Samtíðin - 01.06.1950, Page 25
SAMTÍÐIN
21
íslenzku útgáfunni. Þar eru og rakin
í stuttu máli lielztu æviatriði Gogols,
en ævi hans var ærið harmsögu-
kennd. „Dauðar sálir“ eru aðeins
brot af því skáldverld, sem Gogol
hafði ætlað sér að semja mn þetta
söguefni sitt, eða einn þáttur af
þremur. En tveir seinni þættirnir
komu aldrei, og hin stranga rúss-
neska ritskoðun spillti sögunni að
sjálfsögðu nokkuð, en þó öllu minna
en við hefði mátt búast.
Gogol er hinn mikli sjáandi, eins
og hinar liárnákvæmu lýsingar hans
bera vitni um. Ekkert fær dulizt
honum. Lýsingarnar ghtra af innsæi,
og frásögnin svellur af þrótti og
efnismergð. En hætt er við, að tals-
vert af stíleinkennum mikils rithöf-
undar fari forgörðum, þegar þess er
ekki kostur að þýða verk hans af
frummálinu, heldur verður að fara
eftir þýðingu á fjarskyldu máli. Is-
lenzki búningurinn virðist þó fara
efninu vel, enda er þýðandi alkunnur
hagleiksmaður á íslenzkt mál. Það er
vonuni seinna, að íslenzkar bók-
menntir hafa eignazt þetta merka
verk. „Listamannaþing“ Helgafells
eru orðin eiguleg ritsöfn, en þetta er
IX. og næstsíðasta bindi hins síðara.
í sænsku blaði stóð nýlega:
Áður fyrr reið djöfullinn geithöfr-
um. Nú ríður hann stjórnmála-
flokkunum til skiptis.
OSKAR SÓLBERGS
feldskurðarmeistari.
Laugavegi 3. — Sími 7413.
Alls konar loðskinnavinna.
Sernh. peterMH
Reykjavík.
Símar: 1570 (2 línur).
Símnefni: „Bernhardo“.
KAUPIR:
Þorskalýsi, allar tegundir, Síld-
arlýsi, Sellýsi, Síldarmjöl, Stál-
föt, Síldartunnur.
SELUR:
Lýsistunnur, Síldartunnur, Kol í
heilum förmum, Salt í heilum
förmum.
•
— Ný fullkomin kaldhreinsunarstöð.—
Lýsisgeymar fyrir 6500 föt.
Sólvallagötu 80. — Sími 3598.
Georg & Co. h.f.
PAPPAUMBOÐIR
Skúlagötu 59 — Sími 1132
Framleiðum alls konar pappa-
umbúðir fyrir iðju og iðnað, t.d.
fyrir:
Skóverksmiðjur
Efnagerðir
Smjörlíkisgerðir
Sælgætisverksmiðjur
Saumastofur
Klæðskera
Bakara
Snyrtivörur o.fl o.fl.
Smekklegar umbúðir
eru bezti seljarinn.