Morgunn


Morgunn - 01.06.1945, Page 22

Morgunn - 01.06.1945, Page 22
18 M 0 R G U N N Erskine setti sig nú í samband við föðurinn og bað hann að finna sig. Frá samfundum þeirra segir hann á þessa leið: „Ég talaði við hann undir fjögur augu, og honum brá talsvert, þegar ég spurði hann, hvort hann hefði ekki fundið hin ósýnilegu augu sonar síns fylgja sér á ferð sinni um Lundúnagötur. Hann hafði ekki orðið þess var. Ég sýndi honum nú það, sem ég hafði skrifað eftir syni hans dáleiddum, og hann féll alveg í stafi af undrun. Hann varð höggdofa, orðlaus um stund, og þegar hann gat loks komið upp orði, bað hann mig um skýringu. Ég gaf honum skýringuna, en hann gat ekki trúað mér. En hann játaði fyrir mér, að allt, sem sonur hans hafði sagt mér um at- hafnir hans, fólkið, sem hann hefði talað við, staðina, sem hann hefði komið á, hvert orð væri út í æsar rétt. Hann bar fram við mig tvær óskir, og ég veitti honum þær báðar. Önnur var sú, að ég skyldi ekki birta það, sem ég hafði skrifað eftir syni hans, og hin var sú, að ég skyldi aldrei senda anda sonar hans í slíkt ferðatag eftir honum oftar. „Blessaður, reyndu þetta á einhverj- um öðru.m“, sagði hann hlæjandi“. Þarna getur enginn hugsanaflutningur komið til greina, því að hvorki dávaldurinn né hinn dáleiddi maður höfðu nokkra eðlilega vitneskju um, hvað faðir piltsins væri að gera. Vissulega sá pilturinn í „gegn um holt og hæðir“, meðan hann var undir dáleiðsluáhrifum frá Erskine. Líka sögu birtir hin stórlærða gáfukona frú Sidgwick, ekkja hins mikla vísindamanns og systir Balfours lávarð- ar, hins alkunna forsætisráðherra Breta. Söguna birtir hún, eins og margt annað merkilegt, í Skýrslusafni Brezka Sálarrannsóknafélagsins. Hr. A. W. Dobbie í Adelaide, mjög æfður dávaldur, spurði einhverju sinni unga stúlku, sem hann hafði dá- leitt: „Getur þú sagt mér, hvar faðir þinn er staddur nú?“ Hann var þá í 500 rnílna fjarlægð og enginn við-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.