Fréttablaðið - 11.01.2010, Blaðsíða 10
10 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Örverur geta orðið
ónæmar fyrir sótthreinsandi
efnum sem áttu að drepa þær,
samkvæmt nýjustu rannsóknum.
Þá hafa breyttu bakteríurnar
meira þol við algengu breiðvirku
sýklalyfi.
Í umfjöllun breska dagblaðs-
ins Telegraph er greint frá nið-
urstöðum rannsóknarteymis við
Háskóla Írlands í Galway. Það
komst að því að bakteríur sem
komast í tæri við sótthreinsandi
efni í smáskömmtum laga sig að
aðstæðum og gefa frá sér örveru-
eyðandi efni sem hamlaði virkni
bæði sótthreinsiefna og sýkla-
lyfja.
„Inni á spítölum gæti þetta
í raun þýtt að lítið magn sótt-
hreinsiefna úr skúringalegi sem
eftir verður á gólfi kynni að ýta
undir dreifingu alvarlegra sýk-
inga,“ hefur Telegraph eftir dr.
Gerard Fleming, sem fór fyrir
rannsókninni á Írlandi.
„Og enn frekari áhyggjum veld-
ur að bakteríur virðast geta þró-
ast í þá átt að mynda þol gegn
sýklalyfjum án þess að hafa kom-
ist í tæri við slík lyf,“ bætir hann
við.
Í rannsókninni kom fram að
þegar mjög litlum skömmtum
sótthreinsiefna var bætt í bakter-
íuræktun voru bakteríurnar sem
löguðu sig að efninu líklegri til að
þola bæði sýklalyf og hreinsiefni,
en aðrar bakteríur.
Breyttu bakteríurnar báru
einnig í sér genabreytingu sem
gerði þeim sérstaklega kleift að
standast breiðvirk sýklalyf af
cíprófloxacín-gerð.
Könnuð var P. aeruginosa bakt-
erían, en hún finnst víða og veld-
ur margvíslegum sýkingum í fólk
sem af einhverjum sökum er með
veikt ónæmiskerfi og í þeim sem
veikir eru af slímseigjusjúkdómi
og sykursýki. Bakterían er jafn-
framt sögð þekktur skaðvaldur á
sjúkrahúsum.
Haraldur Briem sóttvarnalækn-
ir segir þekkt að bakteríur geti
til dæmis lifað í sápu og þekkir
til umræðu um þol sem þær geti
myndað gegn sótthreinsiefnum.
„En þær eru nú allar næmar
fyrir spritti enn þá,“ segir Har-
aldur og bætir við að mestu skipti
líka reglubundin skolun með
vatni. „Þannig hjálpar til dæmis
handþvottur með sápu því þótt
bakteríurnar lifi þá gerir sápan
það að verkum að þær missa festu
og hreinsast af.“
olikr@frettabladid.is
Viltu kynnast
frambjóðendum
betur?
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
vegna borgarstjórnarkosninga 2010 bjóða
Reykvíkinga velkomna á opið hús í Valhöll.
Komdu í kaffihúsastemningu og kynntu þér
frambjóðendur og áherslur þeirra.
→ Þriðjudagurinn 12. janúar kl. 16-19
→ Fimmtudagurinn 14. janúar kl. 16-19
→ Þriðjudagurinn 19. janúar kl. 16-19
www.profkjor.is
Allir velkomnir!
Prófkjör í Reykjavík 23. janúar 2010
Upplýsingar um frambjóðendur eru á profkjor.is
Komdu og ræddu við
frambjóðendur í Valhöll
Auglýsingasími
– Mest lesið
Á LANDSPÍTALA Þol sem bakteríur geta myndað gegn sótthreinsandi efnum veldur
líka í þeim genabreytingu sem eflir varnir þeirra gegn cíprófoxacíni, en það er
algengt breiðvirkt sýklalyf, samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin var á Írlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Bakteríur
ónæmar fyrir
sótthreinsiefni
Leifar sótthreinsiefna geta ýtt undir að bakteríur
myndi þol gegn þeim. Sömu bakteríur geta svo ver-
ið ónæmar fyrir sýklalyfjum. Sóttvarnalæknir segir
reglubundna skolun yfirborðs mestu skipta.
Þannig hjálpar til dæmis
handþvottur með sápu
því þótt bakteríurnar lifi þá gerir
sápan það að verkum að þær
missa festu og hreinsast af.
HARALDUR BRIEM
SÓTTVARNALÆKNIR
ORKUFYRIRTÆKI. Stjórnarmenn
Landsvirkjunar hafa ekki farið
til útlanda á kostnað fyrirtækis-
ins síðustu fimm ár, að sögn Þor-
steins Hilmarssonar, upplýsinga-
fulltrúa Landsvirkjunar.
Eins og fram hefur komið nam
kostnaður Orkuveitu Reykjavík-
ur við utanlandsferðir stjórnar-
manna um sjö milljónum króna
undanfarin tvö ár. Dýrust var
ferð Sigrúnar Elsu Smáradóttur,
stjórnarmanns OR, til Afríku og
Asíu en hún kostaði um 1.700 þús-
und krónur.
Þorsteinn Hilmarsson segir
að síðasta ferð stjórnarmanns til
útlanda á vegum fyrirtækisins
hafi verið árið 2004. Þá var Kára-
hnjúkavirkjun í undirbúningi.
Hins vegar fari stjórnin í eina til
tvær ferðir innanlands á hverju
ári til að kynnast starfsemi Lands-
virkjunar. Þessar ferðir kosti „vel
innan við fimm hundruð þúsund á
ári“. Þá hafa stjórnarmenn, sem
búa utan höfuðborgarsvæðisins,
fengið greitt kílómetragjald eða
flugfargjald til að kosta ferðir á
stjórnarfundi. - pg
Stjórn Landsvirkjunar ferðast minna en stjórn Orkuveitunnar:
Ekki greitt fyrir utanlandsferð
stjórnarmanns síðan 2004
KÁRAHNJÚKAR Síðasta utanlandsferð
stjórnarmanna Landsvirkjunar var farin
2004 í tengslum við undirbúning Kára-
hnjúkavirkjunar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FLOTTUR Þessi ungi piltur tekur sig vel
út í gervi Elvis Presley. Um 10 þúsund
manns komu saman í Parkes í Ástralíu
um helgina til þess að minnast þess
að kóngurinn hefði orðið 75 ára.
NORDICPHOTO/AFP
SAMGÖNGUR Umferðin á sex-
tán völdum talningarstöðum á
hringveginum var 2,2 prósentum
meiri á árinu 2009 en árinu 2008.
Umferðin var hins vegar minni
en hún var metárið 2007 þótt ekki
muni miklu.
Umferðin í nýliðnum desember
var um 5 prósentum meiri en í
sama mánuði árið 2008. Árið ein-
kennist þó af mikilli umferð yfir
sumarmánuðina og var umferðin
þá töluvert meiri en metárið 2007.
Akstur eykst á öllum landsvæð-
um utan höfuðborgarsvæðis.
Mest eykst aksturinn á Austur-
landi, eða um rúm tíu prósent.
- shá
Íslendingar víðförlir:
Umferð eykst
eftir samdrátt