Fréttablaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 54
50 31. desember 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. kyrr, 6. guð, 8. slagbrandur, 9.
púka, 11. á fæti, 12. varkárni, 14.
reika, 16. halló, 17. dýrahljóð, 18. til
viðbótar, 20. snæddi, 21. faðmur.
LÓÐRÉTT
1. þrákelkni, 3. þys, 4. garðplöntu-
tegund, 5. til sauma, 7. arðsjúga, 10.
temja, 13. keraldi, 15. arða, 16. er
með, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lygn, 6. ra, 8. slá, 9. ára,
11. il, 12. aðgát, 14. ramba, 16. hæ,
17. urr, 18. enn, 20. át, 21. fang.
LÓÐRÉTT: 1. þráa, 3. ys, 4. glitbrá, 5.
nál, 7. arðræna, 10. aga, 13. ámu, 15.
arta, 16. hef, 19. nn.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 Þeir verða níu talsins.
2 Matti Vanhanen.
3 Manouchehr Mottaki.
„Það er hægt að fá sér góðan vindil allt frá 500 krón-
um stykkið upp í 4.000 krónur,“ segir Kári Kjartans-
son, starfsmaður tóbaksverslunarinnar Bjarkar.
Vindlareykingamenn flykkjast nú í búðina fyrir
gamlárskvöld þrátt fyrir hækkandi verð á vindlum.
„Bæði tóbaksskattur hefur hækkað og gengið hefur
fallið. Þetta hefur mikil áhrif. En við reynum að
koma til móts við fólk og hafa verðið temmilegt.“
Lítið er um að dýrustu vindlarnir seljist en þeir
eru flestir frá Kúbu, Dóminíska lýðveldinu og Hond-
úras. Vindlarnir á um 500 krónur eru vinsælli, nokk-
urs konar kreppuvindlar. „Þeir eru betri fyrir pyngj-
una hjá sumum. Það er um að gera að geta boðið allan
skalann í þessu,“ segir Kári.
Hann bætir við að hefðbundnar pípur hafi aukist í
vinsældum að undanförnu sem og arabískar vatns-
pípur. „Það er svolítið sótt í tóbakið í þær til að eiga
fyrir áramótapartíin. Þetta er í alls kyns bragðteg-
undum, epla-, jarðarberja- og myntubragð. Þetta
er gripur sem margir reykja úr. Menn eru að ræða
heimsmálin og róa sig niður með góðri vatnspípu.“
Vasapelar hafa einnig notið aukinna vinsælda.
„Það er orðinn dýr dropinn á klúbbunum. Það er gott
að geta yljað sér aðeins á röltinu,“ segir Kári.“ - fb
Kreppuvindlar og vatnspípur
PÍPUR OG VINDLAR VINSÆLIR Sölvi Óskarsson, eigandi Bjarkar,
og Kári Kjartansson hafa í nógu að snúast þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég var að spila spilið á jóladag og ég get sagt
þér, að það var ekki mikil hamingja á bænum,“
segir athafnamaðurinn Fjölnir Þorgeirsson.
Í spurningaspilinu Spurt að leikslokum er
spurt um mann sem var atvinnumaður í snóker
að eigin sögn og komst í fréttir fyrir frækið
björgunarafrek, sem rataði í fréttir víða um
heim. Svarið er að sjálfsögðu Fjölnir Þorgeirs-
son, en hann gerir athugasemd við orðalagið.
„Ég hélt að í spurningaspilum ætti að spyrja um
staðreyndir,“ segir hann og bætir við að hann
hafi verið atvinnumaður í snóker í fjögur ár,
eða þangað til hann varð að hætta vegna axlar-
meiðsla.
Fjölnir hafði samband við höfunda spurning-
anna, lét óánægju sína í ljós og fékk frá þeim
afsökunarbeiðni. „Þetta eru bara litlir töffarar
– hvolpar með hundalæti. Eða hundar með
hvolpalæti. Bara kjánar,“ segir Fjölnir. „Þeir
eru búnir að breyta framleiðslunni.“
Ölvir Gíslason, annar höfunda spilsins, stað-
festir að athugasemdir hafi borist frá Fjölni
og segir að í næstu útgáfu verði þær teknar til
greina, ásamt öðrum athugasemdum.
Fjölnir virðist hafa verið höfundum
spilsins hugleikinn þar sem honum bregð-
ur fyrir í einni spurningu í viðbót. Þar er
spurt um órjúfanleg tengsl milli frétta-
síðunnar Hestafréttir.is, sem Fjölnir
ritstýrir, og kryddpíunnar Mel B,
en hann átti í frægu ástarsam-
bandi við hana fyrir nokkrum
árum. Fjölnir tekur spurning-
unni létt og segist ekki kippa sér
upp við hana. „Æi, það eru svo
margir gæjar sem eru afbrýði-
samir vegna þess að kallinn er
flottari en þeir,“ segir Fjölnir.
„Það er bara þeirra feill að vera
ekki duglegri í ræktinni.“ - afb
Fjölnir skotspónn gríns í spurningaspili
„Ha, vann ég? Það hefur þá ekki
verið gáfulegt lið í dómnefndinni.“
Þetta voru fyrstu viðbrögð Péturs
Jóhanns Sigfússonar við þeim tíð-
indum að hann hafi verið kosinn
maður ársins í skemmtanabrans-
anum í könnun sem Fréttablaðið
gekkst fyrir. Átján manns, eins og
hópurinn í knattspyrnuliði, voru til-
nefnd af ritstjórn Fréttablaðsins en
allt var þetta fólk sem var áberandi
í dægurmenningunni á árinu sem
var að líða.
Pétur Jóhann var gríðarlega
áberandi á árinu. Auk þess að túlka
erkiaulann Ólaf Ragnar, talar hann
fyrir Essasú froskinn, var með ein-
leik um sannleikann og lék í sjón-
varpsþáttaröðinni Stóra planið.
„Auðvitað er þetta ánægjulegt,“
segir hann. „Maður fer fullur sjálfs-
trausts inn í nýtt ár. Það hlýtur nú
samt að fara að detta inn að fólk fái
nóg af manni. Ég held samt ótrauð-
ur áfram. Eins lengi og einhver
nennir að fylgjast með því sem ég
er að gera. Ég á líka eftir að gefa út
plötu. Það yrði eitthvað hressilegt
fyrir alla fjölskylduna sem hentaði
vel í útilegum.“ Um Pétur Jóhann
voru þessi orð meðal annars látin
falla í könnuninni: „Hann fékk fólk
til að brosa og hlæja í kreppunni.
Ólafur Ragnar er uppáhalds auli
Íslands!“ og „maður fyrirgefur
honum þetta Essasú-skrímsli fyrir
snilldina í karaktersköpun í hlut-
verki Ólafs Ragnars“.
Segja má að aðstandendur Vakt-
anna hafi verið í sérflokki í þessari
könnun því Ragnar Bragason leik-
stjóri og Jón Gnarr komu næstir
Pétri að stigum. Um þá var meðal
annars sagt: „Ragnar Bragason
lokaði best heppnuðu íslensku sjón-
varpsseríunni hingað til með fínni
kvikmynd,“ og „Jón Gnarr sýndi í
Bjarnfreðarsyni að hann er ekki
bara trúðurinn heldur stórleikari.“
drgunni@frettabladid.is
PÉTUR JÓHANN: MAÐUR ÁRSINS Í SKEMMTANABRANSANUM
FÉKK FÓLK TIL AÐ HLÆJA
YFIRBURÐIR
Pétur Jóhann Sigfússon er maður
ársins í íslenska skemmtanabransan-
um, en félagar hans í Vaktinni, Ragn-
ar Bragason og Jón Gnarr komu fast
á hæla hans í könnun Fréttablaðsins.
Ásdís Rán, Ragnar Kjartansson og
Emilíana Torrini skoruðu einnig hátt.
Addi Knútsson, Arnar Eggert
Thoroddsen, Berglind Hasler,
Bergur Ebbi Benediktsson, Bobby
Breiðholt, Davíð Stefánsson, Diljá
Ámundadóttir, DJ Margeir, Einar
Bárðarson, Eiríkur Jónsson, Erpur
Eyvindarson, Felix Bergsson, Freyr
Eyjólfsson, Halli Civelek, Hannes
Friðbjarnarson, Haukur Már
Helgason, Haukur S. Magnússon,
Huldar Breiðfjörð, Jens Guð, Katrín
Atladóttir, Oddný Sturludóttir, Sig-
rún Ósk Kristjánsdóttir og Þorbjörg
Marínósdóttir.
ÁLITSGJAFAR
Ásdís Rán – „Hún gaf þjóðinni á kjaftinn með því að vera hún sjálf.“
Emilíana Torrini – „Hefur siglt hægt en örugglega upp á stjörnuhimininn
og er orðin að þekktu nafni í hinum alþjóðlega tónlistarheimi.“
Ragnar Kjartansson – „Hann hefur lengi verið í forgrunni íslenskrar dægur-
menningar.“
Aðrir tilnefndir: Bubbi Morthens, Jóhanna Guðrún, E-label-hönnunar-
teymið, Lay Low, Ilmur Kristjánsdóttir, Katrín Hall, Stefán Karl Stefánsson,
Steinunn Sigurðardóttir, Sigríður Thorlacius, Baltasar Kormákur, Jóhannes
Haukur Jóhannesson, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen.
ÞESSI VORU TILNEFND
SPURT ER UM MANN Fjölnir var ósáttur
við spurningu í Spurt að leikslokum.
Höfundarnir Ölvir Gíslason og Steinþór
Steingrímsson báðu Fjölni afsökunar.
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Í vinnunni hlusta ég á ómþýðar
raddir samstarfsfélaga minna.
Annars hlusta ég á morgunþátt-
inn Zúúber á leiðinni í vinnu og
á leiðinni heim er það útvarps-
þátturinn Harmageddon.“
Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Athafnamennirnir Andr-
és Pétur Rúnarsson og
Sveinn Eyland halda
sinn árlega nýársfagn-
að á Hótel Borg annað
kvöld. Upphaflega
átti partíið að
vera í Turninum
í Kópavogi
en stað-
setn-
ingunni
var breytt á síðustu stundu. Eins
og venjan er verða gestirnir ekki af
lakara taginu. Á meðal þeirra verða
fótboltakappinn Eiður Smári Guð-
johnsen, Svava Johansen í 17 og
fagurkerinn Nadia Banine. Bryndís
Ásmundsdóttir verður veislustjóri
auk þess sem Helgi Björnsson mun
stíga á stokk.
Og það eru fleiri nýárs-
partí í burðarliðunum
því sjálfstæðismenn-
irnir Gísli Marteinn
Baldursson og Sig-
urður Kári Kristjáns-
son hafa verið í broddi
fylkingar veglegs
nýárspartís
víðfrægs
vinahóp-
ar þeirra.
Meðal þeirra
eru leikarinn
Rúnar Freyr Gíslason svo ein-
hverjir séu nefndir. Hópurinn hefur
ákveðið að sameinast leikhópnum
Vesturporti sem einnig hefur
fagnað nýju ári saman og verður
veislan, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins, í Iðu-húsinu.
Og af gefnu tilefni er rétt að taka
fram að aðdáendur Eurovision-síð-
unnar esctoday.com kusu Jóhönnu
Guðrún sem söngkonu ársins en
ekki fyrir sviðsframkomu eins og
kom fram í Fréttablaðinu í gær. Þau
verðlaun féllu í skaut frönsku söng-
konunnar Patriciu Kaas. Af Jóhönnu
er það hins vegar að frétta að allt
bendir til þess að hún
muni búa í ferðatösku
á næsta ári enda mikil
eftirspurn eftir
kröftum
hennar eftir
silfur-
gönguna í
Moskvu.
- fb, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
STÓR HUMAR HÖRPUSKEL
HUMARSÚPA
Opið laugardag 2. jan 11-14
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
OPIÐ
Í DA
G 10
-14