Samtíðin - 01.12.1960, Qupperneq 20

Samtíðin - 01.12.1960, Qupperneq 20
12 samtíðin „Guð minn góður,“ andvarpar gamla konan, „og þú segist ætla að gefa mér aftur heilan sæludag æsku minnar — án morguns og kvölds?“ „Og alla ævi mína i viðbót,“ svarar gesturinn. „Ef þú vilt koma hingað út i sólskinið, fer ég aldrei frá þér liéðan af.“ „Ég er orðin hálfhlind,“ segir hún og her sig að rísa á fætur. „Hvar settirðu flöskuna?“ „Við bæjardyrnar.“ „Bíddu ögn,“ segir hún. „Leyfðu mér að hugsa í næði.“ Og hann finnur, livernig endurminn- ingárnar þyrpast fram i huga liennar eins og sandurinn, sem sígur gegnum öng stundaglassins, hvernig tómleiki margra áratuga rennur þar í gegn til að rýma fyr- ir minningunni um eina sumarferð hjartra dægra norður lieiðar. „Þú ætlar að koma til mín út í sól- skinið, Þóra mín,“ segir hann. „Þetta er allt svo undarlegt,“ anzar gamla konan. „Allt i einu finnst mér þessi eini dagur, sem þú varst að tala um, meira virði en öll eilífðin.“ „Það er satt,“ segir hann, „meira virði en allt annað, af því að hann opnar leiðina að dyrum Guðs.“ ÞUNGT fótatak kveður við inni i bæn- um, og síðan er lyklum snúið í ryðguðum skrám. Það marrar í stirðum hjörum, hæjardyr opnast í hálfa gátt, og gömul hönd seilist eftir flösku, sem stendur á hellunni. Einn teygur, og það hriktir i bænum. Hurðir og gluggar opnast sjálfkrafa upp á gátt, og vorblærinn feykir burt ryki heillar mannsævi. Síðan er tómri flösku þeytt af hendi langt út á lilað, og ung stúlka, björt eins og vorið góða, frjáls eins og fuglinn trúr, birtist í bæjardyr- unum. Þyrnirósa hefur verið vakin af áratuga svefni. Hún stendur þarna al- búin að minnast við riddarann sinn úr suðrinu sæla. En niðri á þjóðveginum stendur vika- piltur frá öðrum bæ, skyggir liönd yfir augu og horfir agndofa á undrið heúna við gamla hæinn. Og úti i móanum heils- ar þrösturinn með fagnaðarkvaki þvi> sem fyrir ber. „Af liverju horfir pilturinn svona a mig og hvers vegna ljóðar þrösturinn svona glatt?“ spyr stúlkan. „Er ég virki- lega orðin ung og fögur að nýju?“ „Ung og fögur,“ svarar gesturinn og gengur til móts við hana. „Og heldurðu, að öllum finnist ég lika ung og fögur, þegar við komum niður 1 borgina á eyrinni við fjörðinn okkar? segir hún. „Öllum,“ svarar hann með ástarhrehn i röddinni. „Ég trúi þér, Jónas,“ segir hún gagn- tekin fögnuði. „Ég hef alltaf skynjað ná- lægð þina í myrkri langra áratuga.“ Hann vefur hana örmum, og síðan leiðast þau fram dalinn ofar umferð og þysi nýrrar aldar. París, júlí 1960. Varðveittu bros þitt, og allir rru11111 furða sig á, hvað komið hafi fyrir þl9- „Segðu mér glæpasögu, Guðmundur. „Hvernig í ósköpunum dettur þér 1 hug, að ég kunni nokkra?“ „Nú, hún mamma segir alltaf, að sl9 hrylli svo við þér.“ „Nú förum við fram hjá stærstu ölgerð landsins," sagði leiðsögumaðurinn. „Þaðg e r u m við bara alls ekki!“ &pfl einn af íslendingunum og stökk út ur járnbrautarlestinni. ________ SAMTÍÐIN borgar 10 kr. fyrir hvern nýj®^ áskrifanda, sem henni er sendur, ef árgja* 1 1960 (65 kr.) fylgir pöntun. Ilaldið ómak9l*un unum eftir.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.