Samtíðin - 01.06.1964, Side 13

Samtíðin - 01.06.1964, Side 13
SAMTÍÐIN 9 Baráttan við elturlyfj asalana EITURLYFJASALA nú á dögum er eitt andstyggilegasta viðfangsefni lög- ^’eglunnar um heim allan. Ekki alls fyrir löngu dulhjuggu 75 kanadiskir lögreglu- bjónar sig sem róna lil að glíma við eit- Ursmyglara þar i landi. Árangurinn var handtökur 12 lögbrjóta, og heróínbirgðir fyrir 4.500.000 kr. komu í leitirnar. Bar- áttan tók 5 mánuði! Eftirfarandi frásögn eftir Norman Price þykir gefa mjög sanna hugmynd Ulu baráttuna við eiturlyfjasalana. Hún hefur birzt í merkum erl. tímaritum, bæði í heild og stytt. Hér er hún laus- Jega þýdd og stytt. KVENLÖGREGLAN frú Teresa Kelly vatt sér inn úr dyrunum á lögreglustöð a Rroadvray. Smávaxinn Puerto Rico- Uiaður, handjárnaður við stólinn, sem hann sat á, horfði gramur á marghleyp- Ulla sína, sem lá á skrifhorðinu fyrir feaman Kelly lögreglumann. Með þetta v°pn í höndum hafði pilturinn ætlað að 1-æna áfengisverzlun! - Teresa leit ekki frekar við bandingj- anum, heldur gekk rakleitt til manns síns og strauk grátt hár lians ástúðlega. tann var snöggklæddur og tottaði tóma PJPuna sína. Á hönd hans var gamalt ör eftir byssukúlu og annað nýrra á kinn- mni. ^^Heldurðu þú hafir nokkurn tíma til a® bjóða mér út að horða i kvöld, þegar Þu ert húinn með hann Jessie James érna?“ spurði hún. Puerto Rico- skammbyssumaðurinn hvessti augun á bana. »Óhugsandi,“ anzaði Kelly. „Kvenlög- leglustöðin þín var líka að hringja. Þær báðu þig að hringja undir eins til sín.“ Teresa hringdi. „Þetta er eiturlvfja- mál,“ sagði hún ólundarlega. „Ég á að biðja þig um lífvörð. Hvern get ég feng- ið?“ „Þú getur fengið mig, Terry. Ég er að verða laus hér. Ég get alveg eins dund- að við þetta eins og beðið eftir þér heima.“ Eiturlyfjamál voru einhver hættuleg- ustu viðfangsefni kvenlögreglunnar i Ne\v York um þessar mundir. Ef einhver komst á snoðir um bækistöð eiturlyfja- sala, var aðferðin sú að fá hann til að selja sér eiturlyfjapakka. Síðan var hægt að taka hann fastan, fyrr ekki. Þetta þýddi, að lögreglustúlkan varð að fara ein síns liðs, vopnlaus, án allra embætlisskilríkja inn í uppáhaldsvínkrá eiturlyfjasalans og fá liann til að trúa því, að hún eða elskhugi hennar væri óforhetranlegur eiturlyfj anotandi. Eiturlyfjasalar voru manna varkár- astir og afar tortryggnir gagnvart ókunn- ugum. Stúlkur, sem sendar höfðu verið til að lokka þá í gildru, höfðu stundum verið barðar til óbóta. Sumar höfðu lát- izt af afleiðingum þeirrar meðferðar. Teresa kvenlögregla varð því að fara vopnlaus og skírteinislaus í þessa hættu- för. Eina haldreipi hennar var, að líf- vörðurinn hennar missti aldrei sjónar á henni. KEEFMANS-veitingakráin við Amster- dam Avenue var ósköp hversdagsleg. Gluggatjöldin voru ekki dregin þar meira fyrir en gerist og gengur á heiðar- legum veitingastöðum. Menn sátu við veitingaborðið á háum stólkollum og drukku bjór og vín eins og venja er til, og sjálfspilarinn gaulaði dægurlögin. Munurinn var aðeins sá, að Willie eit- urlyfjasali hafði liér aðalhækistöð sína. Áður en Teresa vatt sér inn um dyrnar,

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.