Fréttablaðið - 11.01.2010, Síða 32

Fréttablaðið - 11.01.2010, Síða 32
20 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Ísland vann um helgina tvo góða sigra á Þýskalandi þegar liðin mættust í tveimur æfinga- leikjum. Báða leikina vann Ísland með fjögurra marka mun – fyrst í Nürnberg, 32-28, og svo í Regens- burg, 33-29. Liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir Evrópumeistaramótið sem hefst í Austurríki eftir eina viku. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var vitaskuld ánægður með sigrana tvo en sagði að hann hefði séð margt sem þarf að laga. „Ég var ánægður með leikinn í dag og margt í honum sem var jákvætt,“ sagði Guðmundur við Fréttablaðið eftir sigurinn í Reg- ensburg í gær. „Það var þó líka margt í honum sem við þurfum að laga – ýmist í vörn og sókn, í hraðaupphlaupum og í hlaupunum aftur í vörn. Við þurfum í raun að bæta okkur á öllum sviðum.“ Hann sagði að liðið hefði feng- ið kröftuga mótspyrnu frá Þjóð- verjum um helgina. „Þeir voru á köflum að spila mjög vel og við lentum í miklum vandræðum með þá í báðum leikjunum. Þetta voru jafnir leikir og við sigum svo fram úr á lokakaflanum í þeim báðum. Þetta voru því mjög góðir æfinga- leikir.“ Ólafur Stefánsson var að leika sína fyrstu alvöru landsleiki um helgina síðan á Ólympíuleikunum í Peking fyrir einu og hálfu ári. Það var þó ekki að sjá og fór hann fyrir íslenska sóknarleiknum og skoraði alls nítján mörk í leikjun- um tveimur. „Ólafur var mjög góður í dag og fellur mjög vel inn í leik landsliðs- ins. En það voru fleiri leikmenn en hann sem voru að gera hlutina. Við skoruðum mörkin okkar á mjög fjölbreytilegan hátt og úr öllum stöðum. Það er mjög mikilvægt að sóknarleikurinn falli ekki allur á herðar eins manns. Það voru margir sem hjálpuðu til í sóknar- leiknum og ég var ánægður með heildarbraginn á honum.“ Guðmundur sagði margt mjög jákvætt hafa verið við mark- vörslu og varnarleik liðsins þó svo að Björgvin Páll Gústavsson hafi ekki átt jafn góðan leik í gær og í fyrradag þar sem hann fór oft á kostum. „Það er helst að það vanti meiri stöðugleika í 6-0 vörnina okkar. 5+1 vörnin gekk mjög vel í fyrri leiknum sem og undir lok síðari leiksins,“ sagði Guðmundur. „Ég get því ekki annað en verið nokkuð ánægður. Ég geri mér þó grein fyrir því að við þurfum að bæta ýmislegt. Nú er rúm vika í fyrsta leik á EM og við þurfum að vera einbeittir og halda yfirveg- un. Þetta voru jú bara æfingaleik- ir en ekki riðlakeppni á stórmóti. Það er hin raunverulega staðreynd málsins.“ Guðmundur gladdist einnig yfir því að enginn leikmannanna varð fyrir meiðslum í leikjunum tveim- ur um helgina. Hins vegar er staða þeirra Loga Geirssonar og Þóris Ólafssonar, sem urðu eftir heima vegna sinna meiðsla, enn óljós. „Ég vona vissulega að þeir jafni sig fljótt og vel því við höfum í raun aðeins þrjá daga upp á hlaupa með það. Við verðum því að vona það besta,“ sagði Guðmundur. Næsta verkefni Íslands verð- ur æfingaleikur gegn Portúgal í Laugardalshöllinni á miðviku- dagskvöldið. Það verður eini leikur Íslands hér heima fyrir EM í Aust- urríki og kallaði Guðmundur eftir stuðningi landans. „Portúgalar munu örugglega berjast af fullum krafti í þessum leik og ég á von á hörkuleik. Við vonumst allir eftir því að Íslend- ingar fylli Höllina og sýni liðinu eins mikinn stuðning og kostur er á.“ eirikur@frettabladid.is Heilmargt sem við þurfum að laga Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var vitaskuld ánægður með að hans menn unnu um helgina tvo æfingaleiki gegn Þjóðverjum ytra en sagði þó að liðið þyrfti að bæta sig á öllum sviðum handboltans. LANDSLIÐSEINVALDURINN Guðmundur Guðmundsson var ánægður með margt í leik Íslands. NORDIC PHOTOS/BONGARTS TVEIR GÓÐIR Sverre Andreas Jakobsson og Róbert Gunnarsson í leiknum á laugardaginn. NORDIC PHOTOS/BONGARTYS Björgvin Páll Gústavsson markvörður átti góða helgi með íslenska landsliðinu í handbolta þegar liðið fagnaði sigri í tveimur æfingaleikj- um gegn Þjóðverjum ytra. Björgvin stóð sig sérstaklega vel í fyrri leik liðanna þar sem hann var með meira en 40 prósent markvörslu. „Ég var þokkalega sáttur við mína frammistöðu í fyrri leiknum en ég fann ekki taktinn í upphafi þess síðara. Þá kom Hreiðar [Guðmundsson] sterkur inn og ég fór svo aftur í markið í seinni hálfleik og gekk ágætlega á lokakafla leiksins. Við eigum þó heilmikið inni eins og aðrir leikmenn í liðinu,“ sagði Björgvin við Fréttablaðið í gær. „En það er ljóst að við höfum verið að finna okkur betur og betur. Þessi úrslit gefa okkur meira sjálfstraust og trú á verkefninu sem er fram undan,“ bætti hann við en eftir eina viku hefst Evrópumeistaramótið í Austurríki. „Það sem er einna jákvæðast er að við unnum báða leikina þó svo að við spiluðum ekkert sérstaklega vel. Það er enn heilmikið sem við getum lagað og við höfum nú tíma til þess.“ Hann sagði frammistöðu Þýskalands ekki hafa verið mjög traustvekjandi. „Þeir þurfa greinilega meiri tíma til að koma sínum málum á hreint.“ Spurður um varnarleik íslenska liðsins sagði hann hafa verið mjög góðan stærstan hluta leikjanna um helgina. „Við vorum í basli fyrsta korterið í fyrri leiknum en varnarleikurinn var annars mjög góður. Það var svipaða sögu að segja af síðari leiknum. Við gerðum þó helling af mistökum en það var gott að ná að vinna leikina engu síður.“ Björgvin segist ánægður með stöðu liðsins í dag. „Við erum komnir lengra í undirbúningnum en ég bjóst við. Það eru enn nokkrir leikmenn meiddir eins og Logi og Þórir en þeir koma vonandi sterkir inn á næstu dögum. Við erum á réttri leið en margt enn sem við getum lagað. Enda hefur það sýnt sig að enginn verður meistari í æfingaleikjum.“ BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON: KOMNIR LENGRA Í UNDIRBÚNINGNUM EN ÉG ÁTTI VON Á Verður enginn heimsmeistari í æfingaleikjum Landsleikir í handbolta Þýskaland - Ísland 28-32 (16-14) Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 10/6, Snorri Steinn Guðjónsson 5/1, Arnór Atlason 5, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Sturla Ásgeirsson 2, Alex- ander Petersson 2, Róbert Gunnarsson 2, Vignir Svavarsson 1, Aron Pálmarsson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 20 (43%), Hreiðar Levý Guðmundsson 1/1. Þýskaland - Ísland 29-33 (17-18) Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 9, Guðjón Valur Sigurðsson 6, Alexander Petersson 5, Snorri Steinn Guðjónsson 4/1, Vignir Svavarsson 2, Aron Pálmarsson 2, Ingimundur Ingimundarson 2, Arnór Atlason 2, Róbert Gunnarsson 1. Iceland Express-deild karla Hamar - Snæfell 86-98 Stig Hamars: Andre Dagney 38, Marvin Valdi- marsson 15, Svavar Pálsson 15, Oddur Ólafsson 12, Viðar Örn Hafsteinsson 6. Stig Snæfells: Sean Burton 28, Jón Ólafur Jónsson 23, Sigurður Þorvaldsson 18, Hlynur Bæringsson 13, Emil Þór Jóhannsson 7, Sveinn Davíðsson 6, Páll Helgason 3. Grindavík - Tindastóll 124-85 Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 54, Darrell Flake 24, Ólafur Ólafsson 14, Ómar Örn Sævarsson 11, Björn Brynjólfsson 6, Guðlaugur Eyjólfsson 5, Þorleifur Ólafsson 5, Ármann Vilbergsson 3. Stig Tindastóls: Svavar Atli Birgisson 20, Kenneth Boyd 15, Micheal Giovacchini 12, Sveinbjörn Skúlason 9, Helgi Margeirsson 8, Hreinn Birgis- son 7, Helgi Viggósson 7, Axel Kárason 4, Freiðrik Hreinsson 2. Breiðablik - Keflavík 75-83 Stig Breiðabliks: Jonathan Schmidt 17, Jeremy Caldwell 16, Daníel G. Guðmundsson 10, Þor- steinn Gunnlaugsson 8, Ágúst Angantýnsson 8, Rúnar Pálmarsson 7, Gylfi Geirsson 5, Aðalsteinn Pálsson 4. Stig Keflavíkur: Draelon Burns 27, Sigurður Þorsteinsson 17, Hörður Axel Vilhjálmsson 12, Elentínus Margeirsson 8, Þröstur Leó Jóhannsson 7, Sverrir Þór Sverrisson 5, Jón Nordal Hafsteins- son 4, Almar Stefán Guðbrandsson 3. Spænska úrvalsdeildin Tenerife - Barcelona 0-5 0-1 Lionel Messi (36.), 0-2 Carles Puyol (44.), 0-3 Lionel Messi (45.), 0-4 Lionel Messi (75.), 0-5 Ezequiel Luna, sjálfsmark (85.) Real Madrid - Mallorca 2-0 1-0 Gonzalo Higuain (8.), 2-0 Esteban Granero (50.). Xerex - Valencia 1-3 Sevilla - Racing Santander 1-2 ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Páll Axel Vilbergsson fór mikinn þegar Grindavík vann stórsigur á Tindastóli á heimavelli í gærkvöld, 124-84. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 54 stig í leiknum. Hann setti niður alls tíu þriggja stiga skot í átján tilraunum í leiknum. Þá hitti hann úr átta af ellefu skotum sínum innan þriggja stiga línunnar. „Hann var einfaldlega í sínum eigin heimi í kvöld. Hann komst í gírinn og þá klikkar hann ekki,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, eftir leikinn í gær. „Ég hef reyndar séð hann gera þetta hundrað sinnum áður.“ Friðrik sagði Pál Axel hafa spil- að mjög vel, bæði í sókn og vörn. „Hann stal til að mynda sex bolt- um og það var mjög gott jafnvægi í hans leik.“ Páll Axel jafnaði þar með met Vals Ingimundarsonar frá 1988 þegar hann skoraði 54 stig í leik með Tindastóli. Enginn Íslendingur hefur skorað fleiri stig í einum og sama leiknum en fyrr í vetur skoraði Marvin Valdimarsson 51 stig í leik með Hamar. „Ég gat nú ekki leyft honum að slá metið hans Vals vinar míns og þess vegna tók ég hann út af þegar nokkrar mínútur voru eftir,“ sgaði Frið- rik og skellihló. „Ég held reyndar að Palli hafi haft hugmynd um þetta met og sé í raun alveg sama.“ Friðrik var ánægður með sína menn í gær. „Við skoruðum mikið og spiluð- um hratt. Ég var ánægð- ur með heildarframmistöðu liðsins sérstaklega þar sem að þeir Brenton [Birm- ingham] og Arnar Freyr [Jónsson] voru báðir frá vegna meiðsla. Það er óvitað hvað það er langt í þá.“ Alls fóru þrír leik- ir fram í Iceland Express-deild karla í gær. Keflavík vann Breiðablik á útivelli, 83-75, og Snæfell vann sömuleiðis góðan útisig- ur á Hamar, 98-88. - esá Páll Axel Vilbergsson skoraði 54 stig og jafnaði 22 ára gamalt met í gær: Palli var einn í heiminum 54 STIG Páll Axel var sjóðheitur í Grindavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON > Skoraði í vítaspyrnukeppni Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fjórða og síðasta mark AS Monaco er liðið vann sigur á FC Tours í vítaspyrnukeppni, 4-3, í frönsku bikarkeppninni um helgina. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því gripið til vítaspyrnukeppni. Eiður Smári var á varamannabekknum en kom inn á á 65. mínútu og fékk nokkur góð færi til að tryggja sínum mönnum sigurinn. Það var þó markvörður Monaco sem var hetja liðsins en hann varði síðustu tvær spyrnur FC Tours sem leikur í B- deildinni í Frakklandi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.