Fréttablaðið - 31.12.2009, Page 2
2 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært sex karlmenn, einn Íslend-
ing og fimm Litháa, fyrir mansal.
Þeim er gefið að sök að hafa flutt
hingað til lands nítján ára litháíska
stúlku í þeim tilgangi að notfæra
sér hana kynferðislega.
Að því er segir í ákærunni sem
Fréttablaðið hefur undir höndum
segir að stúlkan hafi verið beitt
ólögmætri nauðung, frelsissvipt-
ingu og ótilhlýðilegri meðferð
áður en og þegar hún var send til
Íslands. Sama hafi gilt um hana í
meðförum sexmenninganna hér á
landi, sem tekið hafi við stúlkunni,
flutt hana og hýst í því skyni að
notfæra sér hana kynferðislega.
Stúlkunni sem hafði verið svipt
frelsi sínu í Litháen og neydd til
að stunda vændi þar í landi, var
ekið frá borginni Panevezys í Lit-
háen til Varsjár í Póllandi. Þaðan
var hún til Íslands með flugi föstu-
daginn 9. október. Hún var send á
fölsuðum skilríkjum og flugmiði
hennar var á röngu nafni.
Áður en hún var send af stað
hafði hár hennar verið klippt og
litað og tekin af henni ljósmynd
sem sett var í skilríkin. Fékk
hún fyrst að vita á flugvellinum í
Varsjá að ferðinni væri heitið til
Íslands, þar sem hún þekkti engan.
Hún átti sér engrar undankomu
auðið, var algerlega háð þeim
sem sviptu hana frelsi og neyddu
hana til vændis, að því er segir í
ákærunni. Hún gat ekki snúið til
baka til Litháens.
Þrír Litháanna fóru á Keflavíkur-
flugvöll til þess að taka á móti
stúlkunni. Af móttökum varð þó
ekki þar sem lögreglan handtók
hana við komuna til landsins. Var
stúlkan í umsjá lögreglu og síðan í
húsnæði á vegum félagsmálayfir-
valda í Reykjanesbæ.
Litháarnir fimm sóttu hana
síðan skammt frá dvalarstað henn-
ar rétt eftir miðnætti þriðjudag-
inn 13. október. Þeir fluttu hana
í íbúð við Hörgsholt 27 í Hafnar-
firði, sem Íslendingurinn útveg-
aði. Þar hýstu mennirnir hana í
tvo daga. Að kvöldi fimmtudags-
ins 15. október fór einn Litháanna
með stúlkuna á Hótel Leif Eiríks-
son við Skólavörðustíg í Reykjavík
þar sem hann skildi hana eftir.
Brot allra sakborninganna telst
einkum varða við 227. grein hegn-
ingarlaganna, þar sem kveðið er
á um að refsing fyrir mansal geti
verið allt að átta ára fangelsi.
Stúlkan krefst 3,8 milljóna króna
í miskabætur.
Litháarnir voru úrskurðaðir í
Héraðsdómi Reykjaness í gær í
áframhaldandi gæsluvarðhald til
26. janúar. Íslendingnum hafði
áður verið sleppt. jss@frettabladid.is
Útliti mansalsstúlku
breytt fyrir Íslandsför
Einn Íslendingur og fimm Litháar hafa verið ákærðir fyrir mansal. Stúlka hafi
verið neydd til að stunda vændi í Litháen og síðan flutt nauðug hingað í sama
tilgangi. Áður var hár stúlkunnar klippt og litað til að falsa skilríki hennar.
MANSALSMENN FYRIR DÓMI Litháarnir voru úrskurðaðir í Héraðsdómi Reykjaness
í gær í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. janúar. Íslendingnum hafði áður verið
sleppt.
ÁRAMÓT Líklegt er að svifryks-
mengun verði þó nokkur og muni
liggja í loftinu í Reykjavík fram
eftir nýársnótt, þar sem búist er
við stilltu veðri.
Styrkur svifryks er oft yfir
mörkum á nýársnótt, og hefur svif-
ryk farið nítján sinnum yfir heilsu-
verndarmörk á árinu sem er að
líða. Þeir sem eru með viðkvæm
öndunarfæri og öndunarfærasjúk-
dóma þurfa því að gæta sín um
áramótin vegna loftmengunar,
að því er kemur fram í tilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg. Einnig
er minnt á að fólk beri ábyrgð á
því að skila leifum af flugeldum á
endur vinnslustöðvar. - þeb
Nýársnóttin í borginni:
Svifryksmeng-
un líklega mikil
STJÓRNSÝSLA Dómsmálaráðuneyt-
ið braut lög með því að rannsaka
ekki til hlítar skýringar fanga á
Litla-Hrauni á því að lyfseðils-
skyld lyf fundust í klefa hans, að
mati umboðsmanns Alþingis.
Fanginn kærði til ráðuneytis-
ins þá ákvörðun fangelsisyfir-
valda að refsa honum fyrir að
vera með lyfin, og sagði þau blóð-
þynningarlyf sem hann þyrfti
vegna hjartaaðgerðar. Ráðuneyt-
ið staðfesti með úrskurði niður-
stöðu fangelsisyfirvalda.
Umboðsmaður Alþingis beinir
þeim tilmælum til ráðuneytisins
að taka málið til endurskoðunar,
óski fanginn eftir því. - bj
Umboðsmaður Alþingis:
Ráðuneyti skoði
á ný mál fanga
HEIMSÆKIR VERKSMIÐJU Vladimír Pútín,
forsætisráðherra Rússlands, spjallar við
starfsmenn bílaverksmiðju í Vladívostok.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÚSSLAND Vladimír Pútín, for-
sætisráðherra Rússlands, opn-
aði á þriðjudag verksmiðju í
Vladívostok í suðausturhluta
Rússlands, þar sem setja á
saman bíla frá Kóreu.
Að því er fram kemur á frétta-
vefnum Ria Novosti var verk-
efnið sett af stað fyrir ári eftir
að stjórnvöld hækkuðu inn-
flutningsgjöld á notuðum bílum.
Ákvörðunin vakti reiði í þess-
um hluta landsins sem reiðir sig
að mestu á innflutning bíla frá
Asíu. Fyrsta stig bílasamsetning-
arinnar snýst um framleiðslu á
um 25.000 SsangYong-jeppling-
um á ári. Um mitt næsta ár hefst
samsetning á Isuzu-jeppum. For-
stjóri verksmiðjunnar hefur sagt
að með samsetningu innanlands
megi lækka verð á bílum sem
áður voru fluttir inn um fimm
prósent. - óká
Pútín opnar bílaverksmiðju:
Setja saman
kóreska bíla
Tæp 37 þúsund skrifað undir
Tæplega 37.000 höfðu um kvöld-
matarleytið í gær skrifað undir
undirskriftalista InDefence-hópsins
á vef hópsins. Þar er skorað á Ólaf
Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að
synja Icesave-lögunum staðfestingar,
samþykki Alþingi lögin.
UNDIRSKRIFTASÖFNUN
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Álfta-
ness hefur samþykkt að greiða
Sigurði Magnússyni, fyrrverandi
bæjarstjóra, biðlaun í samræmi
við ákvæði ráðningarsamnings
hans. Aðeins tveir bæjarfulltrú-
anna samþykktu þessa tilhögun,
einn var á móti en hinir fjórir sátu
hjá.
Eins og Fréttablaðið hefur skýrt
frá ber Sigurði að fá greidd átta
mánaða biðlaun samkvæmt ráðn-
ingarsamningi hans frá 2006.
Bæjar fulltrúar nýs meirihluta
sem tók við í haust töldu hins
vegar að Sigurður hefði sagt að
samningurinn yrði „leiðréttur“
þannig að hann fengi aldrei meira
en sex mánaða biðlaun. Sögðust
þeir vísa til orða Sigurðar á bæjar-
ráðsfundi í janúar á þessu ári.
Sigurður vék af fundinum þegar
bæjarstjórnin ræddi biðlauna-
málið. Tveir af þremur bæjar-
fulltrúum Á-listans, samherjar
Sigurðar, mótmæltu túlkun meiri-
hlutans. „Samningnum var breytt
á tímabilinu þannig að sex mánaða
biðlaunaréttur gilti ef hann starf-
aði út ráðningatímann, en ef hann
hætti á ráðningatímanum gilti
eldra ákvæði um árlega vaxandi
biðlaun,“ segir í bókun þeirra.
Þá sögðu umræddir tveir bæjar-
fulltrúar að rangt hefði verið farið
með laun og starfskjör Sigurðar í
fjölmiðlum. Í Fréttablaðinu var
sagt frá því 23. desember síðast-
liðinn að föst mánaðarlaun bæjar-
stjórans þáverandi hefðu numið
800 þúsund krónum. Voru það
uppreiknuð laun Sigurðar miðað
við þróun launavísitölu eins og
samningur hans gerir ráð fyrir.
Hvorki Sigurður sjálfur né Pálmi
Másson, núverandi bæjarstjóri,
hafa svarað fyrirspurnum um
starfskjörin. - gar
Meirihluti bæjarstjórnar Álftaness sat hjá í biðlaunamáli fyrrverandi bæjarstjóra:
Tveir dugðu til samþykktar biðlauna
SIGURÐUR MAGNÚSSON Núverandi
meirihluti á Álftanesi vildi ekki efna
biðlaunaákvæði ráðningarsamnings
bæjarstjórans fyrrverandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Haraldur, eruð þið ekki að
reka landsbyggðinni kinnhest
með þessu?
„Nei, það get ég ekki ímyndað mér.
Hesturinn, hann er jafnt í bæ sem
sveit.“
Landssamband hestamannafélaga íhugar
nú að halda landsmót hestamanna í
höfuðborginni á næsta ári. Haraldur Þór-
arinsson er formaður Landssambandsins.
KÍNA Verslunarmiðstöð í borginni
Shijiazhuang í Kína hefur opnað
bílastæðahús með stærri bílastæð-
um sem eingöngu er ætlað konum,
að því er fram kemur á vef BBC.
Bílastæðin í húsinu eru einum
metra breiðari en önnur bílastæði
við verslunarmiðstöðina, og starfs-
menn munu sjá um að beina öku-
mönnum inn í bílastæðin. Þá eru
skilti og öryggiskerfi sögð „sér-
sniðin að þörfum kvenna“.
Þá er bílastæðahúsið málað
í bleikum og fjólubláum litum,
sem forsvarsmenn verslunar-
miðstöðvar innar vona að höfði enn
frekar til kvenna. - bj
Nýjung hjá verslunarmiðstöð:
Bílastæðahús
fyrir konur
Smábátaeigendur gefa sitt
Félag smábátaeigenda á Austur-
landi ákváð á aðalfundi fyrir jólin að
ráðstafa ríflega allri innkomu félagsins
árið 2008 til þeirra átta björgunar-
sveita sem eru á starfssvæði félags-
ins, frá Borgarfirði eystri til Djúpavogs.
Vefmiðillinn Austurglugginn segir frá
þessu.
GJÖF
DÝRAVERND Forsvarsmenn hesta-
mannafélagsins Andvara hafa
miklar áhyggjur af brennu sem
til stendur að halda 140 metra
frá hesthúsabyggð að Heimsenda
í Kópavogi í kvöld. Íhuga þeir nú
að fara fram á lögbann á brennuna
eftir að óskum þeirra um að stað-
setningin verði endurskoðuð hefur
ítrekað verið hafnað.
„Yfirgangurinn er með ólík-
indum,“ segir Pétur A. Maack,
formaður Andvara. Þegar hald-
in sé brenna svo nálægt hesthús-
um sé mikil hætta á að reyk leggi
yfir byggðina og hrossin veikist
eða að þau fælist af hljóðum og
blossum frá flugeldum og hávaða
frá brennugestum. Dýrin geti
þannig slasast illa. Jafnvel þótt
hestamennirnir hafi verið full-
vissaðir um að ekki verði kveikt í
brennunni ef vindátt verður óhag-
stætt sé ljóst að hún geti breyst
snarlega.
„Við teljum að yfirvöld hafi sýnt
af sér verulegt kæruleysi með
þessu. Þetta er ótrúlegt tillitsleysi
við dýrin og hestamennskuna,“
segir Pétur.
Pétur segist frá því á þriðju-
dag hafa átt samskipti við alla
sem hafi þurft að veita leyfi fyrir
brennunni; lögreglu, slökkvilið,
bæjaryfirvöld í Kópavogi og heil-
brigðiseftirlit. Alls staðar hafi
málaleitunum hans verið hafnað
með vísan til þess að reglugerðir
banni ekki brennuhald svo nærri
hesthúsabyggð. - sh
Hestamenn áhyggjufullir yfir brennu sem halda á 140 metra frá hesthúsabyggð:
Íhuga að biðja um lögbann á brennu
NÁLÆGT Á myndinni má sjá hversu
nálægt hesthúsunum búið er að hlaða
bálköstinn. MYND/PÉTUR A. MAACK
SPURNING DAGSINS