Fréttablaðið - 31.12.2009, Page 4

Fréttablaðið - 31.12.2009, Page 4
4 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141 SVEITARSTJÓRNIR Kristján Svein- björnsson, bæjafulltrúi minni- hluta Á-listans á Álftanesi, lagði til á bæjarstjórnarfundi á þriðju- dag að auk þess sem rætt yrði við Garðabæ um sameiningu sveit- arfélaganna yrði einnig rætt við Hafnfirðinga og Reykvíkinga. „Miðað við framgang bæjar- stjórnar og stjórnsýslu Álfta- ness síðustu mánuði þá er sú ein leið fær gagnvart íbúum að sameina byggðina öðru sveitar- félagi. Greina þarf mismunandi kosti þeirra sveitarfélaga sem til greina koma og kanna hug þeirra til mögulegrar sameiningar við Álftanes,“ sagði í greinargerð með tillögu Kristjáns sem vísað var til meðferðar hjá bæjarráði. - gar Bæjarfulltrúi á Álftanesi: Litið sé til fleiri en Garðabæjar Á SKAUTUM Skautasvellið á tjörninni er opið. ÚTIVIST Skautasvell hafa verið opnuð á Reykjavíkurtjörn og Rauðavatni. Óskir höfðu borist frá íbúum til Reykjavíkurborgar um að skautasvell yrðu útbúin. Reykjavíkurtjörn er frosin um tíu til tuttugu sentimetra niður, en borað var til að kanna þykkt íssins í gær. Á Rauðavatni var í gær skaf- in braut fyrir hestamenn, frá göng- um undir Suðurlandsveg og yfir vatnið til norðurs. - þeb Útlit fyrir bjart og kalt veður: Skautasvell í borginni opnuð LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu stöðvaði kanna- bisræktun á tveimur stöðum í Reykjavík í fyrradag. Við húsleit í íbúð í Breiðholti var lagt hald á rúmlega 200 kannabisplöntur. Á sama stað fannst einnig landi og bruggtæki. Lögreglan gerði jafn- framt húsleit í annarri íbúð í borg- inni í gær en í henni fundust um þrjátíu kannabisplöntur. Þrír voru handteknir í tengslum við rann- sókn málanna. Þeir hafa allir játað aðild sína og eru lausir úr haldi. - jss Höfuðborgarsvæðið: Ræktanir, landi og bruggtæki VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 18° 9° -1° -1° 1° 7° 5° -1° -1° 21° 5° 24° 7° 25° -9° 10° 14° -5° Á MORGUN Hæg austlæg eða breytileg átt. LAUGARDAGUR Hægviðri. -3 -3 -4 -5 -3 -8 -6 -12 0 -3 -1 2 3 4 4 3 4 3 8 3 3 6 -2 -3 -3 -7 -6 -3 -4 -4 -4 -5 NÝTT ÁR MUN HEILSA FALLEGA Þegar kemur fram á kvöldið verður orðið stjörnubjart um nánast allt land og úrkomulaust, en austanlands verður líklega skýjað með köfl um fram á nótt. Vindur verður í lág- marki á landinu og mun því viðra vel til fl ugeldaskota. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður Í bréfi lögmannsstofunnar Mishcon de Reya er fullyrt að ég hafi lagt svo fyrir sem formaður samninganefnd- arinnar að ekki mætti sýna utanríkis- ráðherra Össuri Skarphéðinssyni hluta af kynningu lögmannsstofunnar í Icesave málinu þar sem málið væri of viðkvæmt. Einhverjir hafa kosið að skilja þetta svo að ég hafi ekki treyst utanríkisráðherra. Ekkert er fjarri sannleikanum og bið ég fjárlaga- nefnd í allri vinsemd að hugleiða hvaða markmiðum ég hefði náð með því að leyna mikilvægum gögnum fyrir utanríkisráðherra. Ég kannast sem sé ekkert við þá lýsingu á málinu sem fram kemur í bréfi Mishcon de Reya 29.12. 2009. Hins vegar lagði lögmannsstofan sjálf mikla áherslu á að málið væri viðkvæmt. YFIRLÝSING SVAVARS UTANRÍKISMÁL Michael Stubbs, lögmaður hjá Mishcon de Reya, segir yfirlýsingu Svavars Gests- sonar, formanns samninganefnd- ar Icesave, ekki stangast á við bréf stofunnar frá því á þriðju- dag. Í yfirlýsingu sem Stubbs sendir frá sér í gær, segir hann að frásögn af fundi frá 26. mars 2009 standi. Í samtali við Fréttablaðið segir Stubbs að upplýsingar stofunn- ar hafi ekki á neinn hátt kastað rýrð á trúnað Svavars. Hann hafi beðið lögfræðingana um að taka ákveðnar upplýsingar úr minnis- blaði fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. „Við sögðum aldrei að hann hefði leynt þess- um upplýsingum, við skýrðum einungis frá því sem hann bað okkur um að gera.“ Össur upplýsti á þingi í gær að minnisblaðið hefði verið fyrir fund með utanríkisráðherra Breta og upplýsingarnar hefðu ekki tengst þeim fundi. Hann hefði ekki verið leyndur upplýsingum. Spurður hvers vegna gögnin sem send voru í vikunni hafi ekki verið að finna í skýrslu stofunnar, sem afhent var fjár- málanefnd 22. desember, segir Stubbs að í skýrslunni hafi stof- an ráðlagt nefndinni um Icesave- samninginn. Síðan hafi borist beiðni um að finna gögn, tengd málinu, sem ekki hafi verið á vefnum. Stofan hafi sent yfir fimmtíu slík skjöl. En myndi Stubbs samþykkja Icesave-samninginn? „Ég get ekki svarað því, en vísa í álit okkar frá 22. desember.“ - kóp Mishcon de Reya var beðið um gögn sem ekki voru á vefnum: Lögmannsstofan stendur við orð sín ALÞINGI Þinghald var í uppnámi fram eftir degi í gær vegna bréfa frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya, sem vann álit fyrir Alþingi um Icesave. Stjórn- arandstaða vildi fresta fundi svo hægt væri að fara yfir gögnin en stjórnarliðar sögðu engin ný gögn á ferðinni. Fjárlaganefnd fundaði í gær- morgun klukkan átta og þingfund- ur átti að hefjast klukkan 10.30. Þingfundi var ítrekað frestað og hófst ekki fyrr en klukkan 15. Guðbjartur Hannesson, formað- ur fjárlaganefndar, steig fyrstur í ræðustól. Hann gagnrýndi lög- mannsstofuna og talaði um dapur- legan framgangsmáta. Gefið hefði verið í skyn á þriðjudag að mikil- væg gögn væru á leiðinni. Í ljós hefði komið að stofan hefði engin sérstök gögn í huga, en hefði boðist til að fara aftur yfir öll gögn sín. Slíkt væri ekki boðlegt, enda hefði stofan nýverið skilað af sér ítar- legri skýrslu um málið byggðri á gögnum sínum. Því hefði hann slit- ið fundi fjárlaganefndar. Guðbjartur sagði ekkert nýju skjalanna hafa komið frá stofunni sjálfri. Um þriðja aðila gögn væri að ræða sem þingmenn hefðu flest séð áður. „Þessi frágangsmáti er með þvílíkum ólíkindum,“ sagði Guðbjartur. Undir þetta tók Össur Skarphéð- insson utanríkisráðherra og sagði ljóst að ef breska stofan hefði yfir mikilvægum gögnum að ráða hefði hún byggt á þeim í skýrslu sinni. Stjórnarandstæðingar voru mjög ósáttir við vinnubrögðin, enda væru gögn enn að berast frá stofunni. Fráleitt væri að gera þeim að taka afstöðu til málsins án þess að lesa þau gögn. Pétur H. Blöndal hvatti til utandagskrár umræðu um málið, enda hefðu gögn komið fram eftir að sumir þingmenn kláruðu ræðutíma sinn. Birgir Ármannsson sakaði ríkis- stjórnina um gerræði og Eygló Harðardóttir velti því upp hvort ekki væri kominn tími til að kæra núverandi ráðherra fyrir lands- dómi. Bréfin héldu áfram að berast þar til Höskuldur Þórhallsson upp- lýsti að stofan hefði tilkynnt að for- seti Alþingis hefði afþakkað fleiri skjöl. Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir forseti sagði í samtali við Fréttablaðið að hún hefði gert það í sparnaðarskyni. Fjárlaga- nefnd ætlaði ekki að fjalla meira um málið og því væri tilgangs- laust að fá fleiri skjöl. Því hefði hún afþakkað dýra vinnu. kolbeinn@frettabladid.is Deilt um bréf bresku lögmannsstofunnar Þinghald var í uppnámi í gær vegna bréfa breskrar lögmannsstofu. Fundum var ít- rekað frestað. Þungar hnútur gengu úr ræðustól. Forseti Alþingis afþakkaði fleiri tölvubréf að utan. Dapurlegur framgangsmáti, sagði formaður fjárlaganefndar. BRÉFIN SKOÐUÐ Fram eftir degi bárust tölvubréf frá bresku lögfræðistofunni. Stjórnarandstaðan vildi fresta fundi svo hægt væri að fara yfir gögnin, en stjórnarliðar sögðu engin ný gögn á ferðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR GRIKKLAND, AP Öflug sprengja sprakk fyrir utan skrifstofur tryggingafélagsins Ethniki Ins- urance í miðborg Aþenu í Grikk- landi síðla dags á sunnudag. Skrifstofur tryggingafélags- ins skemmdust nokkuð, en enginn meiddist. Þær eru þó við hliðina á opnu kvikmyndahúsi við anna- sama götu. Lögregla segir að hringt hafi verið á dagblað í borg- inni og varað við sprengingunni. Enginn hefur lýst ábyrgð á sprengjunni, en öfgahópar á vinstri væng grískra stjórnmála hafa á árinu sótt í sig veðrið með sprengju- og skotárásum, meðal annars á banka, sjónvarpsstöðvar og kauphöllina í Aþenu. - óká Sprengjuárás í Aþenu: Hús skemmdist en fólk slapp SPRENGJUSVEIT AÐ STÖRFUM Meðlimir baráttusveitar Grikkja gegn hryðju- verkum leita sprengjubrota síðdegis á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ 30.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 233,2485 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,40 126,00 198,90 199,86 179,98 180,98 24,182 24,324 21,594 21,722 17,432 17,534 1,3602 1,3682 195,97 197,13 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.