegundum eiga að svara. Annars mundi ýmsum þykja lík- legt, að þjálfun til leikstjómar væri nauðsynleg eða þá löng æfing með sama „spakrahópinn“ til að ná full- komnun í hlutverki spurnameistara. J^lTUM Á þróun spakraspurna í Englandi. Hugmyndin var sprott- in upp í Ameríku. Hópur fjölhæfra manna, sem Roosevelt kaus til sam- ræðna við sig um þjóðmál í kosninga- baráttu 1932 og síðan við fram- kvæmd New Deal-stefnu sinni, fékk af alþýðu nafnið brain trust („hring- ur góðra heila“). En með Bretum er heitið brains trust liaft á seinni árum um hóp sérfróðra eða hámenntaðra manna, sem kallaðir eru á fund saman, til að svara spurningum, hvort sem þær hedmta skilning, þekking eða gamansemi. Kuxmastur var hópur- inn, sem var í brezka útvarpinu á stríðsárunum lengi. Spurðir voru þar dr. Julian Huxley, prófessor C. E. M. Joad og A. B. Campbell höfuðsmaður, en spurnameistari var Donald McCullough, sem varð þjóð- frægur af hlutverkinu. Fyrsta árið, sem brezka útvarpið hafði spakra- spurnir þessar, bárust því yfir 90 þúsund spurningar, en einungis 400 spurnhigum vannst tími til að svara. Álitið var, að 10 milljón manns hlustuðu að jafnaði á þessa þætti eða fleiri en á flestalla aðra dagskrár- liði, —- svo telja enskar alfræðibæk- ur nú. — Spurningum var öllum haldið leyndum fyrir þeim, sem spurðir voru, og þeir látnir svara án minnstu umhugsunar. Um allt England voru spakra- spurnir síðaxi teknar upp í félögum eða á vegum borgarstjórna eða fræðslumálastjórnar, og yfirleitt var reynt að velja þá menn eina, sem bezt þóttu duga, og láta þá sam-

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.