Fréttablaðið - 11.01.2010, Side 4
4 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR
lyf?
Kynntu þér þinn rétt á lfi.is
Þarft þú að nota lyf að staðaldri?
Frumtök • Hjartaheill • Beinvernd • Lyfjafræðingafélag Íslands
v
KÖNNUN Tæplega tveir af hverjum
þremur sem afstöðu tóku í skoð-
anakönnun Fréttablaðsins telja
að Ólafur Ragnar Grímsson hafi
staðið sig vel í embætti forseta
Íslands.
Alls sögðust 64,5 prósent að for-
setinn hefði staðið sig vel í starfi,
en 35,5 prósent sögðu hann hafa
staðið sig illa.
Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, segir forsetann
geta ágætlega við unað að tveir af
hverjum þremur segist ánægðir
með störf hans almennt.
Niðurstaðan er í raun mjög góð
fyrir Ólaf Ragnar sé tímasetn-
ingin höfð í huga, segir Gunnar
Helgi. Forsetinn hafi tekið mjög
umdeilda ákvörðun síðastliðinn
þriðjudag, og ekki hefði verið við
því að búast að 90 prósent væru
ánægð með störf hans.
Í könnun Fréttablaðsins hinn
27. febrúar í fyrra var einnig
spurt um afstöðu fólks til forset-
ans. Spurningarnar eru ekki full-
komlega samanburðarhæfar, en
þar sögðust rúmlega 44 prósent
aðspurðra ánægð með störf forset-
ans, 20 prósent hvorki ánægð né
óánægð, og um 36 prósent sögðust
óánægð með störf Ólafs Ragnars.
Talsverður munur er á afstöðu
kynja til starfa forsetans. Tæp-
lega 70 prósent kvenna sögðust
ánægð með störf hans, en rúm-
lega 59 prósent karla. Þá er stuðn-
ingur við störf forsetans meiri á
landsbyggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu.
Alls sögðu tæplega 49 prósent
stuðningsmanna Sjálfstæðis-
flokksins að forsetinn hefði staðið
sig vel í starfi. Tæplega 73 prósent
stuðningsmanna Framsóknar-
flokksins voru á sömu skoðun.
Um 59 prósent stuðningsmanna
Samfylkingarinnar eru ánægð
með störf Ólafs Ragnars, og tæp-
lega 67 prósent stuðningsmanna
Vinstri grænna. Ekki var tölfræði-
lega marktækt að reikna afstöðu
stuðningsmanna Borgarahreyf-
ingarinnar eða Hreyfingarinnar.
Hringt var í 1.100 manns
fimmtudaginn 7. janúar. Svarend-
ur skiptust jafnt eftir kyni og hlut-
fallslega eftir búsetu. Spurt var:
Telur þú að Ólafur Ragnar Gríms-
son hafi staðið sig vel í embætti
forseta Íslands? Alls tóku 81,7 pró-
sent afstöðu til spurningarinnar.
brjann@frettabladid.is
Almenn ánægja með
störf forseta Íslands
Tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í könnun Fréttablaðsins segja Ólaf
Ragnar Grímsson hafa staðið sig vel í embætti forseta. Góð niðurstaða fyrir for-
setann eftir það sem á undan hefur gengið, segir prófessor í stjórnmálafræði.
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS
Já
Nei
17,4%
82,6%
51,2%
48,8%
40,7%
59,3%
33,1%
66,9%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0
Allir Karlar Konur
Ekki var marktækt
að reikna stuðning
fyrir stuðningsmenn
Borgarahreyfingarinnar
eða Hreyfingarinnar
Telur þú að Ólafur Ragnar Grímsson hafi staðið sig vel í
embætti forseta Íslands? Framsóknarflokkur
Sjálfstæðisflokkur
Samfylking
Vinstri græn
STJÓRNSÝSLA Björgólfur Guð-
mundsson, fyrrverandi banka-
ráðsformaður og aðaleigandi
Landsbankans, gaf skýrslu hjá
rannsóknarnefnd Alþingis á
föstudag, tveimur dögum eftir að
Stöð 2 flutti frétt af því að hann
og sonur hans, Björgólfur Thor,
hefðu ekki verið kallaðir fyrir
nefndina. Þetta kom fram á Vísi
í gær.
Þá segir í fréttinni að Björg ólf-
ur hafi áður sent nefndinni gögn
og upplýsingar að eigin frum-
kvæði. Þá hafa fyrrverandi
stjórnarformenn allra stóru
bankanna verið yfirheyrðir af
nefndinni. - sh
Rannsóknarnefnd Alþingis:
Björgólfur bar
vitni á föstudag
Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi gefur
kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar vegna borgarstjórnarkosn-
inganna í maí. „Jöfn tækifæri allra
barna, óháð uppruna og efnahag,
eiga að vera aðall Reykjavíkur og
velferð allra borgarbúa á að leiða for-
gangsröðun við meðferð fjármuna“,
segir í yfirlýsingu Oddnýjar.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Oddný vill 2. sæti
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
4°
-3°
0°
2°
-3°
-2°
1°
1°
20°
2°
15°
1°
13°
-4°
-1°
16°
-2°
Á MORGUN
5-13 m/s
Hvassast S- og SA-til.
MIÐVIKUDAGUR
3-8 m/s norðantil,
annars heldur hvassara.
4
3
2
2
-1
1
-1
5
3
5
-2
6
7
7
4
3
4
4
3
6
10
6
4
-2 -3
0
4 4 5
0 1
3
MILDIR DAGAR Í
dag verður áfram
heldur skýjað sunn-
an- og vestanlands
og búast má við
skúrum eða rign-
ingu með köfl um.
Næstu daga færist
úrkomusvæðið
austur á bóginn og
þá léttir heldur til
vestanlands og á
Vestfjörðum.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
UTANRÍKISMÁL Icesave-málið og
umsókn Íslands að Evrópusam-
bandinu eru tvö aðskilin mál.
Þetta kom
fram í sam-
tali Össurar
Skarphéðins-
sonar utanrík-
isráðherra við
Miguel Ángel
Moratinos,
utanríkisráð-
herra Spán-
ar. Spánn er
í forsæti ráð-
herraráðs Evrópusambandsins.
Ráðherrarnir ræddu stöðuna á
Íslandi á laugardag.
Moratinos sagði að hin nýja
staða sem upp væri komin á
Íslandi myndi ekki hafa áhrif á
meðferð ESB á umsókn Íslands.
Áður hefur David Miliband,
utanríkisráðherra Breta, lýst
því yfir að Bretar muni áfram
styðja umsókn Íslands. - þeb
Spánverjar um Icesave:
Engin áhrif á
umsókn í ESB
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
ÖRYGGISMÁL Undanfarið hafa
varðskip Landhelgisgæslunn-
ar og þyrlan TF-LIF æft notkun
þyrlueldsneytisbúnaðar sem er
um borð í skipunum. Með notk-
un hans er mögulegt að gefa
þyrlum á flugi eldsneyti. Slíkt
er afar mikilvægt þegar langt er
fyrir þyrlu að sækja eldsneyti
við björgunaraðgerðir. Um borð í
varðskipinu geta verið 2.500 lítr-
ar eldsneytis.
Áhafnir skipa og þyrlu flétta
æfingar með hinn nýja búnað við
hefðbundnar æfingar, björgun
manna af skipi, úr björgunarbát
og úr sjó. - shá
Landhelgisgæslan æfir:
Þyrlan tekur
bensín um borð
TAKA ELDSNEYTI Mikill tími vinnst með
nýjum búnaði til að taka eldsneyti um
borð. MYND/GUÐMUNDUR/LHG
FÓLK Hallgerður Helga Þorsteins-
dóttir vann öruggan sigur á
alþjóðlegu unglingamóti Taflfé-
lagsins Hellis sem fram fór um
helgina.
Hallgerður fékk fimm vinninga
í sex skákum. Í öðru til þriðja
sæti lentu Helgi Brynjarsson og
Svíinn Axel Akerman. Alls 23
skákmenn tóku þátt í mótinu.
Hallgerður H. Þorsteinsdóttir:
Vann alþjóðlegt
unglingamót
HEILBRIGÐISMÁL Rannsóknarstöð
Hjartaverndar hefur nýver-
ið fengið rannsóknastyrki frá
Bandarísku heilbrigðisstofnun-
inni (NIH) til rannsókna á sam-
bandi æðakerfis og heila- og
nýrnastarfsemi sem og til rann-
sókna á notkun beinamynda sem
munu spá fyrir um líkur á bein-
brotum. Styrkirnir nema 125
milljónum króna.
Hjartavernd hefur á síðustu
árum skipað sér sess meðal
fremstu rannsóknarstofnana
í heiminum á sviði notkunar á
myndgreiningu í faraldsfræði.
Rannsóknin á þætti beingerð-
ar sem greind verður með tölvu-
sneiðmyndum er samvinnuverk-
efni vísindamanna Hjartaverndar
og Berkley-háskóla í Bandaríkj-
um Norður-Ameríku. Rannsóknin
á æðakerfinu er gerð í samvinnu
við vísindamenn í Cambridge í
Bandaríkjunum.
Veruleg fjölgun aldraðra á
komandi áratugum veldur því
að beingisnun og beinbrot meðal
aldraðra er ein af mest ógnandi
heilbrigðisvandamálum heimsins.
Aukinn skilningur á þeim þáttum
sem ákvarða áhættu hvers ein-
staklings á því að brotna á mjöðm
eða hrygg og þróun aðferða til að
fyrirbyggja slík áföll er því afar
mikilvæg. Þessi rannsókn er lík-
leg til þess að geta varpað enn
frekar ljósi á áhættuþætti bein-
brota og veita hjálp við forvarnir
hvers konar. - shá
Hjartavernd tekur þátt í rannsóknum sem geta bætt líf milljóna manna:
Fær 125 milljónir í styrk
VILMUNDUR GUÐNASON Er forstöðu-
læknir Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar
og er einn þeirra sem leiðir rannsókna-
starfið. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Framboð í Mosfellsbæ
Ellefu manns gefa kost á sér í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.
Það eru Anna Sigríður Guðnadóttir,
Baldur Ingi Ólafsson, Gerður Pálsdótt-
ir, Gunnlaugur B. Ólafsson, Hanna
Bjartmars Arnardóttir, Jónas Rafnar
Ingason, Jónas Sigurðsson, Lísa
Sigríður Greipsson, Sigrún Pálsdóttir,
Valdimar Leó Friðriksson og Þóra
Bjarney Guðmundsdóttir.
GENGIÐ 08.01. 2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,3709
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,91 126,51
201,65 202,63
180,03 181,03
24,190 24,332
22,019 22,149
17,620 17,724
1,3500 1,3578
196,35 197,53
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR