Fréttablaðið - 23.12.2009, Síða 8
8 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
A
u
g
lý
si
n
g
as
ím
i
– Mest lesið
1. Hvert er hæsta þrepið í nýju
tekjuskattskerfi?
2. Hver er formaður flugráðs?
3. Hver voru útnefnd knatt-
spyrnumenn ársins af hálfu
Alþjóðaknattspyrnusambands-
ins?
SJÁ SVÖR Á BLAÐSÍÐU 42
STJÓRNMÁL Þurfi að kalla saman
landsdóm til að fjalla um hugsan-
leg brot ráðherra, í kjölfar skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis, verð-
ur það gert samkvæmt núgildandi
reglum um skipan dómsins.
Forseti Alþingis, Ásta Ragnheið-
ur Jóhannsdóttir, segir að ekki gef-
ist tími til að breyta skipan í lands-
dóm áður en skýrslan kemur út 1.
febrúar.
„En ég tel ástæðu til að endur-
skoða þessi lög og mun setja vinnu
á laggirnar til þess samkvæmt
ábendingu nefndar um eftirlitshlut-
verk Alþingis,“ segir Ásta.
Varaþingmaður VG, Arndís
Soffía Sigurðardóttir, spurði forset-
ann um landsdóminn í síðustu viku,
og var það í fyrsta skipti sem for-
seti Alþingis fékk fyrirspurn, eftir
lögum frá 2007.
„Ég vildi kasta ljósi að Alþingi í
þessu sjálfstæða eftirlitshlutverki
gagnvart framkvæmdarvaldinu,“
segir Arndís. Mikilvægt sé að fá
afstöðu forseta Alþingis fram, áður
en skýrslan verður birt.
Gagnrýni hafi beinst að því
pólitíska ívafi sem einkenni skipan
átta dómara landsdóms af fimmt-
án, en þeir eru kosnir hlutfallskosn-
ingu af Alþingi. Arndís tekur undir
þessi sjónarmið en um leið önnur, að
endurskoðun á þessum reglum gæti
vakið grunsemdir um að hún færi
fram, lituð af ríkjandi aðstæðum.
„Ég vil koma þessari umræðu af
stað svo fólk sé meðvitað um þetta.
Að það ríki sátt um landsdóm, en
ekki tortryggni,“ segir Arndís.
- kóþ
Forseti Alþingis svarar fyrirspurn þingmanns í fyrsta sinn í sögunni:
Of seint er að hrófla við landsdómi
FILIPPSEYJAR, AP Eldfjallið Mayon
á norðanverðum Filippseyj-
um er eins og tifandi sprengja
þessa dagana. „Hættuleg spreng-
ing gæti orðið í dag eða næstu
dögum,“ segir Renato Solidum
eldfjallafræðingur.
Nærri allir íbúar í næsta
nágrenni fjallsins, um 45 þúsund
talsins, hafa nú forðað sér á örugg-
ari slóðir. Flestir hafast þeir við í
neyðarskýlum, skólum og íþrótta-
húsum í nærliggjandi byggðum,
en sumir gista hjá ættingjum og
vinum.
Stöðug aska streymir úr fjallinu
og hraun vellur niður hlíðarnar.
Jarðskjálftar mælast með stuttu
millibili og telja jarðfræðingar
verulegar líkur á sprengigosi.
Enn eru þó um tvö þúsund manns
í innan við átta kílómetra fjarlægð
frá fjallinu, en það er sú fjarlægð
sem miðað er við þegar fólk er
hvatt til að forða sér. Hermenn og
lögregluþjónar hafa verið á eftir-
litsferðum um svæðið til að hvetja
fólk til að fara á brott.
Síðast gaus Mayon árið 2006. Þá
voru 30 þúsund manns fluttir frá
hættuslóðunum. Árið 1979 kostaði
gos í fjallinu 79 manns lífið. Fjallið
hefur gosið nærri 40 sinnum síðan
1616. Mannskæðasta gosið varð
árið 1814, en þá létu meira en 1.200
manns lífið. gudsteinn@frettabladid.is
Beðið eftir
sprengingu
Nærri allir íbúarnir í nágrenni eldfjallsins Mayons
hafa forðað sér af ótta við sprengingu, sem gæti orðið
hvenær sem er. Hraun streymir stöðugt úr fjallinu.
ELDFJALLIÐ MAYON Hefur gosið nærri 40 sinnum síðustu fjórar aldirnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ARNDÍS SOFFÍA
SIGURÐARDÓTTIR
ÁSTA RAGNHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksókn-
ari fór ekki fram á framlengingu á
farbanni yfir Jóni Þorsteini Jóns-
syni, fyrrverandi stjórnarfor-
manni Byrs, en bannið rann út í
fyrradag. Þetta kemur fram á vef
Ríkisútvarpsins. Þar er haft eftir
Ólafi Þór Haukssyni að rannsókn-
arhagsmunir hafi ekki kallað á
framlengingu farbannsins.
Rannsóknin snýr að sölu stofn-
fjárbréfa í Byr fyrir milljarða
króna til félagsins Exeter Hold-
ing. Meðal seljenda voru Jón Þor-
steinn og MP banki. Meðal þeirra
sem eru með réttarstöðu grunaðra
í þessu máli er Jón Kr. Sólnes,
stjórnarmaður í Byr.
Rannsókn á Byrsbréfum:
Ekki framlengt
á Jón Þorstein
VEISTU SVARIÐ?