Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.12.2009, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 31.12.2009, Qupperneq 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 ÁRAMÓTABRENNUR í Reykjavík verða ellefu þetta árið. Stærstu brennurnar verða við Ægisíðu, á Geirsnefi, í Gufunesi og Fylkisbrennan við Rauðavatn. Kveikt verður í þeim klukkan hálf níu í kvöld. „Ég fæ reglulegar fréttir af álfun- um og þeir gerðu sér dagamun um jólin en nú eru fardagar hjá þeim. Um áramótin flytjast margir álfar búferlum. Fæstir þeirra búa reynd- ar á höfuðborgarsvæðinu. Þeim líka ekki mannabyggðir, orkusvæðið þar er svo mettað orkubylgjum af ofnotkun raftækja eins og farsíma, tölva, sjónvarpa og fleiri raftækja sem eyðileggja náttúruna. Þeir skynja orkuna svo vel, líka hugar- orkuna og þar er nú allt í steik. En hvernig líst álfum á áramót- in? „Þeim finnst skotgleðin fram úr hófi og hávaðinn mikill. Það er dálítið hamagangur þegar þeir eru að flytja á gamlárskvöld.“ Magnús segist sjálfur ekki hafa séð álfa en ekki sé laust við að hann finni fyrir þeim. „Ég hef hins vegar talað við hundruð Íslendinga og útlendinga sem hafa séð þá. Álfar eru góðar vættir og Íslendingar eru án efa sú þjóð í Evrópu sem ber hvað mesta virðingu fyrir þeim. Magnús er einnig stofnandi og forseti Músavinafélagsins. „Við erum nú 32 í félaginu en þess má geta að Matthías Johannessen skáld samdi þjóðsöng Músavina félagsins. „Nú eru harðir dagar fyrir mýsnar og engin hátíð. Flestar láta þær lífið á haustin og veturna en þær sem hafa það af tímgast hratt og lifa skemmtilegu lífi á vorin og sumrin.“ En hvernig kom það til að þú varðst forseti Músavinafélags- ins? „Það eru nú áratugir síðan,“ segir Magnús og brosir. „Ég var að vinna sem vaktmaður í stóru vöru- húsi. Stundum, þegar komu send- ingar að utan, höfðu nokkrar mýs farið í ferðalagið með þeim og það var eins og menn yrðu trítilóðir þegar þær komu til Íslands, voru með skóflurnar á lofti og notuðu flestar mögulegar aðferðir við að drepa þær. Ég rakst á mannúðar- legar músagildrur í dýraverndunar- blaði árið 1975, pantaði nokkrar auk þess sem ég gerði samning við vinnuveitandann um að fæða þær þar til vetrinum lyki. Það var þá sem ég stofnaði Músavinafélagið en um vorið sleppti ég síðan músunum uppi í Heiðmörk. Mig dreymir um að stofna Músahótel Magnúsar en það er enginn skilningur á því þar sem ég bý í fjölbýli að fá að vera með 100-200 mýs í kompunni.“ unnur@frettabladid.is Álfarnir flytja áramót Magnús Skarphéðinsson er maður ekki einhamur og á sér mörg áhugamál. Auk sálarrannsókna er hann í góðu sambandi við álfa og hlynnir að músum, enda stofnandi og forseti Músavinafélagsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Magnús Skarphéðinsson segir álfana alltaf flytja burt úr þéttbýlinu rétt á undan mönnunum. www.elin.is Bæjarhrauni 2 Hfj. Sími: 696 4419 Rope Yoga Námskeið hefjast 4. janúar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.