Fréttablaðið - 23.12.2009, Blaðsíða 16
16 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Upplýsingar um útsölustaði á
www.raymond-weil.com
Ullarjakkar
Áður 19.990
Nú 14.990
Stærðir 36-48
ALÞINGI Fjárlög næsta árs voru
samþykkt á Alþingi í gær. 33 þing-
menn stjórnarflokkanna greiddu
atkvæði með frumvarpinu en 26
þingmenn stjórnarandstöðunnar
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Fjórir voru fjarstaddir.
Ríkissjóður verður rekinn með
99 milljarða króna halla á næsta
ári. Það merkir að útgjöldin verða
99 milljörðum króna hærri en tekj-
urnar. Samkvæmt fjárlögunum
verða útgjöldin rúmlega 561 millj-
arður en tekjurnar tæplega 462
milljarðar.
Líkt og vanalega vega félags-,
trygginga- og heilbrigðismál þyngst
í útgjöldunum en nú ber svo við að
vaxtagjöld eru meðal hæstu liða.
Ríkið mun greiða um 95 milljarða í
vexti á næsta ári.
135 milljarðar fara í verkefni
félags- og tryggingamálaráðu-
neytisins og 95 milljarðar til heil-
brigðismála. Sextíu milljarðar fara
í menntamál.
Halli næsta árs verður nokk-
uð minni en ársins sem er að líða.
Stefnir í að hann verði um 160
milljarðar.
Fjárlagafrumvarpið, sem fjár-
málaráðherra mælti fyrir við
þingbyrjun í október, tók nokkrum
breytingum í meðförum Alþingis.
Voru á þriðja tug breytingatillagna
lagðar fram, sumar í einum lið en
aðrar í tugum liða. Er skemmst
frá því að segja að flestar tillög-
ur stjórnarandstæðinga voru
felldar en tillögur stjórnarliða
samþykktar.
Meginstefið í gagnrýni stjórn-
arandstæðinga á fjárlagafrum-
varpið var að það væri illa unnið.
Tvinnaðist sú gagnrýni á stundum
við óánægju stjórnarandstæðinga
með skattahækkanir stjórnvalda.
Voru tekjuáformin sögð óraunhæf
og ósanngjörn. Fjöldi útgjaldaliða
hlaut einnig harða gagnrýni. Var
stjórnarliðum raunar borið á brýn
að hafa heykst á að spara nægilega
í ríkisrekstrinum.
Talsmenn stjórnarflokkanna vís-
uðu öllum ásökunum í þessa átt á
bug. Sögðu þeir frumvarpið bera
vott um ábyrgan rekstur og tekju-
aukann með skattbreytingunum
nauðsynlegan.
Við gerð fjárlaga var stuðst við
efnahagsáætlun stjórnvalda og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Taka
þau mið af þeim markmiðum sem
þar koma fram um að frumjöfnuði
verði náð 2011 og að afgangur verði
á ríkissjóði 2013. bjorn@frettabladid.is
Hallinn á ríkissjóði
verður 99 milljarðar
Vaxtagreiðslur verða meðal hæstu gjaldaliða ríkissjóðs á nýju ári. 230 milljarð-
ar fara í félags-, trygginga- og heilbrigðismál. Hallinn á næsta ári verður um 60
milljörðum lægri en í ár. Stjórnarandstaðan segir fjárlög næsta árs óraunhæf.
FRÁ ALÞINGI Fjárlagafrumvarpið var samþykkt í gær með 33 atkvæðum stjórnarliða. 26 stjórnarandstæðingar sátu hjá.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Þing kemur saman milli jóla og nýárs til að
taka Icesave-málið til þriðju umræðu. Verður þing-
fundur á mánudag og hugsanlega dagana tvo á eftir.
Sjaldgæft er að þingfundir séu milli hátíða. Hefur
það raunar aðeins gerst þrívegis á lýðveldistíman-
um, árin 1958, 1987 og 1994.
Árið 1994 voru lánsfjárlög, ráðstafanir í ríkisfjár-
málum og staðfesting á stofnaðild að GATT-samn-
ingnum enn óafgreidd þegar jólin gengu í garð. Bar
því nauðsyn til að funda að þeim loknum og afgreiða
málin fyrir áramót.
Árið 1987 voru fjárlög næsta árs enn ósamþykkt
fyrir jól. Fundaði þingið því 28. desember það ár.
Auk samþykktar fjárlaganna voru gerðar breyting-
ar á lögum um stjórn fiskveiða og söluskatt.
Tvö mál voru rædd á þingfundi 29. desember
1958. Voru bæði tilkomin vegna óafgreiddra fjár-
laga. Annað snerist um bráðabirgðafjárgreiðslur
úr ríkissjóði en með hinu var ráðherra veitt heim-
ild til að fresta ákvörðun framlaga og iðgjalda til
almannatrygginga þar til fjárlög hefðu verið sett.
Icesave-málið var afgreitt úr fjárlaganefnd í
gær. Ósamkomulag er milli stjórnarliða og stjórnar-
andstæðinga og því allt eins viðbúið að umræður
um málið taki drjúgan tíma. Þingsköp koma þó í veg
fyrir að ræðumenn geti talað að vild. - bþs
Þingfundir hafa þrisvar sinnum verið haldnir milli hátíðanna á lýðveldistímanum:
Icesave á dagskrá á mánudag
ANDSTAÐAN Stjórnarandstaðan hefur barist gegn samkomu-
lagi stjórnvalda um Icesave.
STJÓRNMÁL Áformað er að setja reglur um skráningu á
fjárhagslegum hagsmunum þingmanna inn í þingsköp
Alþingis á næsta ári.
Sem stendur hafa þær einungis verið eins konar
vinnureglur, sem skrifstofa Alþingis hefur mælt með
að þingmenn fari eftir.
Þegar reglurnar voru samþykktar síðastlið-
ið vor var rætt um að gera þær síðar meir að
lögum. Þannig mætti skylda þingmenn til að
skrá upplýsingar um sig. Einnig mætti refsa
þeim fyrir brot á lögunum.
Með því að setja reglurnar í þingsköp
verða þær að lögum. Hins vegar eru engin
refsiákvæði innan þingskapalaga.
Spurð hvort eftirlit verði haft með því
að þingmenn skrái satt og rétt hags-
muni sína og trúnaðarstörf segir Ásta
R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, það
óákveðið. Þetta skýrist þegar lagabreytingin verður
gerð.
Spurð hvort rætt sé um að gera um lögin einhvers
konar refsiramma, sem er til dæmis sex ár í lögum
um fjármál stjórnmálasamtaka, segir Ásta ómögu-
legt að vita hversu langt verði gengið. Það skýrist í
vinnunni fram undan.
Hún segir að litið sé til Svíþjóðar í þessum
efnum, þar sem reglurnar eru einnig lögbundnar.
Reglurnar tóku gildi 1. maí og kveða á um að
þingmenn skrái upplýsingar um fjárhag sinn
og störf utan þings. Upplýsingarnar birtast
á vef Alþingis. - kóþ
Forsætisnefnd skyldar kjörna fulltrúa til að upplýsa um fjárhag sinn:
Þingmannareglur að lögum
ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR Forseti
Alþingis hugar nú að hertum reglum um
þingmenn, þannig að þeir verði skyldaðir til að
birta upplýsingar um fjárhag sinn og trúnaðar-
störf utan þings. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR Rekstur Slipps-
ins á Akureyri hefur ekki gengið
betur frá því nýir eigendur tóku
við árið 2005. Starfsmönnum fyr-
irtækisins hefur verið fjölgað um
25 á árinu og eru nú tæplega 130.
Til viðbótar hafa um 30 starfs-
menn undirverktaka verið við
vinnu þar undanfarna mánuði.
Slippurinn festi kaup á hús-
eignum Loftorku í síðustu viku.
Einnig var húsnæði bátasmiðj-
unnar Seiglu tekið yfir nýlega. Þó
stendur ekki til að hefja skipa-
smíði á ný í slippnum, að því er
fram kemur í máli Antons Benja-
mínssonar framkvæmdastjóra á
síðunni vikudagur.is. - þeb
Slippurinn á Akureyri:
Ekki gengið
betur í mörg ár
TÍGRISDÝR AÐ MOKA Maður klæddi
sig upp sem tígrisdýr þegar hann tók
til hendinni í Kænugarði fyrir skömmu.
Maðurinn ákvað að bregða á leik fyrir
ljósmyndara nokkurn sem tók myndir
fyrir nýtt dagatal sem á að koma út á
næsta ári. NORDICPHOTOS/AFP