Fréttablaðið - 31.12.2009, Side 20

Fréttablaðið - 31.12.2009, Side 20
20 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR V iðburðaríkt ár er senn á enda. Þrátt fyrir miklar sviptingar á flestum svið- um hefur lítið þokast og fátt áunnist. Íslenska þjóðin stendur að mestu frammi fyrir sömu vandamálunum og hún gerði í upphafi árs. Íslendingar eiga þó alla möguleika á að vinna sig út úr efnahagskreppunni á farsælan hátt. Til þess þarf skýr leiðarljós, samráð og samstöðu um grund- vallarákvarðanir, því sagan sýnir að þegar íslenska þjóðin stendur saman vegnar henni vel. Stefna stjórnvalda undanfarna tvo áratugi um efl- ingu menntunar skiptir miklu við þessar aðstæður og vegna auðlinda okkar og sterkra innviða erum við í öfundsverðri stöðu í flestu tilliti samanborið við aðrar þjóðir. Nú skiptir öllu að stjórnvöld beiti hvetjandi aðgerðum til að blása þjóðinni kjark í brjóst og til- trú á framtíðarmöguleika okkar. Aðgerðir ríkis- stjórnarinnar á líðandi ári munu á hinn bóginn hafa letjandi áhrif, því hærri skattar og þyngri álögur draga úr frumkvæði og lama sköpunarkraft. Sú hætta steðjar að okkur að þjóðin missi móðinn, hætti að trúa á að hún geti sigrast á erfiðleikunum. Slíkt vonleysi hefur gríðarlega neikvæð áhrif á upp- byggingu samfélagsins. Nú þarf að örva atvinnulífið, en ekki brjóta það niður. Nýta verður auðlindirnar til verðmætasköp- unar og atvinnuuppbyggingar, í þjónustu, iðnaði og á öðrum sviðum. Heimilin í landinu verða einnig að fá svör við því hvernig bregðast á við skuldavanda þeirra. Meðan á þeim svörum stendur aukast líkur á að ungar fjölskyldur, sem ástandið bitnar hvað verst á, missi móðinn. Ríkisstjórnin hefur á síðustu mánuðum eytt öllum sínum kröftum í að fá Icesave-málið sam- þykkt á Alþingi. Þeir samningar sem liggja málinu til grundvallar fela í sér mestu mistök íslenskrar ríkisstjórnar í áraraðir. Niðurstaða málsins gengur gegn hagsmunum Íslendinga en tekur þess í stað mið af þeim kröfum og skilmálum sem viðsemjend- ur okkar hafa þvingað fram og ríkisstjórnin gefið eftir. Það er því ekki ofmælt að segja ríkisstjórnina hafa brugðist hagsmunagæsluhlutverki sínu fyrir almenning. Komist Sjálfstæðisflokkurinn til áhrifa við lands- stjórnina mun það verða fyrsta verk okkar að leita allra leiða til þess að rétta hlut íslensku þjóðarinnar sem hefur svo illilega verið fyrir borð borinn. Það er skylda okkar gagnvart framtíðarkynslóðum þessa lands og undan henni munum við ekki hlaup- ast. Sagan geymir mörg dæmi um meiri erfiðleika en þá sem við fáumst nú við og við Íslendingar höfum sigrast farsællega á. Af sögunni má bæði draga lær- dóm og sækja kjark og baráttuþrek. Það er einnig mikilvægt að við nýtum reynslu annarra þjóða, þeirra sem best hefur tekist að vinna sig út úr áföll- um. Brýnt er að að byrja á að ávinna sér traust og trúverðugleika þegna sinna með aðgerðum sem samstaða hefur verið um. Það er best gert með skýrri framtíðarstefnu, aðgerðaráætlun og ítar- legri greiningu á vandanum sem við blasir. Mikil- vægt er að leggja kapp á að lágmarka atvinnuleysi og nýta þekkingu og þann mannauð sem í fólkinu býr, m.a. með því að byggja upp hugvit og verkvit í atvinnulífi og menntakerfi. Þeim hefur farnast best sem sýnt hafa aðhald í ríkisrekstri, forðast óþarfa skuldsetningu og sagt sóun stríð á hendur. Nauðsyn- legt er einnig að nýta til hins ýtrasta tækifæri til uppbyggingar, á þeim grunnstoðum atvinnulífsins sem fyrir eru, sem og á vettvangi nýsköpunar. Af þessari reynslu eigum við Íslendingar að læra, nýta okkur mun betur en gert hefur verið og snúa af þeirri braut sem ríkisstjórnin er lögð af stað eftir. Sjálfstæðisflokkurinn mun hér eftir sem hingað til leggja áherslu á uppbyggingu og framfarir á þessum forsendum. Á næstu vikum mun rannsóknarnefnd Alþingis kynna niðurstöður sínar. Þær þarf að taka alvar- lega, ræða af yfirvegun og nýta á uppbyggilegan hátt meðal annars með hliðsjón af reynslu annarra þjóða. Af þeim þurfum við að læra og á grundvelli þeirra meta hvernig endurskipuleggja beri stjórn- og eftirlitskerfi með það að markmiði að tryggja að sagan endurtaki sig ekki. Lánist okkur það munum við standa sterkari eftir. Fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins óska ég lands- mönnum öllum árs og friðar og velfarnaðar á kom- andi ári. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Hvatning til þjóðarinnar BJARNI BENEDIKTSSON Nú skiptir öllu að stjórnvöld beiti hvetjandi aðgerðum til að blása þjóðinni kjark í brjóst og tiltrú á framtíðarmöguleika okkar. Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.