Börnin - 01.12.1905, Síða 1
T
ÍS.O. 005
Kveðja nýja blaðsins til barnanna.
Sæl og blessuð, börnin mín!
Ni'i kem eg til ykkar nýr af nálinni og heiti í höfuðið á
ykkur. Ekki þykir ykkur það verra. Það veit cg fyrir víst.
Og ekki takið þið verr á móti mér fyrir það. En það langar
mig til að fá góðar viðtökur hjá ykkur.
Þið viljið, að vel sé tekið á móti ykkur, þegar þið fari'ð að
finna kunningjabörn ykkar. Og þegar þið farið aftur heim,
þá þykir ykkur vænt um að sagt sé við ykkur: Komið bráðum
aftur. ,
Þi‘ð getið þá nærri, hvort mér muni ekki þykja vænt um að
fá góðar viðtökur hjá ykkur og hjá pabba ykkar og mömmu.
Þau eiga húsið og eig'a með að bjóða mér inn. Vitanlega
langar mig þá til, að það hýrni yfir þeim, þegar dyrnar opnast
og þau sjá, hyer gesturinn er. En vænst þ'ykir mér þó um, að
sjá ykkur hoppa upp og klappa saman lófunum, þegar þið sjáiö
framan í mig. Og svo koma hlaupandi beint upp í fangið á
á mér. Það væri gaman. Eg skyldi klemma ykkur og hampa
ykkur og hossa ykkur og, lyfta ykkur liátt upp í loftið. Og svo
þegar eg er búinn að tefja stund hjá ykkur og er að fara, hvað
mér skykli þá þykja vænt um að heyra ykkur kalla á eftir mér:
Kondu aftur! Kondu fljótt aftur!
LAMDSBÓKASAFN
i 79385
ISLANÞS