Samtíðin - 01.06.1950, Síða 17

Samtíðin - 01.06.1950, Síða 17
SAMTÍÐIN 13 /50. íaga „SamtdiannncLr Tyrones lávaröar Fylgizt með þessari framhaldssögu. Svipur þAÐ VAR hráslagalegur október- morgunn á ofanverðri seytjándu öld. Hin fornu tré kringum höfð- ingjasetur Gill-ættarinnar höfðu skrýðzt gullnum skarlatslit haust- skógarins, smai'agðslitt grasið var baðað dögg, fuglar sungu á limgerð- um, og hinn írski himinn var fagur- blár. Sir Tristram Beresford skundaði hröðum skrefum inn í horðsalinn og bað frú MacGill, systur konu sinnar, afsökunar með þessum orðum: „Mér þykir mjög leitt, að ég skuli vera orðinn of seinn, en moi’gunninn var svo heillandi, að ég geltk lengur en ég hafði ætlað mér. Nicola svaf mjög vært, þegar ég fór. Ég vona, að þið hafið þegar borðað morgun- verð, en ekki verið að bíða eftir mér.“ „Nicola er enn ókomin niður,“ anzaði frú MacGill og snerti bjölluna lítillega. „Ég þorði ekki annað en senda upp til hennar, af því ég hélt, að hún kynni að vera veik, en hún kemur niður eftir andartak, svo þú þarft ekki að borða einsamall, það vill nú svo til.“ Sem hún hafði þetta mælt, kom lafði Beresford inn í borðsalinn. Hún var náföl, og það var einhver annar- legur svipur á fögru andliti hennar. Sir Tristram brá í hrún. „Ertu veik, elskan mín?“ spurði hann. „Hefur þér liðið illa í nótt? Þú ert náföl.“ V; „Nicola. Af hverju ertu með þess- ar svörtu umbúðir um úlnliðinn? Hefurðu dottið og meitt þig?“ spurði frú MacGill kvíðafull. Sir Tristram bauð hinni ungu konu sinni sæti við borðið. „Hvað er að vinstri úlnliðnum á þér?“ spurði hann. „Segðu okkur, Nicola, hvað liefur eiginlega komið fyrir þig?“ Frú Beresford lygndi augunum þreytulega og hallaði sér andartak aftur á bak í stólnum. Síðan leit hún á mann sinn og mælti: „Spyrðu mig ekki, hvers vegna ég sé með þessar svörtu umbúðir um úlnliðinn. Ég treysti þér til að gera það aldrei. Þú munt ekki framar sjá mig án þeirra, en þú mátt aldrei mmnast á þær. Lofaðu mér því, að þú ætlir aldrei að nefna þær á nafn.“ Sir Tristram vissi ekki, hvaðan á sig stóð veðrið. „Þú mátt ekki heldur spyrja mig, systir. Lofið þið mér þessu nú, bæði tvö!“ „Hvað er eiginlega um að vera, Nicola? Þú virðist hókstafléga vera öll önnur en þú átt að þér að vera. Þú gerir mig skelfing kvíðafulla. Þú þarft ekki að segja mér þetta leynd- armál þitt, fremur en þér sýnist, en segðu Sir Tristram frá þvi,“ mælti frú MacGill. „Nei! Þið verðið bæði að heita mér því að minnast aldrei á það framar,“ sagði frú Beresford með ákefð. Nú var morgunverðurinn fram- reiddur, og þá mælti Sir Tristram,

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.