Fréttablaðið - 11.01.2010, Blaðsíða 17
FASTEIGNIR.IS
11. JANÚAR 20102. TBL.
Fold-fasteignasala hefur til sölu rúmgóða og
fallega efri sérhæð í höfðinglegu húsi við Sól-
vallagötu.
H æðin er 132 fermetrar sem skiptist í tvær stofur og fjögur svefnherbergi. Komið er inn um inngang sem er sameig-
inlegur með íbúð á 1. hæð. Gengið inn af stigagangi
inn á gang með parketi. Önnur stofan er með sér
inngangi frá forstofu og sér dyrasíma. Parket er á
stofum og svefnherbergjum nema eitt herbergi, sem
er með aðskildum inngangi, er með dúk.
Eldhúsið er með nýlegri innréttingu, baðherbergi
er flísalagt með baðkari og sturtu. Geymsla er í risi
og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Þar eru tvö
sér tengi í þvottavél og þurrkara fyrir þessa íbúð.
Á íbúðinni eru litlar suðursvalir.
Húsið stendur við Sólvallagötu 14 og er húsið
nefnt í bókinni Indæla Reykjavík eftir Guðjón Frið-
riksson. Þar segir: „Og hér standa glæsihús Sól-
vallafélagsins í röðum. Á nr. 14 er hús Brynjólfs H.
Bjarnasonar kaupmanns teiknað af Einari Erlends-
syni 1928. Á því má sjá klassísk einkenni svo sem
hálfsúlur á hornum. Gríðarlega miklir hlynir setja
svip á lóðina.“
Stór eignarlóð (708 fm) er umhverfis húsið. Fal-
legur suðurgarður með fjölærum skrautplöntum og
svæði með matjurtakössum og sandkassa bak við
hús. Húsið var sprunguviðgert og málað árið 2003
og auk þess var þakið málað.
Rúmgóð sérhæð í 101
Húsið á Sólvallagötu 14 er höfðinglegt.
HÚSIN Í BORGINNI • Klapparstíg 5 • 101 Reykjavík • Sími 511 5005 • Fax 511 5009 • www.husin.is
Fr
u
m
Víðir Róbertsson
Sölumaður
Vilt þú selja, skipta, kaupa
hafðu samband í 511 5005
Gleðilegt nýtt ár, þökkum viðskiptin.
… það borgar sig!
Kristín Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Telma Róbertsdóttir
Löggiltur fasteignasali