Fréttablaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 32
28 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Þennan dag árið 1696 í stjórnar- tíð Vilhjálms þriðja Englandskon- ungs var komið á svokölluðum gluggaskatti. Skatturinn var fé- lagslegs eðlis þar sem hann tók mið af ríkidæmi skattgreiðand- ans. Grunnskattur fasteignar voru tveir skildingar. Fjórir skildingar skyldu greiðast fyrir tíu til tuttugu glugga en átta skildingar fyrir hús með fleiri glugga en tuttugu. Yfirleitt kom það í hlut ábúandans að greiða skattinn en ekki eig- andans. Gluggaskatturinn leiddi til þess að margir múruðu upp í gluggana, færri gluggar voru settir í nýbyggingar en hitt var líka til að mjög efnað fólk byggði hús með eins mörgum gluggum og hægt var til að sýna ríkidæmi sitt um- fram þá meðalríku. Almennt var skatturinn óvinsæll hjá alþýðu manna og litið á hann sem skatt- lagningu lofts og ljóss, sömuleið- is voru skilgreiningar á gluggum víðar svo eftirlitsmenn gátu skil- greint alls konar holur og göt sem glugga. Enn í dag má sjá byrgða glugga víðs vegar um England og líka í Skotlandi og Frakklandi þar sem álíka skattar voru tekn- ir upp. Tekjur enska þjóðarbúsins af skattinum voru umtalsverðar allt fram til ársins 1851 þegar fall- ið var frá skattinum. ÞETTA GERÐIST: 31. DESEMBER 1696 Gluggaskatti komið á í Englandi GLUGGASKATTUR Byrgt upp í glugga. Hrönn Friðriksdóttir er spámiðill með aðsetur í skrifstofuhúsnæði við Súða- vog. Á kontórnum hennar er rökkvað, fígúrur í hillum og fjölbreyttar myndir á veggjum. Yfir mitt skrifborðið liggja orkusteinar sem mynda eins konar vegg milli blaðamanns og miðilsins sem ætlar að spá fyrir íslensku þjóð- inni á komandi ári. „Sem betur fer þá finnst mér að landinn sé aðeins að komast upp úr kreppunni þótt við séum efnahagslega ekki alveg á leiðinni upp. Ég hef ekki áhyggjur af þjóðarsálinni sem slíkri,“ segir Hrönn án þess að reyna að vera dularfull í röddinni. „Mér finnst fólk vera orðið svo raunsætt og gera sér grein fyrir hverju við eigum von á. Það er lítið sem á eftir að koma okkur á óvart, hið mesta er komið í ljós. Mér finnst barátta í fólki.“ Spurð um gengi krónunnar æjar Hrönn tvisvar og segir það lítið lag- ast á árinu. „Í peningamálum er ólgu- sjór fram undan. Eitt stórt sjávarút- vegsfyrirtæki mun lenda í miklum hremmingum en smábátaútgerð eflist og mun ganga vel á næstu árum. Eitt- hvað á eftir að springa í febrúar, eitt- hvað kemur upp á yfirborðið sem mun hafa afleiðingar.“ Um stjórnmál segir Hrönn að stjórnin muni ekki halda velli og gerist það bráðlega. Núverandi vald- hafar muni hverfa frá og nýir leiðtogar sjást í flestum flokkum. „Veistu, það er verið að sýna mér ungan mann sem er í Samfylkingunni sem á eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni, það geta verið tvö ár áður en hann kemst í fremstu víglínu. En hann á eftir að láta mikið að sér kveða, sá drengur,“ segir Hrönn og kinkar kolli lítillega. Ferðaiðnaður á eftir að aukast mikið. Hekla lætur á sér kræla eftir eitt til eitt og hálft ár. Hrönn sér ekki mikið um jarðskjálfta. Þegar eldsumbrot verða, verða þau á tveimur stöðum með stuttu millibili. Umferðin mun ganga ágætlega á næsta ári. „Enda finnst mér landinn aðeins vera farinn að hægja á sér. Tímarit og svoleiðis eiga eftir að dala mikið og Morgunblaðið er nú alveg á hraðri niðurleið. Það eiga eftir að verða töluverðar breytingar þar inn- andyra,“ segir Hrönn. Engin gósentíð verður í virkjanaframkvæmdum hér á landi næstu tíu árin. Álverið í Helgu- vík mun rísa, en framkvæmdirnar verða tafsamar. Hrönn svarar yfirleitt ekki spurn- ingum um slys en gerir undantekn- ingu. „Þegar ég stokkaði í spilunum áðan, þá var verið að segja mér, að það verður sjóslys og ég á víst að segja það. Mér finnst leiðinlegt að þurfa að segja svoleiðis. Það verður einhverjum bjargað en ekki öllum. Mér finnst þetta vera fiskiskip,“ segir Hrönn treglega og skiptir um spádómsefni: „Snjórinn er kominn og hann á eftir að haldast nokkuð í vetur, en samt engin brjál- uð veður. Mér finnst vorið ekki koma neitt snemma en mér finnst það gott og sumarið er ágætt þegar það kemur. Mér finnst sumarið verða Íslendingum gott svona almennt, það er bjart. Það er það,“ segir Hrönn. Hrönn telur að atvinnumálin muni ekki hífast almennilega upp fyrr en eftir tvö til þrjú ár. Hún sér ekki þann mikla fólksflótta sem margir tala um. „Ég held að meirihluti af því fólki sem ætlar sér úr landi sé farið eða sé að fara. En ég sé ekki fram á stórkostlega fækkun hér á landi, nei. Nei, alls ekki. Mér sýnist þjóðin ætla að halda áfram að vera dugleg að eiga börn. Og þegar við erum komin þrjú ár fram í tím- ann þá förum við ofboðslega hratt upp aftur, við gerum það, það eiga eftir að koma góðir tímar aftur. Ég vona bara að það verði ekki svona græðgistímar eins og voru,“ segir Hrönn og um leið skilur blaðamaður að spákonan hefur talað. niels@frettabladid.is HRÖNN FRIÐRIKSDÓTTIR: SKYGGNIST TIL ÁRSINS 2010 FYRIR HÖND ÞJÓÐARINNAR Ekki áhyggjur af þjóðarsálinni SPÁÐ Í FRAMTÍÐINA Hrönn hefur kristalkúlu sér til halds og trausts þótt hún treysti á margt annað til forspáa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Öll þurfum við dagatal til þess að fylgjast með tímanum og um áramót- in eru þau fjölmörg sem koma út. Það er gaman að segja frá dagatali Eim- skipafélagsins sem hefur nú komið út í 81 ár og hefur verið prentað á hverju ári fyrir utan tvö ár. Hið fyrra var í lok seinni heimsstyrjaldarinnar þegar skortur hamlaði útgáfunni en reynd- ar er ekki vitað um ástæðuna í seinna skiptið, sem var á sjöunda áratugn- um. Frá stofnun Eimskipa hefur daga- talið verið unnið af metnaði og fyrir- tækið sent hluthöfum sínum eintak af dagatalinu en hin síðustu ár hefur al- menningi gefist kostur á að nálgast dagatalið á skrifstofum félagsins um land allt. Oft er mikið lagt í dagatalið og í ár er þemað sérstaklega skemmti- legt. Að þessu sinni prýða það ljós- myndir af eyjum við strendur Íslands en ljósmyndari er Lárus Karl Ingason og þurfti ýmsar kúnstir, meðal annars flugvélar og þyrlur, til þess að ná bestu myndunum. - uhj Klassískt dagatal Eimskips EYJAN ELDEY Dagatal Eimskipafélagsins prýða eyjur kringum landið. ALEX FERGUSON ER 68 ÁRA Í DAG. „Ég man þegar ég sá hann fyrst. Hann var þrettán ára og skeiðaði um völlinn eins og cocker spaniel að elta snifsi af silfruðum pappír sem fýkur í vindinum.“ (um Ryan Giggs) Skoski knattspyrnustjórinn Al- exander Chapman Ferguson, eða Alex Ferguson eins og hann er þekktur, hefur verið stjóri hjá Manchester United í tuttugu og þrjú ár. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, Ernu Matthíasdóttur Mánatúni 4. Loftur Þorsteinsson Þorsteinn Loftsson Hanna Lilja Guðleifsdóttir Matthías Loftsson Kolbrún Þorsteinsdóttir Ingibjörg Loftsdóttir Trausti Sigurjónsson Páll Loftsson Anna Pála Vignisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar kæra, Soffía Theodórsdóttir Ljósvallagötu 20, lést á Landakoti 23. desember og fer útför hennar fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. janúar kl. 15.00. Systkin og frændsystkin. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, Jón Kr. Sigurðsson húsgagnasmiður, Stífluseli 6, lést þann 23. desember síðastliðinn á Landspítalanum. Hann verður jarðsunginn frá Seljakirkju þann 5. janúar kl. 11. Margrét Viðarsdóttir Berglind Jónsdóttir Vilhjálmur Óli Valsson Guðný Jónsdóttir afabörn Óskar Ágúst Sigurðsson Karin McQuillan Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, María Ólína Kristinsdóttir Árskógum 6, Reykjavík, lést á jóladag á Landspítalanum í Fossvogi. Gunnlaugur K. Hreiðarsson Kolbrún Guðmundsdóttir Helgi Már Hreiðarsson Guðrún Ólöf Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. MERKISATBURÐIR 1492 100.000 gyðingar eru reknir frá Sikiley. 1783 Bann við innflutningi á svörtum þrælum til Norður ríkjanna í Norður- Ameríku tekur gildi. 1879 Edison sýnir glóperu opin- berlega í fyrsta skipti. 1935 Charles Darrow fær einkaleyfi fyrir borðspilinu Monopoly. 1949 Gamlárskvöld í Reykja- vík er rólegra en það hefur nokkurn tímann verið. Líklega vegna þess að áramótabrennur voru skipulagðar víðs vegar um bæinn. 1958 Einvaldur Kúbu, Batista, flýr land. 1965 Ólafur Thors, fyrrverandi forsætisráðherra, andast, 72 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.