Samtíðin - 01.06.1950, Page 22

Samtíðin - 01.06.1950, Page 22
18 SAMTÍÐIN 3. grein Fróðleiksþáttur jBCATALA Bandaríkjanna nam sl. ár 149,000,000, og hafði fólkinu fjölgað í landinu um röskarl 7,000,- 000 síðan 1. apríl 1940, er síðasta opinbert allsherjamianntal fór fram. Af öllum þessum mannfjölda stunda 140,000 menn fiskveiðar, og afla þeir 1,800,000,000 kg af fiski á ári. I landinu eru 35,500,000 giftar konur, og starfar tæpl. 14 hluti þeirra utan heimila sinna. Meðalaldur sveitakvenna er talinn 70,6 ár, en karla í sveit 65,2 ár. 1 Bandaríkjun- um eru samtals 199,745 læknar, og ná þeir ekki hærri meðalaldri en 44 árum. 1 sjúkrahúsum landsins dvöld- ust á árinu 1948 samtals 16,500,000 sjúklingar. 1 prentsmiðjum ríkisins starfa samtals 715,000 manns. Tveir þriðju hlutar Bandaríkjanna (66%) eru bújarðir eða beitiland, um 26% eru skógar. Borgir, skemmtigarðar, vegir og járnbrautir taka yfir um 4% af ríkjunum, og ámóta landsvæði nema eyðimerkur og óhyggilegt blautlendi. 1 þessu mikla tæknilandi eru 33,300,000 skráðir fólksflutningabíl- ar og 51,500,000 menn, sem hafa ökuleyfi á híl. Um það bil 6,700 flug- vélar eru jafnan í förum fyrir ýmis verzlunarfyrirtæki landsins. Bandaríkin eru land hinna geysi- háu stórhýsa, sem setja mikinn og sérkennilegan svip á ýmis hverfi stórborganna, ekki sízt á Manhattan í New York. Háskólabyggingin í Pittsburgh er 42 hæðir. Ef starfsemi þess skóla færi fram í mörgum hús- um að enskum sið, mundi hann þarfnast 5,6 ha landrýmis, auk nú- verandi hyggingarlóðar sinnar. Fjarsýnitækjum hefur nú verið komið fyrir í öllum nýjum skólum í New York, og eru þau notuð við kennsluna. Smíðuð hefur verið ljós- myndavél vestra, sem hægt er að taka með myndir úr 6,600 metra hæð, og myndar hún þá 780 ferkílómetra svæði. □ . GREIN BRIDGE Eftir Ama M. Jónsson. JjYLEGA VAB háð blönduð „Para- keppni“ innan Bridgefélags Beykjavíkur, og má segja, að flestar af beztu bridgekonum bæjarins hafi verið með, en marga af beztu (að vísu eru þeir allir beztir!) körlunum vantaði og var þeirra vonandi sakn- að. Þátttaka var mjög mikil og ekki að efa, að þessi keppni verður mjög vinsæl meðal félagsmanna. Ekki er því að leyna, að dömurnar okkar eru veikari spilarar en karlarnir ennþá, en þær hafa ýmsa kosti fram yfir okkur, og það eru kostir, sem ýnisa af okkar beztu spilurum vantar, en það er hrennandi áhugi og samvizku- semi. Því aðeins verða menn góðir hridgespilarar, að þeir vandi sig alltaf, reyni alltaf að gera sitt bezta. Keppni þessari lauk með sigri þeirra frú Þorgerðar Þórarinsdóttur

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.