Fréttablaðið - 11.01.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 11.01.2010, Blaðsíða 36
 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR24 MÁNUDAGUR 17.45 E.R. STÖÐ 2 EXTRA SJÓNVARPIÐ SKJÁREINN OMEGA Dagskrá allan sólarhringinn. 19.50 Man. City – Blackburn, beint STÖÐ 2 SPORT 2 20.10 Glee STÖÐ 2 21.50 CSI. New York SKJÁRINN 22.25 Trúður SJÓNVARPIÐ STÖÐ 2 20.00 Uppúr öskustónni Guðjón Berg- man með ráð til að sleppa úr kreppu. 20.30 Eldhús meistaranna Magnúsar Ingi Magnússon heimsækir kollega sína. 21.00 Frumkvöðlar Valdimar Össurarson formaður Átaks og Gísli Gíslason formaður samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna.eru gestir Elinóru í dag. 21.30 Í nærveru sálar Umsjón hefur Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur. Endur- sýndur þáttur. 16.35 Leiðarljós 17.20 Táknmálsfréttir 17.30 Pálína (18:28) 17.35 Stjarnan hennar Láru (13:22) 17.50 Söngvakeppni Sjónvarpsins (e) 19.00 Fréttir 19.30 Veðurfréttir 19.35 Kastljós 20.15 Dúnn (Dun) Sænsk heimildamynd um dúnframleiðslu. Farið er á stúfana og athugað hvað hæft er í ásökunum um að megnið af þeim dún sem er á markaði sé plokkaður af lifandi fuglum. 21.15 Sporlaust (Without a Trace) (3:18) Kona hverfur eftir að kærastinn hennar deyr í skotbardaga við lögregluna og grunur vakn- ar um að bróðir hennar, sem er bófaforingi og fíkniefnasali, sé á einhvern hátt tengdur brottnámi hennar. Aðalhlutverk leika Anth- ony LaPaglia, Marianne Jean-Baptiste, Eric Close og Roselyn Sanchez. 22.00 Tíufréttir 22.15 Veðurfréttir 22.25 Trúður (Klovn VI) (3:10) Dönsk gamanþáttaröð um rugludallana Frank og Casper. 22.55 Aðþrengdar eiginkonur (e) 23.40 Framtíðarleiftur (e) 00.25 Spaugstofan (e) 00.50 Kastljós (e) 01.25 Lögin í söngvakeppninni Leikin verða lögin tvö úr síðasta þætti sem kom- ust í úrslit. 01.35 Dagskrárlok 07.00 Tenerife - Barcelona Útsending frá leik í spænska boltanum. 17.30 Real Madrid - Mallorca Útsend- ing frá leik í spænska boltanum. 19.10 Toronto - Boston Útsending frá leik í NBA körfuboltanum. 21.00 Spænsku mörkin Allir leikir um- ferðarinnar í spænska boltanum skoðaðir. Öll mörkin og öll bestu tilþrifin á einum stað. 22.00 Bestu leikirnir: HK - Fjölnir 07.07.08 Það var búist við hörkuleik á Kópa- vogsvelli þegar nýliðar HK og Fjölnis mættust. Gengi liðanna var þó ólíkt þar sem HK var í neðri hluta deildarinnar á meðan Fjölnir hafði leikið gríðarlega vel og var í efri hlutanum en leikurinn var mikil skemmtun. 22.30 World Series of Poker 2009 Sýnt frá World Series of Poker 2009 en þangað voru mættir til leiks allir bestu og snjöllustu pókerspilarar heims. 23.20 UFC Live Events Útsending frá bardaga Lyoto Machida og Mauricio Shog- un í UFC. 07.00 Liverpool - Tottenham Útsending frá leik í ensku úrvalsdeildinni. 14.25 Fulham - Portsmouth Útsending frá leik í ensku úrvalsdeildinni. 16.05 Birmingham - Man. Utd. Útsend- ing frá leik í ensku úrvalsdeildinni. 17.45 Premier League Review 2009/10 Rennt yfir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og allt það helsta úr leikjun- um skoðað gaumgæfilega. 18.45 1001 Goals Bestu mörk úrvalsdeild- arinnar frá upphafi. 19.50 Man. City - Blackburn Bein út- sending frá leik í ensku úrvalsdeildinni. 22.00 Premier League Review 2009/10 Rennt yfir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og allt það helsta úr leikjun- um skoðað gaumgæfilega. 23.00 Coca Cola mörkin 2009/2010 Sýnt frá öllum leikjunum í Coca-Cola deild- inni. Öll flottustu mörkin og tilþrifin á einum stað. 23.30 Man. City - Blackburn Útsending frá leik í ensku úrvalsdeildinni. 06.00 Pepsi MAX tónlist 08.00 Dr. Phil (e) 17.30 Dr. Phil Sjónvarpssálfræðingur- inn dr. Phil McGraw hjálpar fólki að leysa öll möguleg og ómöguleg vandamál. 18.15 Fréttir 18.30 Survivor (10:16) (e) 19.30 Fréttir (e) 19.45 King of Queens (9:25) Bandarísk- ir gamanþættir um turtildúfurnar Doug og Carrie. (e) 20.10 Kitchen Nightmares (11:13) Kjaft- fori kokkurinn Gordon Ramsey heimsæk- ir veitingastaði sem enginn vill borða á og hefur eina viku til að snúa við blaðinu. Að þessu sinni heldur Gordon til Hollywood til að bjarga veitingastað sem er svo ömur- legur að hann gæti verið efni í hrollvekjandi kvikmynd. 21.00 The Prisoner (2:6) Glæný þátta- röð með Ian McKellen og Jim Caviezel í að- alhlutverkum. Þættirnir fjalla um mann sem er fastur í undarlegum bæ í miðri eyðimörk og man ekki hvernig hann komst þangað. Bæjarbúar hafa enga vitneskju um veröldina fyrir utan bæinn en þeir sem leita sannleik- ans eru í bráðri hættu. 21.50 CSI. New York (18:25) Banda- rísk sakamálasería um Mac Taylor og félaga hans í rannsóknardeild lögreglunnar í New York. Morð er framið vegamóteli og hvítt duft sem finnst á vettvangi gefur rannsókn- ardeildinni á spor morðingjans. 22.40 The Jay Leno Show 23.25 Dexter (2:12) (e) 00.20 United States of Tara (12:12) (e) 00.50 King of Queens (9:25) (e) 01.15 Pepsi MAX tónlist 07.00 Barnatími Stöðvar 2 Áfram Diego, áfram!, Kalli litli Kanína og vinir og Krakkarnir í næsta húsi. 08.15 Oprah 08.55 Í fínu formi 09.10 Bold and the Beautiful 09.30 The Doctors 10.15 The Moment of Truth (18:25) 11.00 Ghost Whisperer (54:62) 11.45 60 mínútur 12.35 Nágrannar 13.00 Worst Week (4:16) 13.25 Flicka 15.10 ET Weekend 15.55 Njósnaskólinn 16.18 Barnatími Stöðvar 2 Kalli litli Kan- ína og vinir og Áfram Diego, áfram! 17.08 Bold and the Beautiful 17.33 Nágrannar 17.58 Friends (23:24) 18.23 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.47 Íþróttir 18.54 Ísland í dag 19.11 Veður 19.20 The Simpsons (16:25) Lífið hjá Hómer og Marge Simpson gengur sinn vana- gang en ekki líður sá dagur að þau eða börn- in, rati ekki í vandræði! -19.45 Two and a Half Men (1:24) Fjórða sería af þessum bráðskemmtilega þætti um bræðurnar Charlie og Alan Harper. 20.10 Glee (11:22) Gamanþáttaröð sem gerist í menntaskóla þar sem metnað- arfullur kennari og fyrrverandi nemandi skól- ans ákveður að setja aftur saman sönghóp skólans sem gerði einmitt stormandi lukku í sönghópakeppnum á árum áður. 20.55 So You Think You Can Dance (24:25) Sjötta þáttaröðin þar sem leitað er að næstu dansstjörnu Bandaríkjanna. 21.40 So You Think You Can Dance 23.10 K-Ville (7:11) Sakamálaþættir um fé- lagana Marlin og Trevor. Þeir eru afar ólíkir en vinna mjög vel saman sem verðir laganna og beita ósjaldan ansi óhefðbundnum aðferð- um til að framfylgja réttvísinni. 23.55 Hung (1:10) 00.40 Five Days (1:5) 01.35 Feteless 03.50 Flicka 05.25 Fréttir og Ísland í dag > Ian McKellen „Ég á erfitt með að láta það eftir mér að vera latur. Ef ég hef ekki afrekað neitt annað en að elda og fara í göngutúr þá verð ég sakbit- inn yfir því að hafa ekki nýtt daginn betur.“ McKellen fer með aðal- hlutverkið í þættinum The Prisoner sem Skjár einn sýnir í kvöld kl. 21.00. GLÆNÝ LÍNUÝSA, HROGN OG LIFUR FISKIBOLLUR, PLOKKFISKUR, ÝSA Í RASPI SALTFISKUR, KINNAR OG GELLUR SÚR HVALUR, HÁKARL OG HARÐFISKUR 08.00 Manchester United. The Movie 10.00 Tenacious D. in The Pick of Destiny 12.00 The Sandlot 3 14.00 Manchester United: The Movie 16.00 Tenacious D. in The Pick of Destiny 18.00 The Sandlot 3 20.00 Jesse Stone. Night Passage 22.00 Half Nelson 00.00 The Departed 02.30 Hellraiser. Inferno 04.10 Half Nelson 06.00 Across the Universe ▼ ▼ ▼ ▼ Atburðir í algleymi fyrri heimsstyrjaldarinnar, og greint var frá í ágætri kvikmynd fyrir stuttu, hafa verið mér ofarlega í huga að undanförnu. Um jólin 1914 höfðu um nokkurra mánaða skeið staðið yfir linnulausir bardagar rétt við frönsku landamærin. Hermenn frá mörgum löndum Evrópu bárust þar á banaspjótum; miskunnar- leysið var algjört og mannfallið mikið í herbúðum allra. Á aðfanga- dagskvöld söfnuðu menn kröftum fyrir bardaga komandi dags, en hermenn skoskrar herdeildar tóku þá til bragðs að syngja jólasálma sér til dægrastyttingar. Undir söng hermann- anna léku þeir á sekkjapípur. Óvinurinn, Þjóðverjar, heyrðu söng þeirra greinilega og hófu upp raust sína. Heims um ból hljómaði á þessari köldu jólanótt á meðan geislar kyndlanna dönsuðu á milli fallinna hermanna á vígvellinum. Þessa nótt sömdu foringjar herdeildanna um að gert yrði vopnahlé í sólarhring. Hermennirnir skriðu upp úr skotgröfunum og skiptust á gjöfum. Sagðar voru sögur, skálað var í kampavíni, borðað súkkulaði og spilaður fót- bolti. Joyeux Noël (en það er nafn myndarinnar), Frohe Weihnacht- en og Merry Christmas var kallað á milli. Gleðileg jól! Hermennirnir urðu aftur manneskjur, þótt það væri aðeins í stutta stund. Þeir skrifuðu ástvinum sínum bréf og saga þessi er vel varðveitt á mörg- um tungumálum. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að yfirmenn herjanna sendu þessa menn flesta fyrir herrétt eða á þau átakasvæði sem þótti ólíklegast að þeir ættu afturkvæmt. Þeir voru í þeim skilningi dæmdir til dauða fyrir að neita að drepa á jólunum. Það eru örugglega jólin sem gera svona sögur athyglisverðar. En ég get ekki neitað því að allt tal um að skríða upp úr skotgröfunum hefur fengið aukna merkingu eftir að forsetinn synjaði Icesave-lögunum staðfestingar. VIÐ TÆKIÐ SVAVAR HÁVARÐSSON VARÐ HUGSI Dæmdir til dauða fyrir að neita að drepa

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.