Fréttablaðið - 11.01.2010, Qupperneq 34
22 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR
Rannsóknaþjónusta
LEONARDO STARFSMENNTUN
ST
O
FA
N
-
L
EO
00
4
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Dunhaga 5, 107 Reykjavík
NÁMSKEIÐ Í GERÐ UMSÓKNA UM
YFIRFÆRSLUVERKEFNI INNAN LEONARDO
STARFSMENNTAÁÆTLUNAR ESB
FIMMTUDAGINN 14. JANÚAR KL. 11-14 Í NÁMU, SAL ENDURMENNTUNAR HÍ, DUNHAGA 7
Styrkir eru veittir til skóla og stofnana sem sinna starfsmenntun til að aðlaga og yfirfæra
þekkingu og aðferðir sem hafa verið þróaðar í öðrum löndum til nýrra markhópa og starfs-
greina í fleiri Evrópulöndum.
Dæmi um verkefni:
innleiðing nýrra kennsluaðferða og yfirfærsla og þýðing námsefnis
þróun færni og hæfni kennara og leiðbeinenda í starfs- og símenntun
nýjar aðferðir í vinnustaðaþjálfun
mat á raunfærni og gæðaviðmið í námi
efling starfsgetu hópa sem eru í áhættu, s.s. nemenda í
brottfallshættu og atvinnulausra
Þátttakendur í verkefnum eru a.m.k. 3 aðilar frá jafnmörgum Evrópulöndum.
Veittir eru styrkir til 12-24 mánaða og styrkupphæðir nema allt að 300.000 evrum.
Séríslenskt forgangsatriði gildir fyrir umsóknir um Leonardó yfirfærsluverkefni árið 2010.
Umsóknir sem falla að þessu forgangsatriði fá viðbótarstig í mati. Það er:
Gegnsæi í starfsmenntun með þróun samhæfðs einingakerfis og viðmiðunarramma
um nám, mat á raunfærni og viðurkenning á færni einstaklinga
Umsóknarfrestur vegna yfirfærsluverkefna er til 26. febrúar 2010.
Námskeiðið er ókeypis og öllum opið. Skráning fer fram í síma 525 4900 eða
með tölvupósti á lme@hi.is.
Hægt er að óska eftir aðgengi að námskeiðinu í gegnum fjarfundabúnað
símenntunarstöðva á landsbyggðinni.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á www.leonardo.is
FÓTBOLTI Landslið Tógó tekur
ekki þátt í Afríkumóti landsliða
sem hófst í Angóla í gær. Þetta
var ákveðið eftir að skotárás var
gerð á rútu liðsins rétt innan við
landamærin í Angóla á föstudag-
inn. Þrír létust í árásinni – bílstjór-
inn, aðstoðarþjálfari landsliðsins
og fjölmiðlafulltrúi. Fleiri særð-
ust, þar af tveir leikmenn. Annar
þeirra, markvörðurinn Kodjovi
Obilale, særðist lífshættulega og
var fluttur á sjúkrahús í Suður-
Afríku þar sem hann gekkst undir
aðgerð.
Emmanuel Adebayor er lands-
liðsfyrirliði Tógó og hann sagði
þetta hafa verið hræðilega lífs-
reynslu.
„Á föstudaginn klukkan 14.30
vorum við allir dauðir í rútunni,“
sagði hann við frönsku útvarps-
stöðina RMC. „Við sendum okkar
hinstu skilaboð til fjölskyldna
okkar. Við hringdum í fjölskyld-
ur okkar til að segja þeim okkar
hinstu orð.“
Þrátt fyrir allt sagði Adebayor
að hann hefði viljað spila á mót-
inu.
„Í dag ákváðu yfirvöld [í Tógó]
að við myndum koma heim. Því
munum við koma heim,“ sagði
hann enn fremur.
Á föstudaginn lýstu hann og
fleiri landsliðsmenn Tógó hvernig
þeir földu sig undir sætum rútunn-
ar á meðan byssukúlum rigndi yfir
þá. „Við vorum undir sætunum í
20 mínútur og reyndum að forðast
byssukúlurnar,“ sagði hinn 26 ára
gamli Moustapha Salifou.
Þá voru leikmenn sammála um
að spila ekki á mótinu. En það
breyttist svo á fundi þeirra á laug-
ardagskvöldið og þeir ákváðu að
þeir vildu spila þrátt fyrir allt.
En forsætisráðherra Tógó, Gil-
bert Houngbo, var harðákveðinn í
því að kalla leikmennina heim og
varð það niðurstaðan.
Forráðamenn Knattspyrnu-
sambands Afríku hafa ákveðið
að keppninni verði haldið áfram
en Houngbo gagnrýndi þá harka-
lega.
„Til þessa höfum við ekkert
heyrt í þeim – við höfum ekki einu
sinni fengið símtal þar sem okkur
er vottuð samúð. Við höfum þar að
auki engar upplýsingar fengið til
að hjálpa okkur að meta öryggis-
ástandið í Angóla,“ sagði Houng-
bo.
„Allir þeir sem hafa starfað að
öryggismálum vita vel að það væri
afar óábyrgt að halda bara áfram
eins og ekkert hefði í skorist. Það
var þess vegna að við ákváðum að
láta hagsmuni okkar fólks skipta
meira máli en hagsmunir keppn-
innar.“
Knattspyrnusamband Afríku til-
kynnti í gær að hinna látnu verði
minnst með einnar mínútu þögn
fyrir opnunarleik Angóla og Malí
í gærkvöldi.
Árásin átti sér stað í Cabinda-
héraði en þar hafa skæruliðar áður
barist fyrir sjálfstæði héraðsins
undanfarna áratugi. Frelsissam-
tök í héraðinu lýstu verknaðinum á
hendur sér en þau höfðu samþykkt
vopnahlé árið 2006.
Tógó átti að leika í B-riðli og er
enn áætlað að leikir riðilsins fari
fram í Cabinda-héraði. Hin liðin í
riðlinum, Fílabeinsströndin, Bur-
kina Faso og Gana hafa staðfest
þátttöku sína í keppninni.
Einn leikur í A-riðli fer einnig
fram í héraðinu sem og viðureign
í fjórðungsúrslitum.
eirikur@frettabladid.is
Við vorum allir dauðir í rútunni
Landslið Tógó hefur dregið sig úr keppni í Afríkumóti landsliða í knattspyrnu sem hófst í gær. Gerð var
skotárás á liðsrútu Tógó á föstudaginn þar sem þrír létust og nokkrir til viðbótar slösuðust, þar af leikmenn.
HERT GÆSLA Lögreglumaður í Angóla þar sem Afríkukeppni landsliða í knattspyrnu hófst í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Aðeins tveir leikir fóru
fram í ensku úrvalsdeildinni um
helgina. Vegna kuldakastsins og
snjókomunnar í Bretlandi var
ákveðið að fresta sjö viðureign-
um sem er það mesta á einni helgi
síðan á sjöunda áratug síðustu
aldar.
Manchester United og Arsenal
voru þó bæði í eldlínunni og hefði
því getað dregið til tíðinda í topp-
baráttunni í Englandi. Hins vegar
urðu bæði lið að sætta sig við jafn-
tefli og hélt því Chelsea toppsæti
sínu. Með sigri United á Birming-
ham hefði liðið því getað komið sér
á topp deildarinnar en liðin skildu
jöfn, 1-1. Birmingham bætti félags-
met um helgina þar sem liðið hefur
nú leikið tólf leiki í röð í efstu deild
án taps.
Þeir rauðklæddu voru þó mun
sterkari aðilinn í leiknum en máttu
sætta sig við að vera 1-0 undir í
hálfleik. Þeim gekk ekki betur að
nýta færin í seinni hálfleik þar
sem jöfnunarmarkið var sjálfs-
mark Scott Dann.
„Birmingham er í virkilega góðu
formi,“ sagði Alex Ferguson, stjóri
United, eftir leikinn. „Þeir leggja
mikið á sig og gera andstæðingn-
um erfitt fyrir. Við verðum því að
vera sáttir við eitt stig, sérstaklega
þar sem við misstum mann af velli
undir lokin.“
Ferguson átti þar við rauða
spjaldið sem Darren Fletcher fékk
fyrir mjög litlar sakir undir lokin.
Hann gagnrýndi Mark Clatten-
burg dómara mjög eftir leikinn og
á það á hættu að vera sektaður og
dæmdur í bann, rétt eins og gerð-
ist í haust.
Arsenal og Everton skildu jöfn,
2-2, þar sem fyrrnefnda liðið skor-
aði jöfnunarmarkið í uppbótar-
tíma. Bæði mörk Arsenal komu
eftir að skot að marki breytti um
stefnu á varnarmanni.
„Everton spilaði mjög vel og við
vorum ekki upp á okkar besta,“
sagði Arsene Wenger, stjóri Arsen-
al, eftir leikinn. „En ég er ánægð-
ur með viðhorf leikmanna og að
þeir náðu að koma til baka og ná
þó einu stigi – þetta var gott stig
miðað við frammistöðuna.“ - esá
Sjö leikjum frestað í ensku úrvalsdeildinni:
United mistókst að
komast á toppinn
MARKI FAGNAÐ Cameron Jerome kom Birmingham yfir gegn Manchester United um
helgina. NORDIC PHOTOS/GETTY
Iceland Express-deild kvk
Valur - Haukar 51-71
Keflavík - Njarðvík 86-64
Hamar - Grindavík 76-87
Snæfell - KR 47-76
STAÐAN
KR 12 12 0 899-618 24
Grindavík 12 8 4 840-793 16
Hamar 12 8 4 861-833 16
Keflavík 12 6 6 821-770 12
Haukar 12 5 7 856-833 10
Njarðvík 12 4 8 806-872 8
Snæfell 12 3 9 690-864 6
Valur 12 2 10 648-844 4
N1-deild kvenna
Valur - Haukar 31-27
HK - Fram 27-35
Stjarnan - Fylkir 26-20
STAÐAN
Valur 12 10 2 0 396-228 22
Fram 12 10 1 1 368-258 21
Stjarnan 11 8 1 2 347-249 17
Haukar 12 8 0 4 360-298 16
FH 10 6 0 4 283-274 12
Fylkir 11 4 0 7 264-261 8
HK 12 2 1 9 276-381 5
KA/Þór 12 1 1 10 273-367 3
Víkingur 12 0 0 12 198-449 0
Enska úrvalsdeildin
Birmingham - Manchester United 1-1
1-0 Cameron Jerome (39.), 1-1 Scott Dann,
sjálfsmark (64.).
Arsenal - Everton 2-2
0-1 Leon Osman (12.), 1-1 Denilson (28.), 1-2
Steven Pienaar (81.), 2-2 Tomas Rosicky (90.).
Enska B-deildin
Coventry - Barnsley 3-1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir
Coventry og Emil Hallfreðsson fyrir Barnsley.
Skoska bikarkeppnin
Aberdeen - Hearts 2-0
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn fyrir H.
Spænska úrvalsdeildin
CB Granada - CB Murcia 79-76
Jón Arnór Stefánsson skoraði níu stig fyrir Gran-
ada, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.
ÚRSLIT