Fréttablaðið - 31.12.2009, Page 38

Fréttablaðið - 31.12.2009, Page 38
BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggva- dóttur Í kvöld munu margir strengja heit. Það er hefð fyrir því um áramót. Heitin geta verið af ýmsum toga og eins misjöfn og við erum mörg. Flest snúast þau þó um að bæta okkur á einhvern hátt og verða betra fólk, hvort sem það er í léttvægum málum eins og mataræðinu eða í alvar- legri hlutum eins og gjörðum okkar gagn- vart öðrum. Þessi árstími er örugglega sá þegar flest fólk er gott í einu. Svo bráir gjarnan af okkur í góðverkagleðinni eftir morgundaginn. ÞÓ er til fólk sem bindur góðverkin ekki aðeins við áramót. Það er gott allan ársins hring og þótt það geri kannski ekki góð- verk á hverjum einasta degi eru góð- verkin sem það gerir af þeirri stærðar- gráðu að þau jafnast á við óteljandi lítil. Þetta fólk er að finna í sérstökum sveitum, hjálparsveitum. HJÁLPARSVEITIRNAR þekkjum við öll. Þær eru reglulega í fréttum, sérstaklega yfir vetrar tímann, þegar þær finna týnda og sækja strand- aða glópa upp um fjöll og firnindi og stöku túrista af jökli yfir sumartímann. Sveit- irnar eru sjálfsagður hluti af okkar daglega lífi og við hugsum ekkert endilega um þær lon og don, göngum bara að þeim sem gefnum. Enda kæmumst við ekki af án þeirra hér á Íslandi þar sem veðráttan er slík að varla er hundi út sigandi marga daga á ári. ÞRÁTT fyrir það eru hjálparsveitirnar ekki ríkisstofnun sem haldið er úti vegna válegra aðstæðna sem eru staðreynd hér á landi í veðri og færð. Það er ekki gert ráð fyrir þeim í fjárlögum. Fólkið í sveitunum er ekki með áhættuþóknun ofan á rífleg laun fyrir að vera ávallt viðbúið allan sólarhringinn og hika ekki við að leggja sjálft sig í hættu til að bjarga öðrum. Það fær engin laun. VIÐ hin ættum að taka þetta fólk okkur til fyrirmyndar, sérstaklega í dag þegar við erum svona meyr og móttækileg fyrir því að láta gott af okkur leiða. Flest okkar eru kannski ekki fær um að framkvæma svo mögnuð góðverk upp á eigin spýtur, en þá ber að hafa í huga að margt smátt gerir eitt stórt. FLUGELDASALAN um hver áramót er aðalfjáröflunarleið hjálparsveitanna til að halda starfi sínu gangandi og við getum lagt okkar að mörkum. Margföldunar- áhrifin af þeirri litlu framkvæmd að kaupa flugelda af hjálparsveitunum skila sér í óteljandi góðverkum af ómetanlegri stærð. Margfalt góðverk 40 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Uppgjörið Námið hefur sinn gang. Þú ert á eftir. Osta popps- skipu lagið? Í alvörunni? Konan mín skilur mig ekki? Ókei? Slá hann í bakið, bara svona létt en þó með smá þunga Úff, það verður ekkert smá heitt í dag. „über“- bermúda- buxur. Ég tek þessu sem hrósi. Ekki pæla í þessu. Geturðu gert þetta? En hvað með þetta? Má ég nota símann? Tinni, við verðum að setja okkur ný markmið. Góð húsráð Prump, prump, prump Prump, prump, prump

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.