Fréttablaðið - 31.12.2009, Qupperneq 20
20 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR
V
iðburðaríkt ár er senn á enda. Þrátt
fyrir miklar sviptingar á flestum svið-
um hefur lítið þokast og fátt áunnist.
Íslenska þjóðin stendur að mestu
frammi fyrir sömu vandamálunum og
hún gerði í upphafi árs.
Íslendingar eiga þó alla möguleika á að vinna sig
út úr efnahagskreppunni á farsælan hátt. Til þess
þarf skýr leiðarljós, samráð og samstöðu um grund-
vallarákvarðanir, því sagan sýnir að þegar íslenska
þjóðin stendur saman vegnar henni vel.
Stefna stjórnvalda undanfarna tvo áratugi um efl-
ingu menntunar skiptir miklu við þessar aðstæður
og vegna auðlinda okkar og sterkra innviða erum
við í öfundsverðri stöðu í flestu tilliti samanborið
við aðrar þjóðir.
Nú skiptir öllu að stjórnvöld beiti hvetjandi
aðgerðum til að blása þjóðinni kjark í brjóst og til-
trú á framtíðarmöguleika okkar. Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar á líðandi ári munu á hinn bóginn hafa
letjandi áhrif, því hærri skattar og þyngri álögur
draga úr frumkvæði og lama sköpunarkraft. Sú
hætta steðjar að okkur að þjóðin missi móðinn,
hætti að trúa á að hún geti sigrast á erfiðleikunum.
Slíkt vonleysi hefur gríðarlega neikvæð áhrif á upp-
byggingu samfélagsins.
Nú þarf að örva atvinnulífið, en ekki brjóta það
niður. Nýta verður auðlindirnar til verðmætasköp-
unar og atvinnuuppbyggingar, í þjónustu, iðnaði og
á öðrum sviðum. Heimilin í landinu verða einnig að
fá svör við því hvernig bregðast á við skuldavanda
þeirra. Meðan á þeim svörum stendur aukast líkur á
að ungar fjölskyldur, sem ástandið bitnar hvað verst
á, missi móðinn.
Ríkisstjórnin hefur á síðustu mánuðum eytt
öllum sínum kröftum í að fá Icesave-málið sam-
þykkt á Alþingi. Þeir samningar sem liggja málinu
til grundvallar fela í sér mestu mistök íslenskrar
ríkisstjórnar í áraraðir. Niðurstaða málsins gengur
gegn hagsmunum Íslendinga en tekur þess í stað
mið af þeim kröfum og skilmálum sem viðsemjend-
ur okkar hafa þvingað fram og ríkisstjórnin gefið
eftir. Það er því ekki ofmælt að segja ríkisstjórnina
hafa brugðist hagsmunagæsluhlutverki sínu fyrir
almenning.
Komist Sjálfstæðisflokkurinn til áhrifa við lands-
stjórnina mun það verða fyrsta verk okkar að leita
allra leiða til þess að rétta hlut íslensku þjóðarinnar
sem hefur svo illilega verið fyrir borð borinn. Það
er skylda okkar gagnvart framtíðarkynslóðum
þessa lands og undan henni munum við ekki hlaup-
ast.
Sagan geymir mörg dæmi um meiri erfiðleika en
þá sem við fáumst nú við og við Íslendingar höfum
sigrast farsællega á. Af sögunni má bæði draga lær-
dóm og sækja kjark og baráttuþrek. Það er einnig
mikilvægt að við nýtum reynslu annarra þjóða,
þeirra sem best hefur tekist að vinna sig út úr áföll-
um.
Brýnt er að að byrja á að ávinna sér traust og
trúverðugleika þegna sinna með aðgerðum sem
samstaða hefur verið um. Það er best gert með
skýrri framtíðarstefnu, aðgerðaráætlun og ítar-
legri greiningu á vandanum sem við blasir. Mikil-
vægt er að leggja kapp á að lágmarka atvinnuleysi
og nýta þekkingu og þann mannauð sem í fólkinu
býr, m.a. með því að byggja upp hugvit og verkvit í
atvinnulífi og menntakerfi. Þeim hefur farnast best
sem sýnt hafa aðhald í ríkisrekstri, forðast óþarfa
skuldsetningu og sagt sóun stríð á hendur. Nauðsyn-
legt er einnig að nýta til hins ýtrasta tækifæri til
uppbyggingar, á þeim grunnstoðum atvinnulífsins
sem fyrir eru, sem og á vettvangi nýsköpunar. Af
þessari reynslu eigum við Íslendingar að læra, nýta
okkur mun betur en gert hefur verið og snúa af
þeirri braut sem ríkisstjórnin er lögð af stað eftir.
Sjálfstæðisflokkurinn mun hér eftir sem hingað
til leggja áherslu á uppbyggingu og framfarir á
þessum forsendum.
Á næstu vikum mun rannsóknarnefnd Alþingis
kynna niðurstöður sínar. Þær þarf að taka alvar-
lega, ræða af yfirvegun og nýta á uppbyggilegan
hátt meðal annars með hliðsjón af reynslu annarra
þjóða. Af þeim þurfum við að læra og á grundvelli
þeirra meta hvernig endurskipuleggja beri stjórn-
og eftirlitskerfi með það að markmiði að tryggja að
sagan endurtaki sig ekki. Lánist okkur það munum
við standa sterkari eftir.
Fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins óska ég lands-
mönnum öllum árs og friðar og velfarnaðar á kom-
andi ári.
Höfundur er formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hvatning til þjóðarinnar
BJARNI BENEDIKTSSON
Nú skiptir öllu að stjórnvöld beiti hvetjandi
aðgerðum til að blása þjóðinni kjark í brjóst og
tiltrú á framtíðarmöguleika okkar.
Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær